Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Page 22
STYRKIR TIL FRAMHALDSNAMS OG VISINDASTARFA
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga auglýsir til umsóknar styrki úr þeim þremur
sjóðum sem eru í vörslu félagsins og ætlaðir eru til að styrkja hjúkrunarfræðinga
til framhaldsnáms og vísindastarfa. Umsóknarfrestur hefur verið samræmdur og
er í ár 1. október.
Minningarsjóður Hans Adolfs Hjartarsonar
Minningarsjóður Hans A'dolfs Hjartarsonar framkvæmdastjóra var stofnaður í mars 1951 af ættingjum
hans og bekkjarsystkinum en Hans lést í janúar 1951.
Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi og verður að þessu sinni veitt
úr sjóðnum allt að 500 þús. kr.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2008 og skal umsóknum skilað á skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22.
Minningarsjóður Kristínar Thoroddsen
Kristín Ólína Thoroddsen, f. 29. apríl 1894, d. 28. febrúar 1961, var forstöðukona Landspítalans
og Hjúkrunarkvennaskóla íslands frá stofnun hans árið 1949. Fyrrverandi nemendur skólans
og aðrir hjúkrunarfræðingar gengust fyrir stofnun þessa minningarsjóðs við andlát Kristínar í
þakklætis- og virðingarskyni fyrir brautryðjendastörf hennar. Tilgangur sjóðsins er að veita verðlaun
hjúkrunarfræðingum sem skarað hafa fram úr í námi og sýnt sérstaka hæfileika til hjúkrunarstarfa.
Sjóðurinn veitir einnig styrki til framhaldsnáms í hjúkrun og verður að þessu sinni veitt úr sjóðnum allt
að 350 þús. kr.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2008 og skal umsóknum skilað á skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22.
Rannsókna- og vísindasjóður hjúkrunarfræðinga
Sjóðurinn var stofnaður 12. maí 1987 af Maríu Finnsdóttur, fræðslustjóra Hjúkrunarféiags íslands.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja hjúkrunarfræðinga til rannsókna- og vísindastarfa í hjúkrunarfræðum
hér á landi. Styrkveiting miðast við stuðning á öllum stigum rannsókna. Ekki er veitt úr sjóðnum í
tengslum við nám.
Að þessu sinni verður veitt allt að 450 þús. kr. úr sjóðnum.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2008 og skal umsóknum skilað á skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22.
20
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 3. tbl. 84. árg. 2008