Þjóðmál - 01.03.2013, Síða 35
34 Þjóðmál voR 2013
sjóði og Alþjóðabanka ásamt átaki í að koma
á frjálsari heimsviðskiptum í GATT, síðar
Alþjóðaviðskiptastofnuninni . En þar er ólíku
saman að jafna . Fyrst eftir heims styrjöldina
var það vissulega von vestrænna lýðræðisríkja
að nýr og betri heimur yrði sameiginlegt
markmið . Þær vonir urðu fljótlega að
engu þegar Sovét ríkin tóku að stefna að
heimsyfiráðum . Íslendingar báru gæfu til
að skipa sér í lið með þjóðunum sem vörðu
friðinn og frelsið í Atlants hafsbandalaginu .
Ekkert gagnsæi er í utanríkisstefnu kín-verskra stjórnvalda . Hvað þýðir það fyrir
heimsbyggðina að yfir drottni að verulegu
leyti mannréttindasnautt einræðisríki sem
aðhyllist eigin útgáfu af marxisma? En verk-
in tala og efnahagslegur ávinningur Kín-
verja í hráefna- og orkukaupum í þróunar-
löndum er sá að allur virðisauki fer fram hjá
útflutningslandinu og beint inn í kínversk-
an iðnað og gjaldeyrisforðabúr kínverska
ríkisins . Þá eru laun og kjör starfsfólks
smán ar leg og algjört skeytingarleysi er um
um hverfisáhrif . Kína hefur verið í mestu
uppáhaldi sem viðskiptavinur hjá helstu
einræðisríkjum heims — Búrma, Norður-
Kóreu, Íran, Súdan og Kúbu . Sjálfir hafa
þeir verið ófeimnir við að auglýsa andstöðu
gegn mannréttindum . Árið 2010 fékk fyrsti
Kínverjinn, sem hlotið hefur friðar verð-
laun Nóbels, Liu Xiabo, fréttirnar í fangelsi
þar sem hann afplánar 11 ára fangelsisdóm
fyrir að hafa stutt yfirlýsingu um að Kína
beri að stefna að frekara lýðræði . Veiting
friðarverðlaunanna olli frosti í samskiptum
Noregs og Kína . Frosti sem enn linnir lítt .
Þetta var ekki einstakt tilfelli heldur hluti
bylgju aðgerða gegn mannréttindasinnum
eftir fjöldamorðin á Tianamen-torgi 3 . og 4 .
júní 1989 . Eftir uppreisnir, sem kenndar eru
við Arabavorið, mátti merkja auknar aðgerðir
gegn andófsfólki, mannrán, pyntingar og
stofufangelsanir . Er eitthvað sem bendir til
þess að ný Kínaöld færi þeim 1,3 milljarði
manna sem landið byggir eða heiminum
betri framtíð?
Hvað varða þessi mál Íslendinga? Við ættum allra þjóða best að skilja að
Kín verjar telja sig hafa hagsmuna að gæta á
Norð ur skautinu . Skyldi stefna í að þúsundir
eða tug þúsundir þeirra komi til námavinnslu
hjá næsta nágranna okkar, Grænlandi? Verð-
ur þá ekki þörf á öflugri hagsmunagæslu?
Hvar væri Kínverjum betra að vera í friði og
af skipta leysi með stóra bækistöð en á Norð-
austur-Íslandi? Er nokkur svo skyni skropp-
inn að geta ekki gert sér í hugarlund að kín-
verskir verktakar myndu leika sér að því að
reisa hér mikla aðstöðu og flugvöll á Gríms-
stöðum, hraðbraut til Finnafjarðar og höfn
þar, eins og sveitarstjórnin hefur þegar hann-
að? Það mundi ekki taka þá langan tíma . Í
um ræðunni um utanríkismál á Al þingi 15 .
febrúar 2013 kom Pétur Blöndal með þá
athyglisverðu fullyrðingu, að ásælni Kín verja
í Ísland væri vegna þess að við erum utan
Evrópu sambandsins . Það skyldi þó aldrei
vera kjarni málsins? Því miður hefur slaknað
mjög á athygli bandamanna okkar í NATO
á varnarstöðu Íslands . Nýtt í þeim efnum er
að Norðurlöndunum þykir nú sem nóg sé
komið . Svíar og Finnar vilja nú taka þátt í
loft rýmisgæslunni sem NATO-ráðið ákvað
að halda uppi í loftrýminu yfir og umhverfi s
Ísland og eru þó hvorugir í því bandalagi . Þá
ætluðu sumir íslenskir þingmenn af göflum
að ganga af vandlætingu .
Nú er óstand sem jaðrar við upplausn í stjórnmálum á Íslandi, ef svo má
til orða taka . En vonandi koma fram
aðilar sem geta tekið höndum saman um
stefnumörkun á þessu mikilvæga sviði . Hér
megum við ekki sofa á verðinum . Til þess er
of mikið í húfi fyrir íslenska þjóð . Fljótum
ekki sofandi að feigðarósi .