Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Page 42
hagræðing, sem kerfið leiðir til, mun koma hjúkrunar-
fræðingum til góða í launum. Við gildistöku nýs fram-
gangskerfis verða ný starfsheiti tekin upp í stað núverandi.
(4. grein í samningi aðlögunarnefnda Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og Rsp. og SHR).
Auk samningsins var gengið frá samkomulagi um
röðun hjúkrunarfræðinga í launaramma og launaflokka
sem er til bráðabirgða og gildir fram að upptöku nýs
framgangskerfis. Listi yfir helstu atriði þess röðunarkerfis
fylgir hér á eftir. Á árinu 1999 verður hið nýja framgangs-
kerfi tekið í notkun. Það á m.a. að byggja á klínískum stiga
og mati á álagi og menntun, sbr. 4. grein samningsins hér
að framan. Þetta nýja framgangskerfi mun því ráða röðun
hjúkrunarfræðinga í launaramma og launaflokka út samn-
ingstímabilið sem er til 31. október 2000.
Samningnum hefur verið dreift á Rsp. og SHR og hægt
er að nálgast hann á skrifstofu félagsins.
Röðunarkerfi frá 1. febrúar 1998 - 30.
desember 1998
Frá 1. febrúar 1998 - 1. júlí 1998
Stór hópur almennra hjúkrunarfræðinga fékk starfsheitið
stoðhjúkrunarfræðingur 1 frá 1. febrúar 1998 og því starfs-
heiti var raðað í launaflokk 210 í eldra launakerfi. Þetta
leiddi til allt að 9% launahækkunar hjá viðkomandi hjúkr-
unarfræðingum.
Frá 1. febrúar 1998 - 1. júlí 1998 færðust hjúkrunar-
fræðingar yfir í nýtt launakerfi á þann máta að þeir röð-
uðust í þann launaflokk þar sem launatala í þrepi viðkom-
andi hjúkrunarfræðings var jöfn eða hærri en þau dag-
vinnulaun sem hann hafði. Þannig áttu almennir hjúkrunar-
fræðingar að færast í A-ramma, millistjórnendur í B-
ramma og yfirstjórnendur í C-ramma. Við þessa yfirfærslu
hækkuðu laun hjúkrunarfræðinga að meðaltali um 3%.
Frá 1. júlí 1998 fram að gildistöku nýs
framgangskerfis
Frá 1. júlí 1998 var tekið upp röðunarkerfið í eftirfarandi
töflu sem gildir fram að gildistöku nýs framgangskerfis:
Tafla 1. Röðun hjúkrunarfræðinga í launaflokka á Rsp. og SHR frá 1.7.'98
Núverandi starfsheiti Launaflokkur
Hjúkrunarfræðingur fyrstu 6 mán í starfi A2
Hjúkrunarfræðingur e. 6 mán. í starfi A3
Hjúkrunarfræðingur e. 5 ár f starfi A5
Deildarhjúkrunarfræðingur 1 B1
Deildarhjúkrunarfræðingur 2 B1
Stoðhjúkrunarfræðingur 1 B1
Stoðhjúkrunarfræðingur 2 B2
Stoðhjúkrunarfræðingur 3 B8
Aðstoðardeildarstjóri 1 B3
Aðstoðardeildarstjóri 2 B4
Deildarstjóri 1 B4
Deildarstjóri 2 B6
Deildarstjóri 3 B9
Starfsheitin deildarhjúkrunarfræðingur 1 og 2 og stoð-
hjúkrunarfræðingur 1 eru starfsheiti almennra hjúkrunar-
fræðinga. Fyrir gildistöku nýs launakerfis var stór hluti
almennra hjúkrunarfræðinga færður upp í starfsheitið stoð-
hjúkrunarfræðingur 1 eins og fram hefur komið hér að
framan. Þannig leiðir ofangreint röðunarkerfi til þess að
u.þ.b. 25% hjúkrunarfræðinga áttu að fara í A-ramma en
mikill meirihluti hjúkrunarfræðinga, eða a.m.k. 75%, áttu
að fara í B- og C- ramma.
Mat á menntun
í grein 2.4 í samningnum er kveðið á um lágmarksmat á
menntun. Samkvæmt þeirri grein á að meta sérleyfi eða
formlegt viðbótarnám um 1 launaflokk í A-ramma en ekki í
B- og C-ramma. Meistaranám eða sambærilegt nám er
metið sem 2 launaflokkar í ramma A og B en 1 launa-
flokkur í C-ramma. Doktorsnám er metið sem 3 launa-
flokkar í ramma A og B en 2 launaflokkar í C-ramma. í nýju
framgangskerfi, sbr. 4. grein samningsins, er síðan einnig
gert ráð fyrir mati á menntun, þ.m.t. mati á sérleyfum og
formlegu viðbótarnámi.
Ljósabekkir leigðir út. Engin fyrirhöfn.
Bekkurinn keyrður heim og sóttur.
Einnig trimform, göngubrautir og fl.
234
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998