Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Side 58
S JÚKRAHÚS
REYKJAVÍ KU R
Hjúkrun
Þekking í þína þágu
Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur eru lausar stöður á hjúkrunarsviði. Boðið er upp á margvísleg spennandi
atvinnutækifæri fyrir metnaðargjarna og glaðlynda hjúkrunarfræðinga. Sjúkrahús Reykjavíkur er
fjölbreyttur vinnustaður þar sem hjúkrunarfræðingum gefst tækifæri til að þjálfa huga og hönd í hinum
fjölmörgu sérgeinum hjúkrunar. Mörg tækifæri gefast til símenntunar og þátttöku í rannsóknarvinnu. Við
leggjum áherslu á vinsamlegt og faglegt starfsumhverfi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín.
Geðsuið
Á geðsviði er rekin þjónusta við bráðveika og langveika geðfatlaða. Þjónustan er á formi innlagna, dagvisturnar, hópvinnu og endurhæfingar.
Þar gefst því tækifæri til að kynna sér mörg mismunandi meðferðarform á flóknum og krefjandi viðfangsefnum.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 525-1405 eða deildarstjóri í síma 525-1000.
Lyflækningasuið
Á lyflækningasviði eru almennar og sérhæfðar lyflækningadeildir með mjög fjölbreytt verkefni.
Þar er einnig barnadeild sem leggur áherslu á heildstæða þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Þóra Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1555.
Endurhæfinga- og taugasuið
Á Grensásdeild eru sjúklingar með ýmsa taugasjúkdóma og verkjavandamál ásamt sjúklingum
sem þarfnast umfangsmikillar endurhæfingar vegna sjúkdóma eða slysa.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1000.
Skurðlækningasvið
Á skurðlækningasviði eru legudeildir fyrir aðgerðasjúklinga, skurðstofur, svæfingadeild, gjörgæsludeild, sótthreinsunardeild, göngudeild og
dagdeild. Dæmi um aðgerðir sem gerðar eru á sjúkrahúsinu eru heila- og taugaaðgerðir, háls-, nef og eyrnaaðgerðir, brjósthols- og
kviðarholsaðgerðir, bæklunaraðgerðir og aðgerðir á þvagfærum. Tækifæri til aukinnar þekkingar og þjálfunar eru því fjölmörg og spennandi.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 525-1305 eða deildarstjórar í síma 525-1000.
' Slysa- og bráðasuið
Deildir slysa- og bráðasviðs sinna mörgum spennandi og krefjandi verkefnum. Má þar nefna mótttöku og hjúkrun bráðveikra og slasaðra,
forgangsröðun, símaráðgjöf, áfallahjálp og hjúkrun þolenda kynferðisofbeldis. Göngudeild G-3 sinnir eftirliti og ráðgjöf.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarframkvæmdarstjóri,
í síma 525-1705 eða deildarstjóri í síma 525-1000.
Öldrunarsulð
Deildir öldrunarsviðs eru flestar staðsettar á Landakoti en ein legudeild er í Fossvogi. Starfsemin er mjög fjölbreytt.
Unnið er í teymisvinnu að því að finna bestu meðferðarúrræði fyrir hvern einstakling og fölskyldu hans.
Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 525-1888 eða deildarstjórar í síma 525-1800.
Kjörár
Tilgangur kjörárs er að veita nýjum hjúkrunarfræðingum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur markvissa aðlögun og faglegan stuðning á nýjum vinnustað.
Þeir hjúkrunarfræðingar sem skrá sig á kjörár starfa í 1 ár í 80-100% starfi, velja tvær valdeildir (5,5 mán.x 2) og eina sérdeild i 2 vikur. Markviss
aðlögun, fyrirlestrar og lesdagar er hluti af dagskrá kjörárs. Boðið er upp á reglubundna fundi með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Verið velkomin að leita upplýsinga á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra í Fossvogi í síma 525-1221 eða
beint hjá viðkomandi hjúkrunarframkvæmdastjóra eða deildarstjóra.
Laun samkvæmt gildandi samningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Við ráðningu í störf vilja
borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja það kynið,
sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein, til að sækja um.
250
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998