Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Side 15
Tafla 4. Áhættuhlutföll og 95% öryggisbil (95% ÖB) þegar skoðuð voru áhrif vinnu á mismunandi
deildum í hópi 55 brjóstakrabbameinstilfella og 116 viðmiða meðal íslenskra hjúkrunarfræðinga á
árunum 1955-1994.
Aðlagað með tilliti Aðlagað með tilliti til
til fæðingarárs fæðingarárs,
brjóstakrabbameins hjá
móður eða systur,
hjúskaparstöðu og
barnleysis
Vinna á ýmsum deildum Fjöldi tilfella Áhættu- hlutföll 95% ÖB Áhættu- hlutföll 95% ÖB
Barnadeild 15 1,52 0,67-3,43 1,47 0,63-3,41
Skurðstofa 19 1,33 0,62-2,87 1,25 0,56-2,78
Gjörgæsla 10 1,31 0,50-3,43 1,31 0,49-3,49
Öldrunardeild 29 1,28 0,61-2,70 1,21 0,56-2,62
Geðdeild 25 1,23 0,59-2,53 1,27 0,59-2,69
Meðhöndlun frumuhemjandi lyfja 7 1,22 0,41-3,62 1,65 0,53-5,17
Lyfjadeild 37 1,02 0,47-2,18 0,96 0,43-2,13
Vinna við svæfingar 6 0,81 0,25-2,62 0,55 0,15-2,08
Handlæknisdeild 33 0,76 0,36-1,63 0,66 0,29-1,48
Heilsugæsla 17 0,46 0,22-0,97 0,44 0,20-0,96
lyQa vekur til umhugsunar um þörf á varúð þegar þau eru
gefin (Gestal, 1987).
Þeir sem vinna á barnadeildum eru líklegir til að vera
útsettir fyrir ýmiss konar þamasjúkdómum. Hvort það
skiptir máli varðandi tilurð brjóstakrabbameins er ekki vitað
og við þekkjum ekki rannsóknir sem gefa það til kynna.
Meðal styrkleika rannsóknarinnar eru traustar upplýs-
ingar um hverjir tilheyra hópi hjúkrunarfræðinga, en valið í
rannsóknarhópinn byggðist á skráðum upplýsingum úr
Hjúkrunarkvennatali og Hjúkrunarfræðingatölum (Hjúkrun-
arfélag íslands, 1969; Hjúkrunarfélag íslands, 1979; Hjúkr-
unarfélag íslands, 1992).
Okkur tókst að ná til allra lifandi hjúkrunarfræðinga í rann-
sóknarhópnum og náins ættingja allra hinna látnu. Svar-
hlutfallið var hátt eða nærri 97%.
Ekki þarf að búast við að um rangskráningu tilfella- og
viðmiða sé að ræða þar eð Krabbameinsskráin hefur náð
til alls landsins frá árinu 1955 og er talin áreiðanleg (Hrafn
Tulinius og Jónas Ragnarsson, 1987).
Á hinn bóginn gæti verið misbrestur á að flokkun starfa
og áreita sé skráð jafnrétt hjá báðum hópum þar eð fleiri
nánir aðstandendur svöruðu fyrir einstaklinga í hópi tilfella
en viðmiða. Upplýsingar úr Hjúkrunarkvennatali og Hjúkr-
unarfræðingatölum voru notaðar til að bæta úr þessu.
Annar veikleiki er að tilfellin koma til á löngu tímabili og
áreiti í vinnuumhverfinu kunna því að hafa breyst. Reynt
var að draga úr áhrifum þessa með því að taka tillit til
fæðingarárs í útreikningunum. Einn veikleiki til viðbótar var
að við höfðum ekki upplýsingar um hvenær á starfsferli
hjúkrunarfræðinganna sjúkdómurinn greindist.
Við vissum frá byrjun að megingalli rannsóknarinnar var
smæð hennar því að hún leiddi til víðra öryggisbila. Við
ákváðum þó að reyna ekki að þrengja öryggisbilin með því
að fjölga viðmiðum vegna þess að ávinningurinn hefði
orðið takmarkaður nema í þeim tilfellum þegar áhættuhlut-
fallið var verulega hátt.
Margur aðferðafræðilegur vandi er óleystur í rannsókn-
um á hópum vinnandi kvenna. Líklegt er að taka þurfi tillit
til fleiri atriða en áhættuþátta í vinnunni sjálfri. Lífsstíll, sem
tengist þjóðfélags- og starfshóþum, gæti vegið þungt á
metum þegar kvennahópar eru rannsakaðir.
Þakkir
Höfundar vilja þakka starfsfólki Krabbameinsskrárinnar fyrir mikil-
væga aðstoð og upplýsingar úr Krabbameinsskrá, próf. Graham
A. Colditz við Læknaskóla Harvardháskóla sem veitti okkur
aðgang að spurningalistanum sem notaður er í rannsókninni á
heilsufari hjúkrunarfræðinga í Bandaríkjunum. Sá aðgangur gerði
okkur auðveldara fyrir um gerð spurningalistans. Við þökkum
spyrjendunum sem unnu verk sitt af áhuga og samviskusemi.
Síðast en ekki síst þökkum við hjúkrunarfræðingunum, sem tóku
þátt í rannsókninni, og aðstandendum þeirra fyrir vinsamlegt
viðmót og góða samvinnu.
Krabbameinsfélag íslands veitti styrk til rannsóknarinnar.
Greinin er birt með góðfúslegu leyfi ritstjóra International
Journal of Occupational and Environmental Health, (Gunn-
arsdottir, Aspelund, Karlsson og Rafnsson, 1997) en þar birtist
hún fyrst undir heitinu: „Occupational risk factors for breast
cancer among nurses".
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998
207