Orð og tunga - 01.06.1998, Side 40

Orð og tunga - 01.06.1998, Side 40
28 Orð og tunga í sterkum karlkynsorðum er full þörf á að sýna kenniföllin eins og í (4a), en það er ekki nóg; það er mjög misjafnt hvort þessi orð hafa í þgf.et. eða ekki, eins og Friðrik Magnússon (1984) hefur skrifað um og sýnt er í (4b). Þetta er atriði sem notendur velkjast mjög oft í vafa um, og því hefði verið full þörf á að gefa þgf.et. í þessum orðum. Það er reyndar stöku sinnum gert, en erfitt að sjá samræmi í því, eins og dæmin um himin og aftan í (4c) sýna. Sum kvenkynsorð, eins og jörð og mold, fá oft -u í þgf.et., sbr. (4d), en það kemur ekki fram í beygingarlýsingunni, þótt hægt sé að ráða það af notkunardæmum. Aður var minnst á n í ef.ft. kvenkyns- og hvorugkynsorða. I orðinu kýr er ekki heldur sýnt hvemig þgf. og ef.ft. eru, þótt þess væri full þörf. Niðurstaða mín er því sú að það sé ekki heppilegt að einskorða beygingarlegar upplýsingar við kenniföll. Það er líka oft erfitt að sjá samræmi í beygingarlegum upplýsingum í ÍO. Svona eru t.d. fjögur lýsingarorð gefin upp: (5) a. vitur| l; bitur (þf -ran) l b. fagur (kv fögur, þf k fagran) l; magur (kv mögur) l Eins og fram kom í (ld) er nf.et. í kvenkyni og þf.et. í karlkyni sýnt „þegar þess þykir þurfa“, en óljóst er hvers vegna vitran er ekki gefið upp fyrst bitran kemur fram, eða hvers vegna fagran kemur fram en ekki magran. Á hinn bóginn væri oft þörf á því að tilfæra sérstaklega hvorugkyn lýsingarorða; það er ekki alltaf sjálfgefið. Að vísu má e.t.v. gefa sér að notendur viti af lengingunni sem verður á eftir ákveðnum sérhljóðum, í blátt, hátt, smátt, trútt, nýtt o.s.frv.; og einnig af samlöguninni í gleitt, brátt, hljótt, blítt, prútt o.s.frv. En stundum verður ekki samlögun, heldur verður hvorugkyniðeins og kvenkynið, a.m.k. í lýsingarháttum; smáð, þjáð, háð, fjáð; engar upplýsingar eru um það í ÍO. Og hvemig eru kvk. og hk. af lo. heiðurl Það orð er gefið athugasemdalaust í ÍO, en fæstir sem ég hef spurt geta notað það nema í kk. Hk. af grannur, þunnur og grunnur er grannt, þunnt og grunnt, eins og við er að búast, en hk. af sannur er ekki *sannt, heldur satt. Þess er ekki getið, þótt það megi að vísu ráða af notkunardæmum. Tekið er fram að reglubundnar hljóðverptar myndir séu ekki sýndar sérstaklega; þess vegna er kvk. glöð og 1 .p.ft.fh.þt. sögðum ekki gefin. Þetta er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, en það fellur illa að því að í nafnorðum eru hljóðverptar myndir gefnar, enda þótt þær séu ekki síður reglulegar en í lýsingarorðum og sögnum. Þannig er t.d. alda, öldu, öldur, þökk, þakkar, þakkir, barn, -s, börn o.s.frv. Þetta á þó aðeins við að hljóðavíxlin varði kenniföll; þgf.ft. eins og örmum er ekki gefið. Hér væri eðlilegt að hafa samræmi; það er engin ástæða til að ætla að hljóðavíxlin í nafnorðum séu á neitt hátt auðveldari eða sjálfgefnari. Þar að auki þyrfti stundum að geta undantekninga í lýsingarorðum. Orðið smart er t.d. gefið (að vísu með spurningarmerki), en hvergi kemur fram að það er, a.m.k. oft, án hljóðavíxla í kvenkyni; hún er smart en ekki Ismört. Það er mjög á reiki hvenær skil stofns og endingar eru táknuð sérstaklega. Þetta má sjá af dæmunum í (6);

x

Orð og tunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.