Þjóðmál - 01.03.2013, Qupperneq 64
Þjóðmál voR 2013 63
Ímyndaðu þér einstakling, hann hefur starfað fyrir stjórnmálasamtök og hið
opinbera frá því að hann kláraði heimspeki
eða stjórnmálafræði við HÍ . Hann þrífst í
nefndum og stjórnum, enda fengið reynslu
úr félagsstarfi stjórnmálaflokks . Hann getur
komið út úr sér fallegum orðum í heil-
steyptum setningum í sjónvarpsviðtali . Talar
mikið en segir fátt . Lofar fögru en lítið fer
fyrir röksemdum . Þessi einstaklingur þarf
nauðsynlega að tryggja sér gott lífsviður-
væri áður en kjósendur sjá í gegnum hann .
Hann er staðalímynd fyrir einstaklingana
sem mynda Elítuna . Elítuna sem berst fyrir
stofnun Bandalags Evrópu;1 eitt land, einn
þjóðsöngur, ein súpa,2 eitt þing og einn fáni .
Elítan sem ætlar sér að sameina alla Evrópu
undir sinn væng, án þess að hafa fyrir því að
leita samþykkis íbúa álfunnar . Íbúar Evrópu
voru blekktir í sambandið á grundvelli þess
að það snerist eingöngu um frjáls viðskipti
og fáeinar grundvallarreglur . Enn eru
þetta helstu rök Evrópusambandssinna .
Bloggsíða Evrópusamtakanna flutti frétt
undir fyrirsögninni „Skýr skilaboð: Skyr
vinsælt í Finnlandi, en stoppar vegna þess að
Ísland er ekki í ESB .“3 Með rökum af þessu
tagi blekkir Elítan frjálslynda einstaklinga í
lestina til Brussel .
1 http://www .youtube .com/watch?v=qZvYldSVhb8
2 http://andriki .is/post/11061471543
3 http://evropa .blog .is/blog/evropa/entry/1266193/
Vörumerkin taka breytingum
R áðamenn ESB og helstu áhugamenn um inngöngu í ESB koma úr ranni
vinstri mennskunnar: Sósíalistar, sósíal -
demó krat ar, jafnaðarmenn, kommúnistar,
búró krat ar og hvað þetta allt heitir . En þeir
eru duglegir að „rebranda“ . Ekki hefði gengið
upp fyrir Elítuna að nota sömu hugtökin
og komm únistarnir í austri notuðu til að ná
almennri hylli . Taka þurfti út „kommún-
ismi“, bæta við slatta af „markaðs hyggju“
og lofa jafnvel „lýðræði“ (án þess að meina
það, auðvitað) . Draga úr „sósíalisti“ og auka
„jöfnuð“ . Í stað „alræði öreiganna“ koma
„eftirlit“ og „reglur“ . Þetta minnir nokkuð
á nýja stefnuskrá Alþýðubandalagsins í
nóvember 1991 . Berlínarmúrinn féll í
október sama ár og þótti hinum miklu
hugsjónamönnum í Alþýðubandalaginu
mikilvægt að breyta ímynd flokksins í
kjölfarið . Mörður Árnason orðaði þetta
nokkuð vel eins og segir í Morgunblaðinu
23 . nóvember 1991:
Á landsfundinum fagnaði Mörður Árnason
fyrirliggjandi stefnuskrárdrögum og sagði að
með samþykkt þeirra væri Alþýðubandalagið
að losa sig við kommúníska arfleifð sína . Á
undanförnum tíu árum hefði flokkurinn
breyst mikið . Nú væri hann að viðurkenna
þær breytingar að hann væri ekki lengur
komm ún istaflokkur, byltingarflokkur sem
Örvar Arnarson
Elítusambandið