Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Blaðsíða 40
Hluti samninganefndar fylgist með erindi Cecilie Björgvinsdóttur.
Möppur undanþágunefndar fara nú aftur í geymslu.
við fjölmiðla: „Þetta verður grafalvarlegt
ástand strax á fyrstu klukkustundunum.
Skilaboð fundarmanna til ríkisvaldsins
eru einfaldlega þau að stjórnvöld taki
mark á stöðunni, geri sér grein fyrir
til hvers yfirvinnubann geti leitt inni á
stofnununum og bregðist við með því að
opna á eitthvað sem geti leitt tii lausnar
í deilunni." Elsa sagði enn fremur að
vaktakerfi hjúkrunarfræðinga sé flókið
og ólíkt á milli stofnana. Heilsugæslan
sé að hluta til með helgarútköll og sumir
hjúkrunarfræðingar séu á bakvöktum svo
dæmi séu tekin.
Næstu fundir um kjaramálin og
yfirvinnubannið voru svo 1. júlí í
Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og ísafirði
(fjarfundir), 2. júlí á Sauðárkróki og Akureyri
og 3. júlí á Neskaupstað. Samtals funduðu
formaður félagsins og verkefnastjóri kjara-
og réttindamála með á fjórða hundrað
hjúkrunarfræðingum víða um land.
Efasemdir um yfirvinnubann
Yfirvinnubann er nýtt og óreynt vopn
í kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga. Þegar
efnt var til atkvæðagreiðslu voru menn
farnir að átta sig á því að það gæti orðið
mjög beitt vopn. Óvissa ríkti hins vegar um
framkvæmdina. Fíh leitaði snemma eftir
álit lögfræðings um hvort yfirvinnubann
væri löglegt og hvort undanþágulistar
giltu. Niðurstaðan var að yfirvinnubann
er lögleg vinnustöðvun. 2002 boðaði
Félag flugumferðarstjóra yfirvinnubann.
Ríkissjóður kærði þá til félagsdóms en
tapaði þannig að til er fordæmi fyrir því að
leggja bann við yfirvinnu. Það var einnig
mat lögfræðinga að undanþágulistar sem
miða að verkfalli gilda ekki. Þar að auki
höfðu vinnuveitendur ekki sinnt skyldu
sinni að semja við Fíh um uppfærslu
á listunum og uppfærði Landspítali
einhliða undanþágulista sem að stofni til
NÝR KJARASAMNINGUR í HNOTSKURN
1. Gildistími er frá 1. júlí 2008 - 31. mars 2009.
2. 20.300 kr. bætist við allar tölur í launatöflu frá 1. júlí 2008 (8,99% á launaflokk
2-1 og 6,8% á launaflokk 6-4).
3. 6,3% hækkun á launatöflu frá 1. júlí 2008 (ofan á 20.300 kr.).
4. Yfirvinnutaxti lækkar úr 1,0385% af mánaðarlaunum í 0,95% af mánaðarlaunum.
5. 55 ára og eldri verða ekki undanþegnir nætur-, bakvöktum skv. kjarasamningi,
hver starfsmaður semur um þetta sjálfur við sinn vinnuveitanda. (Tekið á
þessú í stofnanasamningi.)
6. Geðdeildarfrí verður lagt niður en sett á „sólarlag" (þeir sem hafa fríið halda þvi' eins
lengi og samfelld ráðning á geðdeild helst).
7. Greiðslur fyrir breyttar vaktir breytast. Greidd verður 1 klst. í yfirvinnu fyrir
hverja breytingu f stað tveggja eða þriggja áður. Sömuleiðis verður greidd 1
klukkustund í yfirvinnu fyrir aukavaktir sem keyptar eru með minna en 24 klst.
fyrirvara að næturlagi, um helgar eða á sérstökum frídögum. (Tekið á þessu
í stofnanasamningi.)
8. Launuð fjarvera vegna veikinda barna var 10 dagar á ári en verður 12 dagar.
9. Mat á ávinnslu veikindaréttar eykst.
Ávinningurinn er veruleg hækkun dagvinnulauna og vaktaálags sem leiðir
m.a. til aukinnar innborgunar í vísindasjóð og hækkar framlag í Lífeyrissjóð
hjúkrunarfræðinga.
38
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 3. tbl. 84. árg. 2008