Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 55
Fyrsti ársfundur Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga
Fyrsti ársfundur Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga var hald-
inn miðvikudaginn 9. júní 1999 í húsnæði Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut 22. Þessi fyrsti árs-
fundur sjóðsins var haldinn m.a. vegna ákvæða í sam-
þykktum sjóðsins sem byggjast á nýjum lögum um
Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga sem tóku gildi í byrjun árs
1997. Á fundinum var miðlað upplýsingum um stöðu
sjóðsins, gerð grein fyrir helstu atriðum í ársreikningi sjóðs-
ins og tryggingarfræðilegri úttekt og svarað spurningum
sjóðfélaga og launagreiðenda.
Ný lög um
Lífeyrissjóð
hjúkrunar-
fræðinga
1997
Með nýjum
lögum um
sjóðinn voru,
eins og hjúkr-
unarfræðing-
um er kunnugt
um, gerðar
ýmsar breyt-
ingar sem
snerta bæði
lífeyrisréttindi
sjóðfélaga svo
og rekstur og
starfsemi sjóðins. Breytingar þessar eru þær viðamestu
sem gerðar hafa verið á lífeyrismálum hjúkrunarfræðinga í
áratugi. Sjóðnum var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum þannig
að nú geta nýir hjúkrunarfræðingar einungis átt aðild að
nýrri deild, A-deild, í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Sú
deild er öflug og traust og veitir mjög góð lífeyrisréttindi.
Með þessum nýju lögum um LH var réttindakerfi sjóðs-
ins breytt á ýmsan hátt þó grunnur þess sé sá sami og
verið hefur um áratugaskeið. Þær breytingar, sem gerðar
voru á réttindakerfi LH, eru flestar mjög til bóta fyrir hjúkr-
unarfræðinga og fullyrða má að í heild sé réttindakerfi
hjúkrunarfræðinga í LH nú byggt upp á betri og sanngjarn-
ari hátt en það var fyrir þessar breytingar.
Ný lög um LH munu leiða til þess að sjóðurinn deyr út
með núverandi sjóðfélögum. Hafa skal þó í huga að mest-
ur hluti hjúkrunarfræðinga greiðir nú iðgjald til sjóðsins eða
á geymdan rétt hjá honum frá því áður en þeir fluttu sig yfir
í A-deild LSR. LH verður því eftir sem áður öflugur sjóður
sem á komandi árum og áratugum mun standa traustan
vörð um réttindi sjóðfélaga sinna.
Um 700 hjúkrunarfræðingar færðu sig úr LH yfir í A-
deild LSR
Hjúkrunarfræðingar, sem áttu aðild að sjóðnum fyrir árslok
1996, gátu valið á milli þess að vera áfram í LH eða færa
sig yfir til A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
U.þ.b. 700 hjúkrunarfræðingar tóku þá ákvörðun að færa
sig yfir til A-deildar LSR en tæplega 1400 hjúkrunarfræð-
ingar greiða nú iðgjöld tii LH.
Mótuð ný fjárfestingarstefna fyrir sjóðinn
Með breytingum á lögum um LH, sem tóku gildi í ársbyrj-
un 1997, voru heimildir sjóðsins til að ávaxta fé sitt rýmk-
aðar verulega. í framhaldi af þessari lagabreytingu vann
stjórn sjóðsins að mótun nýrrar fjárfestingarstefnu fyrir
sjóðinn þar sem horft er til þess hvernig eignasamsetning
hans skuli vera í framtíðinni. Eftir sem áður verður stærstur
hluti eigna sjóðsins ávaxtaður í traustum innlendum
skuldabréfum. Til að auka ávöxtun og dreifa áhættu verð-
ur stefnt að því að auka fjöibreytileika í verðbréfasafni
sjóðsins. Helsta breytingin í því efni er að auka hlutfall
eigna sjóðsins sem ávaxtað verður í innlendum og erlend-
um hlutabréfum.
Breyttar reglur um lífeyrissjóðslán
Á árinu 1998 og í ársbyrjun 1999 voru gerðar verulegar
breytingar á reglum um lífeyrissjóðslán til sjóðfélaga. Með
breytingunum hefur réttur núverandi og fyrrverandi sjóð-
félaga til lántöku verið rýmkaður, vextir verið lækkaðir til
samræmis við lækkun vaxta á innlendum langtímamarkaði
á undanförnum árum og lánsupphæðir hafa verið hækk-
aðar. Fullyrða má að sjóðurinn býður núverandi og fyrrver-
267
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999