Orð og tunga - 01.06.1998, Page 30
18
Orð og tunga
undir flettimynd annars eða einhvers þeirra orða sem sambandið er myndað úr (heitin
einyrði og fleiryrði eiga við þau hugtök sem á norsku eiga sér heitin ettordsenhet og
flerordsenhet, sbr. Nordisk leksikografisk ordbok). Margir hafa auðvitað vanist þessu og
vita hvernig best er að þreifa sig áfram í leit að tilteknu orðasambandi, en fyrir öðrum,
sérstaklega óvönum notendum, getur þessi skipan verið óþægileg hindrun, jafnvel svo
að menn verða frá að hverfa án þess að finna það sem þeir leituðu að.
Sú hindrun, sem hér getur orðið, byggist á því að sum orðasambönd eru nánast eða
fullkomlega sjálfstæð, mynda órofa heild í huga málnotenda og eru þar með sjálfstætt
athugunarefni, sem orðabókarnotendur þarfnast í rauninni sams konar vitneskju um og
eiginleg og sjálfsögð flettiorð. Ymsir atviksliðir eru skýr dæmi um slík orðasambönd,
við getum brugðið upp nokkrum dæmum:
allt í einu
ekki alls fyrir löngu
lítiðeitt
sem betur fer
statt og stöðugt
Uppflettitilefnið, þegar slík orðasambönd eru annars vegar, er varla bundið neinu þeirra
stöku orða sem samböndin eru mynduð úr, heldur hverju orðasambandi fyrir sig í heilu
lagi. Aðgangurinn að upplýsingunum sem sóst er eftir liggur hins vegar aðeins um stök
orð svo að orðabókarnotandinn neyðist til að geta sér til um hvar vænlegast sé að bera
niður. í ÍO er þessum orðasamböndum skipað á þennan hátt:
allt í einu (undir einn)
ekki alls fyrir löngu (undirallur)
lítið eitt (undir einn)
sem betur fer (undir vel)
statt og stöðugt (undir staddur)
Því miður fær ályktunarhæfni notenda ekki alltaf að njóta sín, því að erfitt er að greina
ákveðna reglu um það undir hvaða lið slíkum samböndum er almennt skipað. Það
reynir því oft mjög á þolinmæði notenda, að ég ekki segi umburðarlyndi, að þeir láti
sér ekki í augum vaxa þótt þeir grípi í tómt við fyrstu og jafnvel aðra tilraun. Og eins
og við sjáum getur líka reynt töluvert á málfræðilega þekkingu, flettimyndirnar vel og
staddur í dæmunum að ofan koma mönnum varla að gagni nema þeir kunni nokkur skil
á málfræðigreiningu.
Staða orðtaka
Flettuskipan eins og sú sem viðhöfð er í 10 torveldar þannig aðgang að föstum og
sjálfstæðum orðasamböndum og skipar þeim sem efnisatriðum í lýsingu stakra orða þar
sem þau standa oft einangruð og úr tengslum við almenna lýsingu flettiorðsins. Segja
má að þetta gildi að verulegu leyti um þá tegund orðasambanda sem einna mest ber á
í almennum orðabókum, orðtökin, en þau skipa mikið rúm í lýsingu margra flettiorða