Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Qupperneq 18
8 tíma námskeið um notkun mælitækisins, eru ábyrgir fyrir
matinu en njóta aðstoðar annarra fagstétta eftir því sem
við á. Meðaltími við gerð matsins eru 1 1/2-2 klst.
Réttmæti og áreiðanleiki RAI-mælitækisins
Við hönnun mælitækisins var réttmæti (validity) þess kann-
að með því að fá aðra sérfræðinga á sama sviði og hönn-
uðirnir til að gagnrýna það og leiðrétta. Á íslandi var mæli-
tækið þýtt af greinarhöfundum, endurþýtt frá íslensku yfir á
ensku af óháðum aðila og yfirfarið af upprunalegum
hönnuðum í Bandaríkjunum.
Áreiðanleiki (reliability) gagnasafnsins er mældur með
athugun á samræmi milli tveggja matsaðila, þ.e. tveir
hjúkrunarfræðingar meta sama einstakiinginn eða sami
hjúkrunarfræðingur metur sama einstaklinginn tvisvar.
Viðamiklar áreiðanleikaprófanir hafa farið fram í Banda-
ríkjunum og hafa verið reiknaðir svokallaðir kappa-stuðlar
fyrir hvert atriði, en þeir liggja á bilinu 0 til 1. Stuðull yfir
0,75 er ágætur (40%) og yfir 0,4 er viðunandi (55%). Á
íslandi fóru fram áreiðanleikaprófanir er sýndu að 95%
breyta voru með viðunandi eða ágætan áreiðanleika, en
það er sambærilegt við niðurstöður frá Danmörku og
Bandaríkjunum (Anna Birna Jensdóttir o.fl., 1995).
Álagsmælingar
Álagsmælingar eða RUG-flokkun (Resource Utilization
Groups) er flokkunarkerfi tilfella (case-mix) sem sérstak-
lega hefur verið hannað til að meta álag umönnunar íbúa á
hjúkrunarheimilum. Flokkunarkerfið nýtir upplýsingar úr
gagnasafninu og flokkar íbúana í 44 flokka. Einstaklingar í
hverjum flokki eru einsleitir með tilliti til umönnunarþarfa. í
flokkunarkerfinu eru sjö yfirflokkar sem lýsa þeim þáttum
sem eru ríkjandi í þeirri umönnun sem íbúar í þeim flokkum
þarfnast. Yfirflokkarnir nefnast endurhæfing, umfangsmikil
hjúkrun, sérhæfð hjúkrun, flókin hjúkrun, andleg skerðing,
hegðunarvandamál og líkamleg skerðing ( sjá mynd 2).
Anna Birna Jensdóttir er hjúkrunarframkvæmdastjóri/sviðstjóri
öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur
Hlíf Guðmundsdóttir er stoðhjúkrunarfræðingur á öldrunarsviði
Sjúkrahúss Reykjavíkur
Hrafn Pálsson er deildarstjóri öldrunarmáladeildar heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
Ingibjörg Hjaltadóttir er hjúkrunarframkvæmdastjóri á
öldrunarsviði Sjúkrahúss Reykjavíkur
Ómar Harðarson er stjórnmálafræðingur og starfar á Hagstofu
Islands
Pálmi V. Jónsson er forstöðulæknir/sviðstjóri öldrunarsviðs
Sjúkrahúss Reykjavíkur
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir er forstöðurmaður
öldrunarþjónustudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur
210
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998