Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Blaðsíða 54
Málþing
Andlegur stuðningur hjúkrunarfræðinga
við börn og foreldra þeirra
Fræðslu- og menntamálanefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
hefur ákveðið að halda málþing um andlegan stuðning hjúkrunarfræðinga
við börn og foreldra þeirra.
Málþingið verður haldið 20. október 1998
kl. 17:00 - 22:00 að Suðurlandsbraut 22.
Fyrirlestrar og umræður
Léttur kvöldverður
Áætlað þátttökugjald: 1200 kr.
Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir 15. október
í síma 568 7575, í myndsíma 568 0727,
netfang: hjukrun@hjukrun.is
HJÚKRUN ‘99
Rannsóknir og nýjungar í hjúkrun
Ráðstefna á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður
haldin 16. og 17. apríl 1999 að Hótel Loftleiðum.
• Ráðstefnan er tileinkuð rannsóknum íslenskra hjúkrunarfræðinga og öðrum
nýjungum í störfum þeirra.
• Ráðstefnan er opin öllum hjúkrunarfræðingum og verður sérstaklega höfðað til
hjúkrunarfræðinga utan af landi með tilboðum um skipulagðar heimsóknir á heil-
brigðisstofnanir.
• Sú nýbreytni verður tekin upp að halda sýningu á handverki hjúkrunarfræðinga
þar sem hjúkrunarfræðingum gefst kostur á að kynna öðrum hjúkrunarfræð-
ingum listsköpun sína.
• Lokafrestur til að skila útdráttum er 1. febrúar 1999. Útdráttaeyðublað ásamt
þátttökueyðublaði verður sent út með 5. tbl. Tímarits hjúkrunarfræðinga.
• Gestafyrirlesarar verða tveir, erlendur og innlendur.
• Undirbúningsnefnd skipa Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, Auður Björk Gunnarsdóttir,
Halla Grétarsdóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir og Sigríður Magnúsdóttir.
Samstarfsaðili er Ferðaskrifstofa (slands.
Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, hjúkrunarfræðingur
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími: 568 7575
Myndsími: 568 0727
Netfang: adalbjorg@hjukrun.is
Námskeið
Hvernig takast skal á
við árásargirni
Staður: Húsnæði Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut
22.
Tími: Samtals 9 klst. á þriggja vikna
tímabili, dagana 20.10, 27.10 og 3.11.
Fjöldi þátttakenda: Miðað er við að
þátttakendur séu ekki færri en 10 manns
og hægt er að taka allt að 20 manns inn
á námskeiðið.
Kostnaður: 9.800 kr. á mann, innifalið
er kaffi, bók á ensku, bæklingur á
íslensku og verkefnablöð í möppu.
Umsjónarmaður: Ágústína Ingvarsdóttir.
Um námsefnið:
Á námskeiðinu er kennt hvernig árásar-
girni kemur fram og hvernig má ná
tökum á henni. Fjallað er um:
• skilgreiningu ofbeldis og persónulega
reynslu fólks af því,
• vísbendingar árásargirni í líkamstján-
ingu, bæði annarra og okkar eigin,
• vísbendingar um árásargirni í orðum,
• aðferðir til að koma í veg fyrir ofbeldi,
til að ná tökum á árásargjarnri hegðun,
• undirbúning og hugmyndir til að
minnka áhættu, til að koma í veg fyrir
og forðast ofbeldi.
Forvarnir og leiðbeiningar um mótun
öryggisreglna á vinnustöðum.
Stuðst er við myndbandið „Leikni gegn
árásargimi". Kennslubæklingar veita
upplýsingar og æfingar til stuðnings. í
þeim eru nánar skoðuð:
• mismunandi stig ásættanlegrar
hegðunar,
• ástæður árásargirni,
• reiði og hvernig nota má hana á
uppbyggilegan hátt,
• samskipti byggð á einurð og ákveðni,
• líkamleg og munnleg tjáning frá
sjónarmiði mismunandi þjóða.
Tílkynníng
frá námsbraut í hjúkrunarfræði
Viðbótarnám í
krabbameinshjúkrun
Á vormisseri 1999 verður boðið
upp á námskeiðið
Krabbameinshjúkrun III-
Líknarmeðferð (3 ein.).
Skráning hefst 23. nóvember.
Nánari upplýsingar verða veittar á
skrifstofu námsbrautar eftir
1. nóvember. Sími 525-4960.
246
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998