Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Page 43
Frá fagdeildum;
Norræn ráðstefna
þvAAfœrAkj
Reykjavík 10.-11. júní 1999
Ráðstefnan var haldin dagana tíunda og ellefta júní síðast-
liðinn og er fyrsta hjúkrunarráðstefnan á íslandi á þessu
sviði (urotherapeutar). Að ráðstefnunni stóð fagdeild hjúkr-
unarfræðinga tengd þvagfærahjúkrun í samvinnu við
íslenska þvagfæraskurðlækna og 22. þing samtaka þvag-
færaskurðlækna á Norðurlöndum (NUF). Að undirbúningi
hjúkrunarþingsins unnu 10 hjúkrunarfræðingar, allt starf-
andi félagar í fagdeildinni.
Skipulögð var sérstök dagskrá fyrir hjúkrunarfræðinga
fyrir hádegi báða dagana en eftir hádegi sóttu þeir lækna-
þingið. Þá var boðið upp á sameiginlega skemmtidagskrá.
Samhliða fór fram umfangsmikil sýning fyrirtækja á ýmsu
sem tengist þessu sviði.
Aðsókn að þinginu fór fram úr björtustu vonum og
sóttu 220 hjúkrunarfræðingar og „urotherapeutar" þingið
en því miður þurfti að vísa ýmsum frá vegna húsnæðis-
skorts. Þátttakendur komu frá íslandi, Danmörku, Fær-
eyjum, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð.
Viðfangsefni ráðstefnunnar var umönnun þvagfæra-
sjúklinga og var skipulögð fjölbreytt dagskrá sem hentað
gæti breiðum hópi hjúkrunarfræðinga. Gestafyrirlesarar
komu frá íslandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum og Bretlandi.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, setti þingið
og á eftir fylgdi fyrirlestur Sigríðar Halldórsdóttur um þörf á
faglegri umhyggju í hjúkrun og vakti hann mikla athygli
gesta. Birgitta Lindehall flutti fyrirlestur um tæmingu þvag-
blöðru með legg og Marta Kjartansdóttir kynnti niður-
stöður rannsóknar sinnar á aðferðum sem mænuskadd-
aðir nota við þvag- og hægðalosun. Ásgeir Helgason flutti
mjög athyglisverðan fyrirlestur um tilfinningalega ein-
angrun, kynlíf og lífsfyllingu meðal sænskra karlmanna
með blöðruhálskrabbamein og var meðal annars með
glænýjar niðurstöður um þetta efni. Helga Sæunn Svein-
björnsdóttir kynnti í fyrsta sinn niðurstöður nýrrar rann-
sóknar sinnar: „Urinary incontinence among women 55
years and older in Egilsstaðalæknishérað".
„Urotherapeutamir'1 Márta Lauritzen og Eva Person fluttu
mjög áhugaverðan fyrirlestur um upplýsingamiðlun á
alnetinu fyrir einstaklinga og fagfólk og gáfu okkur upp
glænýja slóð þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og
látum við hana fylgja hér: www.svit.sll.se/viss/demo-
eng/visseng.htm. Anna Birna Jensdóttir og Ingibjörg
Hjaltadóttir fluttu fyrirlestur um samanburð á þvagheldni
Ánægðir ráðstefnugestir.
eldra fólks á íslenskum hjúkrunarheimilum í samanburði
við aldraða sem fá heimaþjónustu og gæðavísa þessu
tengda. Þá áttum við því láni að fagna að fá þekkta
þvagfærasérfræðinga sem fluttu afbragðsfyrirlestra um efni
tengd þvagfærasjúkdómum og meðferð. Þetta voru: Paul
Abrams sem fjallaði um þvagleka hjá öldruðum, Aizid I.
Hashmat er fjallaði um áverka á kyn- og þvagfærum, Tom
F. Lue er fjallaði um ristruflanir, John A. Heaney er fjallaði
um skurðaðgerðir við blöðrukrabbameini, Zafar Khan sem
flutti fyrirlestur um sérstaka meðferð við þvagleka og
Eiríkur Jónsson um bakflæði þvags hjá börnum. Auk
fyrirlestranna var haldin sýning á nokkrum veggspjöldum.
Þátttakendur voru afar ánægðir með dagskrána. Töldu
þeir hana faglega og mjög fjölbreytta og ekki þótti
skemmtidagskráin skemma fyrir, þrátt fyrir að sjálfskipuð
nefnd íslenskra veðurguða sýndi að ekki er allt á valdi
jarðneskra manna og útdeildu sýnishornum íslenskrar
veðráttu. Ferskir og kraftmiklir vindar blésu af ákafa og
óhindraðir regnflaumar streymdu af og til af himnum ofan.
Það virtist þó ekki hafa nokkur áhrif á þinggesti sem sýndu
að þeir voru afkomendur víkinga og skemmtu sér hið
besta.
Það er ekki einfalt mál að skipuleggja viðburð sem
þennan. Fyrirfram er ekki hægt að gera sér í hugarlund alla
vinnuna og heilabrotin sem því fylgir. Þegar okkur bauðst
að halda þetta þing í samvinnu við nefnd íslensku þvag-
færaskurðlæknanna sáum við að þetta var tækifæri sem
við gátum ekki látið ónotað. Við töldum þetta einstakt
tækifæri fyrir íslenska hjúkrunarfræðinga sem hjúkra
255
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999