Orð og tunga - 01.06.2005, Síða 112
110
Orð og tunga
ur 'búinn vopnum'. Og í nafnorðunum endurspeglast sama merk-
ing: bílvæðing 'það að búa bílum', tækjavæðing 'það að búa tækium'
o.fl.
Til annars hópsins teljast sagnir/nafnorð sem merkja 'breiða út,
gera X-legt'. Sömu málfræðilegu forsendur liggja þar að baki og hjá
fyrsta hópnum. Til hópsins teljast m.a. sagnirnar alþjóðavæða, hnatt-
væða og klámvæða, sbr. einnig nafnorðin alþjóðavæðing, hnattvæðing og
klámvæðing.~8 Tvö fyrstu nafnorðin eru í ÍO (2002) og eru skýrð á sama
hátt: 'aukin samskipti og viðskipti af ýmsu tagi milli þjóða heims, m.a.
vegna bættra fjarskipta og samgangna'. Þessi skýring er e.t.v. ekki al-
veg nægjanleg og eðlilegra gæti verið að gera ráð fyrir að þeim til
grundvallar liggi merkingin 'breiða út um heiminn, gera alþjóðlegt/
hnattrænt'. Sama grunnmerking er í sögnunum evrópuvæða 'breiða út
um Evrópu, gera evrópulegt', nútímavæða og nývæða sem bæði merkja
'breiða út nútímann, gera nútímalegt'.
Flestar væða-sagnir tilheyra fyrsta og öðrum hópi. Hópamir eiga
það sameiginlegt að þeir merkja að gæða það sem um ræðir (nýjum)
eiginleikum. Enda þótt hér sé greint á milli þeirra er það í mörgum
tilvikum erfitt.
í þriðja hópnum er grunnmerkingin ' gera eða skapa eitthvað
(nýtt)'. Þar eru sagnirnar sjúkdóms-/sjúkdómavæða; merkingin er 'búa
til sjúkdóm'.29 Sögnina einkavæða er eðlilegast að telja til þessa hóps.30
Sömu merkingu má kannski finna í sögninni klámvæða enda þótt væn-
legra geti verið að telja hana til annars hópsins. Af orðunum hagvæð-
ing, kaupvæðing og verðvæðing mætti draga þá ályktun að sagnir eins og
*hagvæða, *kaupvæða og *verðvæða merktu 'gera háð hag, kaupi/kaup-
um, verði. Þessi orð teljast því til fjórða og síðasta hópsins. Fleiri orð
þarfnast skýringar og erfitt að flokka þau til tiltekinna hópa.
Færri sagnir tilheyra þriðja og fjórða merkingarhópi en þeim
"Sí Veru' 2. tbl. 2001, sbr. http://vera.is, segir m.a. orðrétt um orðið klámvæðing:
Orðið væðing vísar til þess að búið sé að dreifa einhverju út um allt (sbr. rafvæðing)
og það er einmitt það sem verið hefur að gerast.
-9Um sögnina sjúkdómsvæða mætti stundum alveg eins nota sjúkdómsgera. Um þá
sögn fundust mörg dæmi á netinu. Það kallar á þá spumingu hvort gera í þessari sögn
og ýmsum öðrum eins og t.d. hlutgera, persónugera, raungera og tákngera sé viðskeyti
eins og væða og rökstutt verður nánar í 5.3.
3°Sögnin *einvæða sem þó hafa aðeins fundist dæmi um í lýsingarhætti ætti heima í
þessum hópi. Þá ályktun má draga af orðum Sigurðar Gylfa Magnússonar (2000:137
o.v.) þegar hann talar um einvæðingu sögunnar, þ.e. gera söguna að einstaklingssögu.