Orð og tunga - 01.06.2005, Page 124
122
Orð og tunga
einstök orð eru notuð og því afar gagnleg fyrir alla þá sem eru að
skrifa texta og vilja finna hentugt orðalag. Sá sem er að skrifa um við-
skipti getur t.d. flett upp á orðinu fyrirtæki og fengið þar alls kyns
orðalag sem tengist því, hvort sem orðið er andlag (la) eða frumlag
(lb): '
(1) a. stofna fyrirtæki, hleypa fyrirtæki af stokkunum, hrinda af stað fyrir-
tæki...
b. fyrirtækið berst í bökkum, riðar til falls, er að fara á hausinn...
Þetta dæmi sýnir mjög vel muninn á OS annars vegar og íslenskri orða-
bók (2002) (hér eftir ÍO) hins vegar því sá sem flettir upp orðinu fyrir-
tæki í ÍO finnur lítið annað en skýringar á merkingu orðsins. Þær eru
ágætar svo langt sem þær ná en gagnast lítið þeim sem eru að leita að
rétta orðalaginu.
2.1 Merking
í OS er megináherslan á málnotkun og þar er því lítið um merkingar-
skýringar. Það gerir í sjálfu sér ekkert til þegar notandi þekkir merk-
ingu þess orðs sem hann er að leita upplýsinga um. En hvað með
þann sem ekki þekkir merkinguna? Með flestum uppflettiorðum verð-
ur slíkur notandi að ráða merkinguna af þeim dæmum sem fylgja orð-
inu. Þessi dæmi eru tvenns konar: (i) orðasambönd eða orðastæður af
ýmsu tagi og (ii) heilleg notkunardæmi sem eru afmörkuð með ská-
letri. Þetta má sjá í flettunum fyrir lýsingarorðið hyggilegur og sagn-
orðið dóla:
(2) hyggilegur lo það er hyggilegt að ráðfæra sig við sérfræðinga; hyggileg ráð-
stöfun, hyggileg afstaða
(3) dóla so dóla <af stað, heim á leið>; vera (<einhvers staðar>) að dóla fer
hún ekki að koina, hvað er hún að dóla þarna?
í sumum tilvikum eru dæmi sem fylgja uppflettiorðinu svo góð að þau
koma að töluverðu leyti í stað merkingarskýringa. Notkunardæmið
með sögninni dóla hér að ofan er t.d. þannig að notandinn hlýtur að
fara nærri um merkingu sagnarinnar út frá því. Það er einmitt einn
meginstyrkur bókarinnar að notkunardæmin eru mjög vel úr garði
gerð enda virðist höfundur hafa lagt sérstaka rækt við þetta.
Góð notkunardæmi geta líka bætt ýmsu við sem hefðbundin merk-
ingarlýsing nær ekki yfir. Agætt dæmi um þetta er lýsingarorðið sól-
ríkur. IOS eru sýnd margvísleg nafnorð sem standa með þessu lýsing-