Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Blaðsíða 11
Heiðursfélagi Sólveig Guðlaugsdóttír og alþjóða-
fulltrúi Jón Aðalbjörn Jónsson spjalla saman.
Það skipulag að æðsta vald félagsins
hittist aðeins annað hvert ár og að stjórn
hafi allt vald þess á milli þótti orðið
gamaldags og ólýðræðislegt og ekki
hvetja til virkrar þátttöku félagsmanna.
Mjög margir hjúkrunarfræðingar komu
að þessari undirbúningsvinnu en hana
leiddi svokölluð umbótanefnd sem sett
var á laggirnar til að fara yfir öll lög og
skipulag félagsins og leggja fram tillögur
um breytingar fyrir stjórn. Stjórn Fíh
fjallaði síðan um tiilögur nefndarinnar og
í framhaldinu var skýrsla umbótanefndar
og athugasemdir/breytingatillögur
stjórnar Fíh sendar til umsagna
nefnda, fagdeilda og svæðisdeilda
félagsins, auk þess sem stjórnin
óskaði umsagnar umbótanefndarinnar
sjálfrar á breytingatillögunum. Þannig
var reynt að tryggja að sjónarmið sem
flestra skiluðu sér í tillögugerðinni. Elsa
B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh, gerði
ítarlega grein fyrir þessum tillögum í
Tímariti hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 2008
og er vísað til þeirrar umfjöllunar til frekari
upplýsinga.
Dagrún Hálfdánardóttir og Dýrleif
Kristjánsdóttir, sem báðar eru hjúkrunar-
fræðingar og lögfræðingar, tóku síðan
að sér að skrifa frumvarp til nýrra laga
fyrir félagið. Það frumvarp var lagt fyrir
aðalfundinn og greiddu fundarmenn
atkvæði um einstakalagabreytingarog lög
félagsins í heild. Nokkrar breytingatillögur
voru samþykktar og má sjá nýsamþykktu
lögin á heimasíðu Fíh, www.hjukrun.is.
Nýju lögin taka gildi á aðalfundi félgsins
á næsta ári og falla þá ákvæði gildandi
laga félagsins úr gildi. Ákvæði 8. gr. um
aðalfund, 14. gr. um skipulag starfsemi
félagsins, 15. gr. um svæðisdeildir og 16.
gr. um fagdeildir öðluðust hins vegar gildi
á aðalfundinum en koma til framkvæmda
á aðalfundi árið 2009.
Helstu breytingar, sem verða á skipulagi
félagsins í kjölfar lagabreytinganna, eru
auk þess að auka skilvirkni og lýðræði
í félaginu, að jafna og endurspegla
hið tvíþætta hlutverk félagsins með
því að skipta því upp í fagsvið og
kjarasvið og að gera svæðisdeildir og
fagdeildir jafngildar. Til að markmiðið
að auka lýðræði í félaginu náist þurfa
félagsmenn að kynna sér vel og nýta sér
lagabreytingarnar þannig að þeir komi
meira að ákvarðanatöku innan félagsins.
Sérstaklega skal bent á þær breytingar er
varða aðalfund félagsins. Allir félagsmenn
með fulla aðild og fagaðild hafa nú rétt á
að sitja aðalfund með atkvæðisrétti hafi
þeir skráð sig á fundinn með minnst viku
fyrirvara. Þetta er mikilvægt skref í átt til
lýðræðis og því mikilvægt að fólagsmenn
nýti sér það til að hafa áhrif á starfsemi
og ákvarðanatöku innan félagsins.
Helsta verkefni stjórnar fram að næsta
aðalfundi er að undirbúa gildistöku nýju
laganna að ári með því meðal annars að
útbúa reglugerðir varðandi hlutverk og
starfsvið nýrrar félagsstjórnar, sviðstjóra
fag- og kjarasviðs og svæðis- og fágdeilda,
skipa í nefndir og sjóði og endurskoða
trúnaðarmannakerfi félagsins. Mikil vinna er
þvi' framundan hjá stjórn og öðrum sem að
undirbúningnum koma og verður spennandi
að fylgjast með framvindu þess.
Nánari upplýsingar um fundinn eru að
finna í fundargerð aðalfundar á heimasíðu
félagsins.
Námskeið í að semja um laun
í maí sl. hélt Endurmenntun Háskóla íslands í samvinnu
við Fíh námskeið í að semja um kaup og kjör undir
kjörorðinu „Er hjúkrun launuð vinna eða hugsjónastarf?“.
[ fyrri hluta námskeiðsins var rætt um hlutverk og skyldur
starfsmanns og atvinnurekenda, ábyrgð fagmanns og
hvort starfskyldur geta gengið of langt. Kennari var
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar.
FRÉTTAPUNKTUR
í seinni hluta námskeiðs var annars vegar lögð áhersla á
sjálfsvirðingu og gildi í lífi og starfi og hins vegarásamninga-
tækni. Fjallað var um þá þætti sem tengjast árangursríkum
samningum og grunnatriði í samningatækni.
Námskeiðið var haldið í fjórum lotum, alls 12 klst.
32 hjúkrunarfræðingar sóttu námskeiðið, hluti þeirra í
gegnum fjarfundi. Þátttakendur voru mjög ánægðir með
námskeiðinu og verður það vonandi haldið aftur í vetur.
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 3. tbl. 84. árg. 2008
9