Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Síða 53
CGFNS- próf fyrir
hjúkrunarfræðinga
Flest fylki Bandaríkjanna krefjast þess að erlendir
hjúkrunarfræðingar taki CGFNS-prófið (the Commision
on Graduates of Foreign Nursing Schools) sem er
hjúkrunar- og enskupróf fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga
sem hafa hug á að starfa í Bandaríkjunum. Hjúkrunar-
fræðingar verða að standast þetta próf til að fá að taka
N-CLEX- hjúkrunarprófið (the National Council of State
Boards of Nursing) sem veitir hjúkrunarleyfi í Banda-
ríkjunum. Tvisvar á ári er hægt að taka CGFNS-prófið
víða um heim. Prófgjaldið er US $ 185 fyrir þá sem
taka prófið í fyrsta sinn, annars US $ 150.
Prófdagar Umsóknarfrestur
10. febrúar 1999 9. nóvember 1998
11. ágúst 1999 10. maí 1999
Nánari upplýsingar fást hjá
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Skurðhjúkrun
í brennidepli
Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga heldur árlega ráð-
stefnu sína 14. nóvember 1998 að Grand Hótel,
Reykjavík.
Þema ráðstefnunnar er:
„SKURÐHJÚKRUN í BRENNIDEPLI"
Dagskrá verður send á skurðdeildir og einkareknar
skurðstofur. Hafi dagskrá ekki verið send á ykkar vinnu-
stað þá vinsamlega hafið samband við Svölu Jóns-
dóttur, skurðdeild Landspítalans, sími 5601378, Þóru
Guðjónsdóttir, skurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, sími
5251321, Helgu Einarsdóttir, skurðdeild kvennadeildar,
sími 5601148.
MÆTUM SEM FLEST!
Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga
Málþing um sjúkdóma
í blöðruhálskirtli (hvekk)
Hólum, Menntaskólanum á Akureyri, laugardaginn
31. október 1998
Málþingið er haldið á vegum Læknafélags Akureyrar í
samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga - Norður-
landsdeild.
Markhópar: læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar,
sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfarar, félagsráðgjafar, sálfræðingar,
læknaritarar og aðrir starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar.
Fjallað verður um:
Krabbamein í blöðruhálskirtli
Langvinnar bólgur og sýkingar í blöðruhálskirtli
Kynlífsvandamál og blöðruhálskirtill
Þátttaka tilkynnist fyrir 27. október hjá
hjúkrunarstjórn FSA, sími 4630272, kl. 08.00 - 13.00.
Þátttökugjald er 1000 krónur.
Fagdeild hjúkrunarfræðinga
á krabbameinssviði
Hjúkrunarfræðingar takið eftir!
Námsdagur verður
fimmtudaginn 5. nóvember
kl. 17.30 - 21.30
í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Þemað er líkn.
Margir áhugaverðir fyrirlestrar verða í boði.
Auglýst nánar síðar á vinnustöðum
Nefndin
Opidallan
sólar-
hringinn
7 daga vikunnar
HÁALEITIS
APÓTEK
Háaleitisbraut 68 • Sími 581 2101
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998
245