Orð og tunga - 01.06.1998, Blaðsíða 20
8
Orð og tunga
íslensk tunga eigi mikið erindi við nútímann. Ég hef ekkert á móti myndunumÁraskip,
Peisuföt, Rúnaletur og Trafakefli en sakna hinsvegar myndanna Bílvél, Gatnamót,
Knattspyrnuvöllur, Skuttogari, Snyrtiborð.
Þetta voru helstu verkþættir, og ég læt hér staðar numið þótt fleira mætti tína til, þar
á meðal þær breytingar á stafrófsröð sem Árni Böðvarsson taldi sjálfur nauðsynlegar í
ritgerð um orðabókarverkið (1988).
Rafræn útgáfa?
í blálokin er svo rétt að nefna að þótt enn séu nokkur ár í 3. útgáfu á prenti sýnist
okkur gerlegt að koma ÍO út í rafrænu formi innan skamms, einni sér eða í tengslum
við önnur orðabókarverk. Til þess þarf auðvitað talsverða vinnu, bæði tölvumegin og
orðfræðimegin, en mest af orðfræðivinnunni þarf hvort eð er að takast á hendur fyrir
ritútgáfuna, og okkur sýnist að strax yrði gagn að bókinni í tölvuformi þótt ekki yrði þá
náð öllum þeim endurskoðunaráföngum sem nauðsynlegir eru fyrir prentbókina. En nú
er mál að linni.