Skagfirðingabók - 01.01.2010, Qupperneq 145
145
HUGLEIÐINGAR UM STAÐFRÆÐI ÞÓRÐAR SÖGU HREÐU
Ósland var upphaflega mjög stór
jörð, en á síðari öldum hefur þremur
jörðum verið skipt úr henni, þ.e.
Brekku koti, Undhóli og síðast Mel-
stað. Óvíst er hvort Tumabrekka
(Brekka) var í öndverðu hluti af Ós-
landi. Hins vegar er nokkuð ljóst, ef
litið er á landamerkjakort, að Mið-
húsum hefur verið skipt út úr Tuma-
brekku fyrir ævalöngu.
Í sögunni kemur fram, að Ketill
bónd i, sem gaf Þórði hestinn Sviðgrím,
„bjó inn frá Óslandi“. Líklega hefur
hann búið nær Óslandi en Miklabæ,
fyrst svo er tekið til orða. Og átthagar
hestsins Sviðgríms hafa þá væntanlega
verið í grennd við Ósland.
Bústaður Össurar er í sögunni oftast
nefndur Þverá, en einu sinni Grund,
hefur það verið nefnt sem dæmi um
rugling á örnefnum. Við Þverá í
Blöndu hlíð er eyðibýlið Ysta-Grund,
sem í heimildum frá 1340 og 1388 er
kölluð Þverárgrund.8 Kristian Kålund
segir að munnmæli í Skagafirði tengi
Össur við Ystu-Grund:
þar er Össurarlögrétta, ferhyrnd tóft,
um 12 faðmar á hvern veg, og Össur-
arhóll. Talið er að Grund og Þverá
hafi upphaflega verið ein jörð, og
öruggt má heita, að Þverá hafi fyrst
síðar runnið milli bæjanna; upphaf-
lega hefur hún beygt til suðurs milli
Grundar og næsta bæjar fyrir austan,
Frostastaða. Þetta hefur vakað fyrir
söguritara og valdið því sem virðist
mótsögn í frásögunni um bústað Öss-
urar, ef til vill hefur aðalbærinn verið
fluttur snemma frá Grund til Þverár.
(Kristian Kålund 1986:57).9
Allir sem um Þórðar sögu hafa fjallað
í seinni tíð, líta svo á að Sviðgríms-
hólar séu gamalt nafn á Sviðnings-
hólum. En hvað fær menn til að draga
slíka ályktun, annað en viss líkindi
með nöfnunum? Þórðar saga hreðu er
talin rituð um miðja 14. öld (um
1350), og má búast við að hún sé
heimild um þau örnefni sem þá tíðk-
uðust. Elsta dæmi um bæjarnafnið
Sviðning er í ráðsmannsreikningum á
Hólum í Hjaltadal 1388, þ.e. um 30–
40 árum eftir að sagan er rituð. Þar
segir: „af Suidninghi“, þ.e. af Sviðn-
ingi.10 Fyrst jörðin hét Sviðningur á
þeim tíma, verður að teljast afar líklegt
að hólarnir hafi þá heitið Sviðnings-
hólar, ekki Sviðgrímshólar. Því hlýtur
það að koma til alvarlegrar athugunar
að Sviðgrímshólar séu ekki innan við
Sviðning, heldur á allt öðrum stað.
Raunar viðurkennir Jón Árni Friðjóns-
son það, þegar hann segir: „Í rauninni
er fátt í frásögn sögunnar sem stað-
festir að raunverulega sé átt við Sviðn-
ingshóla, en um það hefur mönnum
þó ekki blandast hugur“.11 Þarna á
hann við síðari tíma munnmæli og
umfjöllun fræðimanna.
Þegar þeir Þórður fara frá Miklabæ í
8 Hjalti Pálsson (2007:90, 97–98 og 110–111).
9 E.t.v. ber það vott um staðþekkingu höfundar að Össur sé bæði talinn búa á Þverá og Grund.
Eins og fram kemur hjá Hjalta Pálssyni (2007: 97–103), fór Þveráin að sverfa úr Lögréttunni
eftir 1990, og er nú tæpur helmingur hennar eftir. Að sögn Hjalta kannast heimamenn ekki
við að hún sé kennd við Össur, og eiga alþýðufræðimenn 19. aldar e.t.v. hugmyndina að því.
Össurarhóll mun vera glatað örnefni.
10 Íslenzkt fornbréfasafn (III:410).
11 Jón Árni Friðjónsson (2008:129).