Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Page 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Page 58
S JÚKRAHÚS REYKJAVÍ KU R Hjúkrun Þekking í þína þágu Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur eru lausar stöður á hjúkrunarsviði. Boðið er upp á margvísleg spennandi atvinnutækifæri fyrir metnaðargjarna og glaðlynda hjúkrunarfræðinga. Sjúkrahús Reykjavíkur er fjölbreyttur vinnustaður þar sem hjúkrunarfræðingum gefst tækifæri til að þjálfa huga og hönd í hinum fjölmörgu sérgeinum hjúkrunar. Mörg tækifæri gefast til símenntunar og þátttöku í rannsóknarvinnu. Við leggjum áherslu á vinsamlegt og faglegt starfsumhverfi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín. Geðsuið Á geðsviði er rekin þjónusta við bráðveika og langveika geðfatlaða. Þjónustan er á formi innlagna, dagvisturnar, hópvinnu og endurhæfingar. Þar gefst því tækifæri til að kynna sér mörg mismunandi meðferðarform á flóknum og krefjandi viðfangsefnum. Nánari upplýsingar veitir Guðný Anna Arnþórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1405 eða deildarstjóri í síma 525-1000. Lyflækningasuið Á lyflækningasviði eru almennar og sérhæfðar lyflækningadeildir með mjög fjölbreytt verkefni. Þar er einnig barnadeild sem leggur áherslu á heildstæða þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Nánari upplýsingar veitir Áslaug Þóra Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1555. Endurhæfinga- og taugasuið Á Grensásdeild eru sjúklingar með ýmsa taugasjúkdóma og verkjavandamál ásamt sjúklingum sem þarfnast umfangsmikillar endurhæfingar vegna sjúkdóma eða slysa. Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1000. Skurðlækningasvið Á skurðlækningasviði eru legudeildir fyrir aðgerðasjúklinga, skurðstofur, svæfingadeild, gjörgæsludeild, sótthreinsunardeild, göngudeild og dagdeild. Dæmi um aðgerðir sem gerðar eru á sjúkrahúsinu eru heila- og taugaaðgerðir, háls-, nef og eyrnaaðgerðir, brjósthols- og kviðarholsaðgerðir, bæklunaraðgerðir og aðgerðir á þvagfærum. Tækifæri til aukinnar þekkingar og þjálfunar eru því fjölmörg og spennandi. Nánari upplýsingar veitir Gyða Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1305 eða deildarstjórar í síma 525-1000. ' Slysa- og bráðasuið Deildir slysa- og bráðasviðs sinna mörgum spennandi og krefjandi verkefnum. Má þar nefna mótttöku og hjúkrun bráðveikra og slasaðra, forgangsröðun, símaráðgjöf, áfallahjálp og hjúkrun þolenda kynferðisofbeldis. Göngudeild G-3 sinnir eftirliti og ráðgjöf. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarframkvæmdarstjóri, í síma 525-1705 eða deildarstjóri í síma 525-1000. Öldrunarsulð Deildir öldrunarsviðs eru flestar staðsettar á Landakoti en ein legudeild er í Fossvogi. Starfsemin er mjög fjölbreytt. Unnið er í teymisvinnu að því að finna bestu meðferðarúrræði fyrir hvern einstakling og fölskyldu hans. Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 525-1888 eða deildarstjórar í síma 525-1800. Kjörár Tilgangur kjörárs er að veita nýjum hjúkrunarfræðingum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur markvissa aðlögun og faglegan stuðning á nýjum vinnustað. Þeir hjúkrunarfræðingar sem skrá sig á kjörár starfa í 1 ár í 80-100% starfi, velja tvær valdeildir (5,5 mán.x 2) og eina sérdeild i 2 vikur. Markviss aðlögun, fyrirlestrar og lesdagar er hluti af dagskrá kjörárs. Boðið er upp á reglubundna fundi með reyndum hjúkrunarfræðingum. Verið velkomin að leita upplýsinga á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í Fossvogi í síma 525-1221 eða beint hjá viðkomandi hjúkrunarframkvæmdastjóra eða deildarstjóra. Laun samkvæmt gildandi samningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Við ráðningu í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja það kynið, sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein, til að sækja um. 250 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.