Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Blaðsíða 44
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
MIKIÐ LÁN AÐ FÁ AÐ VERA FARARSTJÓRI
- viðtal við Hjálmfríði Nikulásdóttur
Friða fyrir miðri mynd ásamt kórbörnum í sumarhöll Péturs mikla.
Hjálmfríður Nikulásdóttir er hjúkrunarfræðingur hjá Hjartavernd. Hún hefur
í mörg ár varið frítíma sínum í að vera fararstjóri þegar Skólakór Kársness
hefur verið á ferðalögum, nú síðast í vel heppnaðri ferð til St. Pétursborgar
í Rússlandi. Ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga var þar með í för og notaði
tækifærið að spyrja Fríðu um starf hennar og reynslu sem fararstjóri.
Fríða, eins og hún er vanalega kölluð,
útskrifaðist úr hjúkrunarnámi 1988. Hún
vann fyrstu árin hér og þar en lengst af
á 13-D á LSP Hringbraut sem var þá
handlækninga- og þvagfæradeild. Nú
vinnur hún hjá Hjartavernd.
Hvað gerir þú hjá Hjartavernd?
Ég starfa við ýmsar rannsóknir á vegum
Hjartaverndar. Fyrst ber að telja stóru
öldrunarrannsóknina „AGES“ en það er
viðamikil faraldursfræðileg rannsókn sem
unnin er í samvinnu við National Institute
of Health í Bandaríkjunum. Markmið
rannsóknarinnar er að kanna heilbrigði
öldrunar og reyna að finna út hvaða
þættir það eru í umhverfi, erfðum og
líkamsástandi fólks sem hafa áhrif á heilsu
þess á efri árum. Um það bil 15.000
manns, sem tóku þátt í hóprannsókn HV
árið 1967, er boðið að taka þátt í þessari
rannsókn. í rannsókninni eru skoðuð
öll helstu líffærakerfi sem tengjast færni
og lífsgæðum efri ára en ég vinn við að
leggja fyrir vitræn próf. Aðrar rannsóknir,
sem ég starfa við núna, er rannsókn á
arfbundinni kólesterólhækkun og þrjár
lyfjarannsóknir er snúa að beinþynningu
karla, háþrýstingi og sykursýki.
42
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008