Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Qupperneq 21
Helga Björk Eiríksdóttir
Fjölbreytni í hjúkrun
fyrir norðAR.
Sigríður Halldórsdóttir var nýverið skipuð
prófessor við Háskólann á Akureyri. Hún er fyrsti
prófessorinn í hjúkrunarfræði á íslandi og jafn-
framt fyrsti kvenprófessorinn við Háskólann
nyrðra. Þessari stöðuveiting er mikill heiður fyrir
Sigríði. Jafnframt hlýtur þessi áfangi að vera
öðrum hjúkrunarfræðingum hvatning til að halda
á braut fræðimennsku. Til að forvitnast um
konuna á bak við titilinn og vinnuna sem liggur
að baki var nýi prófessorinn sóttur heim á
skrifstofuna í Háskólanum á Akureyri.
Komin heim
Sigríður tekur brosandi á móti mér og býður mér inn. Á
skrifstofunni eru margar hillur troðfullar af bókum. Uppi á
vegg er stór og falleg mynd með tilvitnun úr sálmi. Einhver
trúarlegur andi liggur í loftinu. Hvaðan kemur þessi bros-
milda, kristna kona? „Ég er ættuð úr Dölunum, af Strönd-
um og eitthvað austan af fjörðum, ekki að norðan. En ég
er orðin svo mikill Norðlendingur að það hálfa væri nóg.“
Sigríður ólst upp í Dölunum en hefur síðan verið nokkuð
víðförul. Áður en hún flutti til Akureyrar hafði hún búið í
Reykjavík, Kanada og á Þingeyri. Síðustu árin hefur hún verið
með annan fótinn í Svíþjóð. „Það er mikilvægt að eiga rætur
einhvers staðar, sérstaklega þegar maður hefur búið víða.“
Sigríður er 44 ára og á 3 börn, Sunnu Kristrúnu, 17
ára, Maríu Guðrúnu, 13 ára og Jóhannes Benedikt, 5 mán-
aða. Eiginmaður hennar, Gunnlaugur Garðarsson, hefur
þjónað sem sóknarprestur Glerárkirkju síðan árið 1991.
„Ég var beðin um að koma hingað og taka við heilbrigðis-
deildinni við Háskólann á Akureyri. Við lögðum það í Guðs
hendur hvort við fengjum bæði starf hérna. Við vorum til-
búin að hlýða því sem Drottinn ætlaði okkur." Upphaflega
voru þau treg til að fara því eldri dóttir þeirra hafði verið í
fjórum skólum aðeins 10 ára gömul. Háskólinn á Akureyri
hafði verið starfræktur í 4 ár og fyrsti hópur hjúkrunarfræð-
inga útskrifast.
„Við komum hingað og ætluðum að sjá til hvernig okk-
ur líkaði, en ég var varla lent þegar mér fannst ég hvergi
annars staðar vilja vera. Núna get ég í rauninni ekki hugs-
að mér betri stað - ekki einu sinni í heiminum!" Sigríði
finnst allt umhverfið heillandi, Eyjafjörðurinn, Kjarnaskógur
Sigríður Halldórsdóttir og yngsta barnið Jóhannes
Benedikt, 4 mánaða.
og bærinn sjálfur: „Ég hugsa að ég myndi ekki elska stað-
inn meira þótt ég væri héðan og þó þekki ég marga inn-
fædda sem hugleiða oft að fara burt. Þegar ég er að koma
til Akureyrar í gegnum Víkurskarðið finnst mér ég vera
komin heim.“
Ætlaði að verða kennari
Það liggur beint við að sþyrja Sigríði hvort hún hafi alltaf
ætlað að verða hjúkrunarfræðingur. „Þegar ég var yngri
ætlaði ég að verða kennari." Hún lauk verslunarþrófi frá
Verzlunarskóla íslands árið 1972 og stúdentsþrófi af forn-
málabraut frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1974.
„Svo innritaði ég mig í ensku, íslensku og grísku í Háskóla
íslands en endaði í hjúkrunarfræði." Hún hafði hitt stúlku,
sem var ári á undan í hjúkrun, í boði hjá vinafólki um
sumarið. „Hún sagði mér frá öllu sem hún var að læra og
ég varð alveg hugfangin."
Sigríður hafði reyndar hringt í Hjúkrunarskóla íslands og
talað við Þorbjörgu Jónsdóttur, skólastjóra. „Hún var svo
framsýn kona að hún beindi öllum stúdentum inn í Háskól-
ann. Ég er henni ákaflega þakklát því námsárin í hjúkrunar-
fræðinni voru mjög skemmtileg.“ Hún var [ góðum hóþi og
þrátt fyrir byrjendaþrag var námið skemmtilegt. „Af því að
námið var enn í mótun vorum við nemendurnir mikið hafðir
með í ráðum.“ Sigríður hóf námið haustið 1974 og lauk því
fjórum árum seinna. Hún lét ekki þar við sitja en fór í upp-
eldis- og kennslufræði ári seinna. Síðan starfaði hún í
Tímarit hjúkrunarfræðinga leitaði eftir samstarfi við
nemendur í hagnýtri fjölmiðlun í Háskóla íslands
um greinaskrif í blaðið. Helga Björk Eiriksdóttir var
í framhaldi af því fengin til að kynna sér fjölbreytni
í hjúkrun með viðtölum við hjúkrunarfræðinga.
Helga Björk er með BA-próf í ensku og ítölsku.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998
213