Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Síða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Síða 44
ná : || i lj&] Hjúkrunarfræðing- arnir tíu sem unnu að undirbúningi ráðstefnunnar, frá vinstri: Lilja Arnar- dóttir, Margrét Magnúsdóttir, Kristín Úlfljóts- dóttir, Gunnjóna Jensdóttir, Katrín Blöndal, Sigrún Sigurgeirsdóttir, Sigrún R. Stein- dórsdóttir, Ásdís Ingvarsdóttir, Alma Harðardóttir og Sigríður Jóhanns- dóttir. sjúklingum með sjúkdóma í þvagfærum eða áhuga hafa á þessu málefni til að auka þekkingu sína, komast í samband við starfsfélaga í öórum löndum og einnig að vekja athygli á þessum sjúklingahópi. Undirbúningsvinnan stóð í rúmt ár og hafa meðlimir ráðstefnuhópsins lagt á sig ómælt erfiði og eytt ófáum dögum við skipulagningu. Að lokum uppskárum við árangur erfiðisins, fjölmenna ráðstefnu hjúkrunarfræðinga frá öllum Norðurlöndunum, sem var haldin í húsakynnum Frá víkingakvöldinu. Borgarleikhússins, og ánægða þátttakendur. Þá stofn- uðum við til tengsla við fagfélög hjúkrunarfræðinga á þessu sviði á Norðurlöndunum og iögðum grunn að áframhaldandi samvinnu. Við undirbúning og framkvæmd þingsins nutum við frábærs stuðnings margra góðra manna og kvenna. Við viljum nota tækifærið og koma á framfæri þökkum til Guðmundar Vikars Einarssonar, formanns íslenskra þvag- færaskurðlækna, Agnesar Vilhelmsdóttur í tölvuveri Land- spítalans og síðast en ekki síst til Þórunnar Ingólfsdóttur og Berglindar Bragadóttur hjá Samvinnuferðum-Landsýn fyrir frábæra hjálp og stuðning. Einnig viljum við þakka Geirþrúði Þálsdóttur, hjúkrunarfræðingi, sem studdi okkur með ráðum og dáð að ógleymdum stjórnendum Sjúkra- húss Akraness sem tóku einstaklega vel á móti stórum hópi okkar í ráðstefnuferðinni. Við þökkum einnig fundar- stjórum okkar, hjúkrunarfræðingunum Önnu Gyðu Gunn- laugsdóttur, Hildi Magnúsdóttur, Hrafni Óla Sigurðssyni og Ólínu Guðmundsdóttur fyrir sinn þátt í að gera ráðstefnuna glæsilega. Eftir þessa ráðstefnu erum við ekki aðeins þekkingunni og reynslunni ríkari. Við sem að þessari ráðstefnu stóðum höfum einnig kynnst innbyrðis. Þau kynni, sem tekist hafa með okkur, eru mikils virði þar sem við komum frá ólíkum sviðum hjúkrunar og frá tveimur stofnunum. Þátttaka í starfi sem þessu er ómetanleg til að kynnast öðrum hliðum hjúkrunar þessa sjúklingahóps og efla samfellu. í hjúkrun sem kemur til með að bæta hag sjúklinga okkar. Við viljum hvetja hjúkrunarfræðinga, sem kost eiga á, að taka þátt í starfi sem þessu, að slá ekki hendinni á móti slíku tækifæri. Reykjavík, júní 1999 F.h. ráðstefnunefndar Katrín Blöndal. 256 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.