Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Síða 41
Hún bætir við að pyndingar hafi ekki einungis áhrif á
fórnarlömbin heldur einnig fjölskyldur þeirra, jafnvel
mánuðum og árum saman. „Rannsóknir sýna að börn
fólks, sem hefur verið pyntað, eiga í erfiðleikum árum sam-
an, jafnvel þó það séu engin sjáanleg merki á foreldrunum
um að þeir hafi verið pyndaðir. Þeir sem stunda pyndingar
eru orðnir svo „færir" í að leyna ummerkjunum, en börnin
skynja það sem gerst hefur vegna þess að breytingar
verða á fjölskyldulífinu. Við verðum að spyrna við fótum og
láta í okkur heyra. Eina leið okkar hjúkrunarfólks, þ.e. ef
við ætlum að vinna mann-
úðarstörf, er að mótmæla
þessu. Við ætlum að leggja
áherslu á þessa þætti í ICN,
fá lækna, lögfræðinga og
fleiri til að taka höndum
saman og vera meira og
betur á verði um ástandið."
Og hún bendir á sívax-
andi fjölda flóttamanna sem
streymir um heim allan. Er
þeir taka sér bólfestu í öðr-
um löndum vita þeir sem
umgangast þá ekki hvort
þeir hafa verið pyndaðir eða
ekki. Hún segir mjög mikil-
vægt að hjúkrunarfræðingar
geri sér grein fyrir þeim
afleiðingum sem pyndingar
hafa og þekki viðbrögð
fórnarlambanna. „Þeir sem
hafa verið pyndaðir segja
venjulega ekki frá því og því
vita hjúkrunarfræðingar ekki
af því frekar en aðrir. En við
höfum lært að þekkja
afleiðingarnar af viðbrögð-
um sjúklinganna og það er
mjög mikilvægt að gera sér
grein fyrir þeim því annars
fá þeir ekki rétta meðferð.
Ef manneskja hefur verið
pynduð með rafmagns-
höggi, sem er mjög algeng
pyndingaraðferð nú á dög-
um, þá á hún erfitt með að
fara í venjulega heilsufars-
skoðun. Um leið og hún sér
rafmagnstæki fer hún að
skjálfa, svitinn brýst fram og
hún getur orðið árásargjörn.
Eða hræðslan kemur fram í
augnaráðinu. Eitthvað í
umhverfinu kallar fram endurminningar um pyndingarnar.
Ef hjúkrunarfræðingurinn veit ekki hvernig á að ráða í slík
viðbrögð getur hann ekki hjálpað. Hér skiptir mannúðin og
hinn mannlegi þáttur heilsugæslunnar mestu máli. Góður
hjúkrunarfræðingur tekur eftir að eitthvað er ekki í lagi.
Réttu viðbrögð hjá honum eru að spyrja hvað sé að, bjóða
viðkomandi t.d. vatnsglas og ræða við hann. Hann þarf að
leggja áherslu á að heilsufarsskoðunin geti beðið, meiru
skipti að ræða saman. Því miður er mikill skortur á
hjúkrun8arfræðingum til starfa um heim allan og flestir eru
Haltu
hárinu
m
Regaine
20 mg/ml
minoxidil
60 ml linimenf
Getur stöövað arfgengan hármissi
Heili lyfsins: Regaine® áburöur inniheldur mínoxidíl 20 mg/ml. Verkun: Lyfið örvar hárvöxt og er ætlað til notkunar
í hársvörð. Notkunarsvið: Snemmkominn og umtalsverður hármissir (alopecia androgenetica) hjá konum og körlum.
Aðeins má búast við að viðunandi árangur af meðferðinni náist hjá minnihluta sjúklinga. Hvenær á ekki að nota lyfið:
Lyfið á ekki að nota ef ofnæmi fyrir innihaldsefnum áburðarins er jtekkt. Þungaðar konur og konur með barn á brjósti
mega ekki nota lyfið. Einstaklingar yngri en 18 ára mega ekki nota lyfið. Varúðarráðstafanir og varnaðarorð: EINUNGIS
TIL ÚTVORTIS NOTKUNAR. MÁ EKKI DREKKA. GEYMIST ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL. Má ekki nota á önnur
líkamssvæði en á skalla og á þunnhærð svæði í hársverði. Forðist innöndun úða. Forðist að Regaine® berist í augu,
opin sár og á slímhúð, þar sem það veldur sviða og ertingu; ef það gerist, skolið með nægu rennandi köldu vatni. Ef
þú hefur hjarta- og æðasjúkdóm eða sjúkdóm i hársverði skalt þú ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar að nota
lyfið. Ef Regaine® er fyrir slysni drukkið, skal samstundis hafa samband við lækni. Skömmtun: 1 ml af Regaine® er
borið á skallasvæði í hársverði tvisvar á dag. Hámarksskammtur er 2 ml á dag. Aukaverkanir: Stað-bundin erting
vegna ofnæmis (snertihúðbólga), sviði, kláði og þurrkur í hársverði. Lesið vandlega notkunarleiðbeiningar sem fylgja
hverri pakkningu lyfsins. Markaðsleyfishafi: Pharmacia & Upjohn, As Danmörk.
Innflytjandi: Pharmaco hf.Hörgatúni 2, Garðabæ.
Tímarit hjúkrunarfræöinga • 4. tbl. 75. árg. 1999
253