Orð og tunga - 01.06.1998, Síða 60
48
Orð og tunga
ÍA er byggð á dönsku alfræðiorðabókinni FAKTA [um 40 þús. flettiorð]
... Handritið að dönsku bókinni var flokkað í 241 efnisflokk samkvæmt
Deweyflokkunarkerfinu og unnið í gagnasafni á tölvu. íslenska handritið
var unnið með sama hætti (1990:ix).
Þessi efnisflokkun stuðlar að sæmilegu jafnvægi milli efnissviða í ÍA. Bókin er þó
miðuð við íslenska notendur og íslenskar aðstæður. Við gerð bókarinnar var flettuvalið
endurskoðað þannig að fellt var úr sérdanskt efni en í staðinn bætt við samsvarandi
séríslensku efni. I IA er orðinu bróm að sjálfsögðu gerð full skil og er skýringin við
orðið nokkru ítarlegri en í CED.
Samantekt
Samkvæmt fyrrgreindri lýsingu Svenséns er skýringin við bróm í NDO almenn orða-
bókarskýring. Skýringin er alfræðileg bæði í 10 og CED sem eru báðar með alfræðilegu
ívafi, þ.e. alrænar bækur. Þó er skýringin í þeirri síðarnefndu mun ítarlegri. Skýringin
í IA er aftur á móti ítarlegust og þar segir til sín sá munur sem getur verið á al-
fræðiorðabókum og alrænum orðabókum. Það er yfirleitt að finna meiri upplýsingar í
alfræðiorðabókum en alrænum orðabókum.
Meðalstórar orðabækur úr almennu máli eru um 40-50 þús. flettiorð. Ef miðað er
við að í NDO eru um 50 þús. flettiorð, en ekkert fagmál, eða eins og segir í formálanum,
engin orð sem aðeins eru þekkt og notuð af fagmönnum, og að í CED, sem er með
alfræðilegu ívafi, þ.e. alræn, eru um 110 þús. flettiorð, þá mætti giska á að alfræðilegur
orðaforði í liðlega 100 þús. flettiorða bók á borð við fyrirhugaða íslenska orðabók ætti
að vera um helmingur flettiorðanna, eða um 50 þús. flettiorð. í CED er alfræðilega
orðaforðanum skipt í tvö svið, annars vegar í „fólk og staði“ (um 16 þús. flettiorð) og
hins vegar í „vísindi og tækni“, sem er þá fagorðasvið bókarinnar. Miðað við svipaða
skiptingu í nýju íslensku bókinni ætti fagorðaforði hennar að vera um 35 þús. flettiorð.
Það er ljóst að flettiorðaforði bæði í almennum og alrænum orðabókum skarast við
flettiorðaforða alfræðiorðabóka. Orðið bró/n er gott dæmi um að það eru alfræðileg
flettiorð í almennum orðabókum og flettiorð úr almennu máli í alfræðiorðabókum.
Spurningin er aðeins hvernig eigi að draga línurnar.
Samanburður á flettiorðavali
Til glöggvunar á fagorðaforðanum í áðurnefndum bókum bar ég saman flettiorðaval
þeirra í grunnhugtökumí almennri efnafræði og svo ólífrænni efnafræði. Til grundvallar
var hafður flettiorðaforðinn í þessum tveimur efnisflokkum í ÍA. Athuguð voru 450
flettiorð.
í NDO eru 173 af þessum 450 flettiorðum, eða 38%. Miðað við það sem segir í
formála NDO að í henni sé sleppt fagmáli, þá eru um 40% af flettiorðaforðanum úr
þessum efnisflokkum í ÍA samkvæmt því orð úr almennu máli.
í IO eru 153 af þessum 450 flettiorðum, eða 34%. í formála ÍO er tekið fram að
flettiorðavalið á fræðiorðum sé tilviljanakennt en benda má á að í IO vantar liðlega 4%