Þjóðmál - 01.12.2011, Page 87
86 Þjóðmál VETUR 2011
steins Siglaugssonar, en hún hefur lengi
verið uppseld og illfáanleg . Útgáfa Al menna
bóka félagsins er endurbætt þýðing sama
þýð anda . Útgáfan er einkar vel heppn uð,
með glæsilegri kápu og í afar hand hægu
broti .
Almenna bókafélagið stefnir á frekari
útgáfu á bókum Ayn Rand á næstu árum;
fyrirhugað er að gefa Undirstöðuna (e . Atlas
Shrugged) út á næsta ári og Kíru Argúnóvu
(e . We the Living) árið 2013 . Lesendur
sem kunna að meta Uppsprettuna geta því
hlakkað til næstu ára .
Léttvæg þjóðfélags-
gagnrýni
Jóhann Hauksson: Þræðir valdsins. Veröld,
Reykjavík 2011, 198 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Jóhann Hauksson blaðamaður var virkur þátttakandi í aðdraganda hrunsins sem
starfsmaður á Baugsmiðlum . Hann tók til
dæmis viðtal við Jóhannes Jónsson í Bónus
sem birt var í Fréttablaðinu í ágúst 2005 til
að bæta hlut Jóhannesar gagnvart ákæru í
Baugsmálinu . Birting viðtalsins dróst af því
að Baugsmenn vildu ekki að „kálfurinn“
sem þeir settu inn í Fréttablaðið til að bæta
málstað sinn vegna ákærunnar birtist fyrr
en sagt hefði verið frá efni hennar í breska
blaðinu The Guardian .
Jóhann Hauksson, rannsóknarblaða mað-
ur sem tók þátt í þessum æfingum, hefur nú
tekið sér fyrir hendur að skrifa um leyni þræði
valdsins eftir bankahrunið og gagnrýnir þar
menn og málefni fyrir baktjaldamakk .
Árið 2008, skömmu áður en hæstiréttur
kvað upp lokadóm sinn í Baugsmálinu,
öðrum en skattaþætti þess sem enn er ólokið,
birti Jóhann Hauksson „fréttaskýringu“
í DV þar sem hann fullyrti að í framhaldi
af húsleit hjá Baugi 28 . ágúst 2002 hefði
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri
lagt drög að því að Jón Ásgeir Jóhannesson
yrði handtekinn í Leifsstöð á Keflavíkurflug-
velli 29 . ágúst við komu til landsins frá
London . Þá gat Jóhann þess að fréttamenn
frá ríkisútvarpinu hafi verið „albúnir að
mynda atburðarásina væntanlegu“ . Taldi
Jóhann að tilgangur Haralds hefði verið að
sýna Jón Ásgeir í handjárnum í kvöldfrétt-
um sjónvarpsins . Ríkislögreglustjóri og
frétta stjóri sjónvarps sögðu þessa frásögn
Jóhanns ósanna . Ritstjórar DV svöruðu út
í hött þegar þess var óskað að rangfærslur
Jóhanns yrðu leiðréttar .
Hér á landi hefur lögregla ekki siglt í kjöl-
far hinnar bandarísku sem gjarnan grípur til
þess ráðs þegar henni finnst hún hafa verð-
ugan einstakling í handjárnum að sýna hann
þannig fyrir framan sjónvarpsmyndavélar .
Þetta gerðist til dæmis um miðjan maí sl .
þegar Dominique Strauss-Kahn, þáverandi
forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var tekinn
höndum í New York vegna gruns um að
hafa beitt hótelþernu kynferðislegu ofbeldi .
Lögregla varð síðar að sleppa honum vegna
þess að saksóknarar treystu ekki á sannsögli
þernunnar . Svo virðist sem Jóhann Hauksson
hafi talið að íslenska lögreglan væri að feta í
fótspor hinnar bandarísku þegar hann birti
frásögn sína í DV í maí 2008 .
Jóhann starfaði á DV undir ritstjórn
Reynis Traustasonar . Í mars 2010 bárust
fréttir um að Jóhann ætlaði að hætta störfum
á blaðinu vegna ágreinings þeirra Reynis og
sótti Jóhann um að verða fjölmiðlafulltrúi
Steingríms J . Sigfússonar fjármálaráðherra .
Hann dró hins vegar umsókn sína um
starfið til baka og sagði meðal annars á
Pressunni 29 . mars 2010:
Við [Reynir Traustason] tókumst á um stefnu
og áherslur DV en höfum sæst heilum sáttum .
Ég segi fyrir mig persónulega, því að ég horfi