Orð og tunga - 01.06.1998, Blaðsíða 73
Valerij P. Berkov:
Tvímála orðabækur í veröld nútímans1
Enginn veit hvenær fyrsta orðabók í sögu mannkynsins var samin en hún hefur
efalaust verið tvímála eða þýðingarorðabók. í að minnsta kosti fjögur þúsund ár hafa
menn samið tvímála orðabækur og þær eru meðal merkustu uppfinninga manna, á
borð við hjólið og prentlistina. Ef mannkynið yrði án orðabóka, myndi það enda með
ósköpum.
Þegar maður vinnur að tvímála orðabók er hann jafnframt að leggja vegi og smíða
brýr á milli þjóða. Á þessum vegum geta þjóðir, sem tala hvor sitt mál, nálgast hvor
aðra. Það fer eftir gæðum orðabókanna hvort þessir vegir verða beinir og öruggir eða
hvort notendur verða að ferðast eftir skuggalegum og krókóttum stígum sem stundum
liggja út í bláinn. Allir, bæði skólabörn og öldungar sem sitja á Ólympstindi vísinda,
skilja nauðsyn góðra orðabóka af ýmsu tagi og umfangi.
Orðabækur, ásamt stjómmálum og listum, eru á því sviði mannlegrar tilveru þar
sem hver og einn telur sig sérfræðing og heldur fast í sína bjargföstu sannfæringu um
málið. Allir geta nítt niður orðabækur, sérstaklega tvímála orðabækur, en aðeins fáir
skilja hve samning orðabóka er erfið og ábyrgðarmikil. Það er að mörgu leyti rétt að
þær orðabækur sem við er að styðjast gefa ekki svör við mörgu því sem notendur vonast
til að finna. Annmörkum orðabóka má skipta í tvo flokka. Til annars flokksins teljast
rótgrónir, eðlislægir gallar á tvímála orðabókum, það er að segja gallar sem annaðhvort
er ekki mögulegt eða mjög erfitt að vinna bug á. Til hins flokksins teljast gallar sem
eiga sér huglæga skýringu, m.a. gamaldags skoðanir orðabókarhöfundar.
Lítum fyrst á eðlislæga galla tvímála orðabóka. Þeir eru að minnsta kosti fimm.
í fyrsta lagi lýsa tvímála orðabækur máli (því sem franski málvísindamaðurinn
Ferdinand de Saussure kallaði la langue), en orðabækur eru aftur á móti notaðar til þess
að afkóða eða kóða tal (la parole). Talið er óendanlegt og ótæmandi, og af þeirri einföldu
ástæðu getur hin besta tvímála orðabók ekki gefið svör við öllum spurningum. Sá sem
þýtt hefur fagurbókmenntir hefur án efa mörgum sinnum notað jafnheiti, jafnt orð og
orðasambönd, sem finnast ekki einu sinni í stærstu orðabókum. Þótt samin yrði tvímála
orðabók þar sem finna mætti öll jafnheiti sem notuð eru í öllum birtum þýðingum úr
1 Fyrirlestur haldinn á vegum fslenska málfræðifélagsins 3. október 1997.
61