Orð og tunga - 01.06.1998, Blaðsíða 45

Orð og tunga - 01.06.1998, Blaðsíða 45
Kristín Bjamadóttir: Orðaforði í skýringum 5 Inngangur Þegar leitað er í handbækur um orðabókargerð1 kemur strax í ljós að ýmsar skoðanir eru uppi um það hvort og hvernig eigi að afmarka orðaforða sem notaður er í skýringum í einsmálsorðabókum. Jafnframt er stundum tekið fram að breitt bil sé á milli þess sem er og hins sem ætti að vera þegar skýringarorðaforðinn er annars vegar. Ég ætla nú að setja fram nokkrar leiðir sem eru færar þegar móta á stefnu um orðaforða í skýringum. Síðan mun ég stuttlega gera grein fyrir því hvernig skýringarorðaforðanum í íslenskri orðabók (1983) er háttað en ég hef nú nýverið gert lista um hann og borið hann saman við flettiorð í bókinni. Öll dæmi hér á eftir eru úr annarri útgáfu íslenskrar orðabókar 1983 (hér eftir IO) nema annað sé tekið fram. 6 Helstu leiðir í skýringum Mismunandi gerðir orðabóka gera kröfur um mismunandi aðferðir í mótun skýringar- orðaforðans. Umfjöllunarefnið r þessu hefti Orðs og tungu er íslensk nútímamálsorða- bók og ég geri ráð fyrir að þá sé ekki átt við bók sem ætluð er þeim sem eru að læra málið sem erlent tungumál heldur þeim sem eiga íslensku að móðurmáli. I því sem hér fer á eftir mun ég gera ráð fyrir að svo sé. Annað atriði sem vert er að hafa í huga við umfjöllun um skýringarorðaforðann er sá grundvallarmunur sem er á orðabókum sem byggjast að verulegu leyti á því að gefa samheiti og á bókum þar sem eiginlegar skýringar eru gefnar. Dæmi um báðar aðferðir er að finna í IO: (1) a strengur, -s eða -jar, -ir K taug, lína, kaðall, snúra, band, þráður (einkum þaninn):... 1 Til dæmis má nefna handbók Bos Svenséns (1987) og yfirlitsrit um orðabækur (Dictionaries. An In- temational Encyclopedia of Lexicography.) útgefið 1991 afdeGruyter. 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Orð og tunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.