Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Síða 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Síða 17
heilbrigðishvatningu, upplýsingarogfræöslu eða tilfinningavinnu. Hjúkrunarfræðingar nýta sér vísindin til að þróa sértæka þekkingu sem hefur hagnýtt gildi. Barnard vill meina að hjúkrunarfræðingar séu staðsettir á mörkum tækni og mannlegrar reynslu og það styrki og veiki stéttina. Veikleikarnir felast í þekktum klisjum á borð við að hjúkrunarfræðingnum standi á sama um manneskjuna og sjái bara tæknina eða að hann hafni tækninni og takist því ekki að samþætta tækniþekkingu inn í hjúkrunarstarfið. Kostirnir eru þeir möguleikar sem hjúkrunarfræðingar sjá daglega af áhrifum tækni á daglegt líf einstaklingsins og að tækifæri hjúkrunarfræðinga til að auka við skilning og þekkingu á því sviði með rannsóknum séu óþrjótandi. Millikaflarnir fjalla um afmarkaðri efni. í þriðja kafla bókarinnar er fjallað um gjörgæsluumhverfi fyrirbura og fullorðinna í Ijósi tækninnar og í fimmta kafla bókarinnar um börn sem þurfa mikla tækniaðstoð heima fyrir. Þar er lögð áhersla á að notkun hátækni á sjúkrahúsi miðar að meðferð mikið veikra sjúklinga oft á krítískum tímapunkti. Notkun hátækni heima með langveiku barni krefst þess hins vegar að umönnun snúi að fjölskyldunni allri. Hvernig unnt sé að flétta tæknina inn í daglegt líf fjölskyldunnar og gera henni fært að njóta lífsins tii fullnustu. Svo koma áhugaverðir kaflar um vélmenni og hjúkrun, telematics, upplýsingatækni og um vinnuumhverfið. Mismunandi nálgun en sömu áherslur, nýtum okkur tæknina, stjórnum tækninni, látum ekki stjórnast af tækninni, fylgjum eftir þróun tækninnar og verum jafnframt í forystusveit þeirrar þróunar. Síðasti kafli bókarinnar leitast síðan við að setja tæknina í samhengi við tengsla- og verufræðilegar kenningar. Framgangur tækninnar hafi margþættan tilgang, eins og flæði menningar og gilda milli samfélaga, þróun samfélaga, hagfræðilegan ávinning, viðhaldi heilsu, upplýsingaflæði og afkomu í víðum skilningi. Hjúkrunarfræðingar þurfi stöðugt að vera vakandi fyrir tengslum tækninnar og manneskjunnar til að geta raunverulega veitt góða umönnun og tengst skjólstæðingum sínum. Ég er ekki víðlesin í fræðilegri umræðu er lýtur að tækni og hjúkrun. Ég hef hins vegar ekki komist hjá því að verða vör við umræðuna hjá kollegum í klínikkinni og ákvað að panta þessa bók og lesa hana með augum „nýgræðings" á sviðinu. Niðurstaða mín er að bókin gefi gott yfirlit yfir stöðu þekkingar á þessu sviði, er aðgengileg en kaflarnir þó miskrefjandi. Ég mæli hiklaust með bókinni fyrir þá sem hafa áhuga á þessu efni. Herdís Sveinsdóttir er prófessor í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands og forstöðumaður fræðasviðs skurðhjúkrunar. Notkun Augnskaðar Sýru brunar Alkali brunar Aðskotahlutir Augnaðgerðir Sýkingar Augnlinsan fráMorgan Xy Augnlinsan frá Morgan Lens er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla augnskaða. Augnlinsan er mjög auðveld í notkun og hentar einnig vel til skolunar við efnabruna og til að fjarlægja aðskotahlut úr auga. Sjá nánari upplýsingar á vefsetri framleiðandans: www.morganlens.com The Morgarí Lens Eirberg T-^MorTaninc Stórhöfða 25-110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.