Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Blaðsíða 19
Ferðamannaheilsuvernd - bólusetningar og ráðgjöf
Notendum gefst kostur á að bóka tíma hjá hjúkrunarfræðingum
í móttöku heilsugæslunnar þegar ætlunin er að leggja land
undir fót og ferðast um heiminn. Heilsugæslustöðvarnar leitast
við að eiga þau bóluefni sem á markaði eru hverju sinni og
bjóða hjúkrunarfræðingar ferðalöngum þær bólusetningar sem
alþjóðlegar ráðleggingar mæla með hverju sinni. Ráðlagt er að
huga að bólusetningum vegna ferðalaga með góðum fyrirvara
sé þess kostur.
Hjúkrunarfræðingar gefa einnig góð ráð um annað sem viðkemur
ferðalögum, eins og varnir gegn meltingaróþægindum, hvort
þörf sé á malaríuvörnum, börn og ferðalög, varnir gegn geislum
sólar og svo framvegis.
Símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga í síma 1700
Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar er hjúkrunarþjónusta í
síma 1700 og hefur hún verið starfrækt frá árinu 2005.
Þjónustan er fyrir alla og er gjaldfrjáls. Þjónustan er opin virka
daga 8-17.
Erindi sem leitað er með til upplýsingamiðstöðvar eru eins
misjöfn og þau eru mörg en algengast er að fólk leiti sér
ráðgjafar þegar um er að ræða veikindi, vanlíðan eða slys. Sem
dæmi er ráðgjöfin vinsæl meðal foreldra með lasin börn og
algengt er að fólk leiti ráða vegna lyfjanotkunar.
Upplýsingamiðstöðín er auk þess mikið notuð af fólki sem
vantar ráðleggingar um hvert það getur leitað með þjónustu,
ekki síst ef þörf er á einhvers konar bráðaþjónustu. Til dæmis
er algengt að fólk leiti ráða um hvort rétt sé að leita með erindi
sitt á bráðamóttöku sjúkrahúsanna, á heilsugæslustöð eða
hvort óhætt sé að sjá til. Þannig er farið yfir erindin með fólkinu
og besta lausnin valin í sameiningu.
Þá leitar fólk til dæmis stundum ráða hvert hægt sé að leita
með samskiptavanda, vandamál í uppeldi og annarra sálrænna
og félagslegra vandamála. Erindum sem ekki heyra beint undir
heilsugæsluna er vísað til viðeigandi aðila.
Ef erindið er brýnt eins og til dæmis ef talið er að um alvarleg
veikindi sé að ræða er gjarnan haft samband við viðkomandi
bráðamóttöku og fólki vísað áfram eða fólkinu ráðlagt að hafa
samband við neyðarlínu í síma 112.
Að lokum
Þjónusta hjúkrunarfræðinga f móttöku á heilsgæslustöðvum er
fjölbreytt og leitast við að koma til móts við þarfir notendanna.
Öllum erindum er sinnt, annaðhvort með því að veita þjónustu
á staðnum eða vísa í þann farveg sem við á í hverju tilviki.
Hrönn Hákansson er hjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöðinni í
Glæsibæ og skólahjúkrunarfræðingur í Langholtsskóla.
AmórLPálsson fsleifurjónsson FrímannAndrésson SvafarMagnússon
framkvæmdastjóri útfararstjóri útfararþjónusta útfararþjónusta
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Hugrún Jónsdóttir Guðmundur Baldvinsson Þorsteinn Elísson Ellert Ingason
útfararþjónusta útfararþjónusta útfararþjónusta útfararþjónusta
£þejar ancfíáí Ser að fiöncíum
Önnumsí aíla þœiti útfararinnar
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
•VGAUV'
Vesturhlíð 2 • Fossv'ogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. érg. 2008
17