Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 65

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 65
/ þessum pistti geta hjúkrunarfræðingar tjáð sig um allt er lýtur að forvörnum, hvað hægt er að gera til að bæta heilsuna og koma í veg fyrir sjúkdóma. Herdís Storgárd, hjúkrunarfræðingur, fjallar hér um forvarnir og fyrirbyggjandi meðferð. Árangursrík leið til að fækka drukknunarslysum hjá íslenskum börnum í flestum löndum heims, þar sem slysavamir hafa verið stundaðar í langan tíma, eru menn farnir að mæla árangur mismunandi leiða sem notaðar hafa verið til að fyrirbyggja slys. Niðurstöður sýna að ef árangur á að nást er best að ráðast að vandanum frá mörgum hliðum. Árið 1991, þegar ég var að byrja að starfa við barnaslysavarnir hjá Slysavarnafélagi íslands, hafði móðir samband við mig en barnið hennar hafði lent í lífshættu í sundlaug og hafði hlotið varanlegan skaða af. Móðirin greindi frá því að árinu áður hefði annað barn lent í sams konar slysi í sömu laug en því barni varð ekki meint af. Kringumstæðurnar við slysið báru vott um að öryggismál á sundstöðum væru almennt í ólestri. í framhaldi af þessari ábendingu var gerð ýtarleg rann- sókn á drukknunum barna á íslandi tímabilið 1984-1993. Að rannsókninni stóðu Pétur Lúdvigsson, barnalæknir, Guðrún B. Guðmundsdóttir og undirrituð. Niðurstöðurnar voru ógnvekjandi. í Ijós kom að á þessu tímabili drukkn- uðu eða nær drukknuðu samtals 48 börn. Af þessum 48 börnum dóu 13 börn, 35 lifðu slysið af en 3 þeirra hlutu alvarlegar heilaskemmdir. Þegar skoðaðir voru staðir þar sem slysin áttu sér stað, kom í Ijós að í 42 prósent tilvika var um opinbera sundstaði að ræða. Það vakti einnig athygli að börn í yngsta aldurshópnum drukknuðu í nokkrum sentímetrum af vatni í pollum við heimili þeirra. Þegar þessar upplýsingar lágu fyrir hófst undirbúningur að skipulagðri fræðslu til foreldra með aðstoð fjölmiðla um að pollar væru hættulegir og ekki þyrfti nema 2-5 senti- metra vatns til að lítið barn gæti drukknað í því. Haft var samband við landsmálablöðin víða um land og fluttu þau upplýsingar um þetta. Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðvum voru einnig fræddar um þessi atriði og ýtarlegum upplýsingum var dreift til foreldra í ungbarnaverndinni í slysavarnabækling- um. Herjað var á sveitarfélög að reyna að halda niður- föllum opnum í leysingum á vorin. ítrekað var við bygg- ingarfulltrúa að húsagrunnar væru vel afgirtir. Gerð var reglugerð um setlaugar sem kveður á um læst lok og að girt verði í kringum þær. Sett var af stað nefnd á vegum menntamálaráðuneytis sem hafði það hlutverk að útbúa öryggisreglur fyrir sundstaði, en fyrstu reglurnar komu út 1994. Þær reglur voru nýlega endurskoðaðar og gerðar voru á þeim úrbætur. Hafinn var áróður um notkun armkúta fyrir börn eða sundjakka í stað hringlaga kúta, en í rannsókninni kom í Ijós að börnin höfðu lent í lífshættu þegar þeim hvolfdi eða þau runni niður úr kútunum. Fræðsla var sett af stað víðs vegar um land varðandi. veiðar á bryggjum og börn voru hvött til að nota björg- unarvesti við veiðarnar. Fimm árum síðar hefur þetta skilað miklum árangri. Ekki hafa orðið drukknunarslys síðustu 3 árin og nærdrukkn- unartilfellum hefur fækkað. Þetta sýnir enn og aftur að ef ná á árangri er mikilvægt að taka á vandanum frá mörgum hliðum. Þrátt fyrir þessa fækkun verðum við að vera á varðbergi því nýjar aðstæður skapast og alltaf koma fram nýir foreldrar. Því verður stöðug fræðsla að vera í gangi. Námskeíð Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands Lystarstol og lotugræðgi - draumaútlit eða heilbrigði Umsjón: Dr. Eiríkur Örn Arnarson, dósent í sálarfræði við læknadeild Háskóla íslands. Tími: 21. og 22. október 1999 kl. 9:00-16:00 Verð: 9.800 Fíkniefni-verkun, einkenni og útlit: Vísbendingar um neyslu og viðbrögð við henni Umsjón: Aldís Yngvadóttir, deildarsérfræðingur hjá Námsgagnastofnun og afbrotafræðingur Tími: 1. nóvember 1999 kl. 9:00-16:00 Verð: 6.800 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 75. árg. 1999 277
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.