Orð og tunga - 01.06.1998, Side 24

Orð og tunga - 01.06.1998, Side 24
12 Orð og tunga Um orðin dosm ‘seinlæti’ og sögnina að dosma ‘hika, tefja’ á Orðabókin aðeins dæmi í sérsafni frá 19. öld (Lbs. 220 8vo). En nú ætla ég að snúa mér að útgáfunni frá 1983 og líta í formálann. Þar stendur: Við endurskoðunina hefur verið reynt að færa til betri vegar vafasamar og klaufalegar skilgreiningar á merkingum orða og skjóta inn orðum sem vantaði. Þá hefur miklu verið bætt við af orðasamböndum. í þessu skyni hafa verið orðteknar ýmsar nýjar kennslu- og fræðibækur og víða annars staðar leitað fanga. Meira hefur verið tekið nú en áður úr orðabók Sigfúsar Blöndals, við höfum hagnýtt okkur útvarpsþættina um íslenskt mál og fengið að líta í talmálssafn Orðabókar Háskólans, eins og raunar var gert við fyrri útgáfu. Annars munu þau rit sem leitað hefur verið í, vera á annað hundrað(Arni Böðvarsson 1983:viii). Árni taldi líklegt að oftast hefði verið leitað í eftirtöldum ritum: Johan Fritzner. Ordbog over Det gamle norske Sprog. IV. Rettelser og tillegg ved Finn Hödnebö. 1972. Harry Grams. Pflanzen und Tiere Europas. 1974. Ingimar Oskarsson. Skeldýrafána Islands I—II. 1952-62. F. A. Novak. Blómabók. Ingólfur Davíðsson þýddi og endursagði. 1972. V. J. Stanek. Skordýrabók. Þorsteinn Thorarensen þýddi og endursagði. 1974. Annarra rita er ekki getið. ÍO 1983 er talsvert stærri en ÍO 1963: Um orðaforðann í 1983 Orð Fjöldi Orð alls um 85.000 Sérmerkt orð 39.519 Skammstafanir 763 Sémöfn 929 í formála fyrir ÍO 1963 er tekið fram að feitletruð flettiorð séu um 65.000 en í formála ÍO 1983 eru þau talin um 85.000. í ÍO 19831 eru rúm 39.500 orð sérmerkt, eða tæpur helmingur, þar af 4584 merkt sem staðbundið málfar. Krossmerking er notuð tæplega 10.000 sinnum en krossmerktar flettur eru ekki alveg svo margar. Stundum er ein merk- ingarskýring af fleirum merkt með krossi. Skammstafanir eru alls 763 og allmörgum sémöfnum var bætt við í ÍO 1983, þar af eru 557 karla- og kvennanöfn en mannanöfn vorufáííO 1963. 1 Ég þakka Kristínu Bjamadóttur fyrir upplýsingar um stærð einstakra flokka.

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.