Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Side 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Side 23
Ragnhildur Þorgeirsdóttir, ragnhildurthorg@heilhus.is FLUTT INN í ENDURNÝJAÐ HÚSNÆÐI HEILBRIGÐISSTOFNUNAR ÞINGEYINGA Á RAUFARHÖFN Þriðjudaginn 13. maí var heilsugæslustöðin á Raufarhöfn formlega tekin í notkun eftir gagngerar endurbætur. Framkvæmdir hafa staðið yfir í tæpt ár. Eftir þessum degi hafa Raufarhafnarbúar beðið í mörg ár en að minnsta kosti áratugur er síðan ákveðið var að gamla húsnæðið væri komið „á tíma“ og þörf á endurbótum. Húsnæðið var byggt upp úr 1960 og lagfært töluvert einu sinni á tímabilinu. Fjöldi gesta samfagnaði heimamönnum og starfsfólki Heilbrigðisstofnunarinnar, m.a. Þórdís Kristjánsdóttir en hún starfaði við heilsugæslustöðina á Raufarhöfn í rúmlega 20 ár eða á árunum 1974-1994 og á að baki mjög farsælt starf þar. Leist Þórdísi sérstaklega vel á þær breytingar sem gerðar hafa verið á stöðinni. Verktaki við endurbætur og nýbyggingu var Norðurvík á Húsavík. Arkitekt var Björn Kristleifsson. Áttu starfsmenn gott samstarf bæði við verktaka og arkitekt varðandi endurbæturnar og var kappkostað að gera vinnuaðstöðu sem allra besta. Má þar sérstaklega til taka hreinlætisaðstöðu, herbergjaskipan og miklar og góðar innréttingar. Skúffur og skápar eru mikið dýrmæti á heilsugæsiustöð og má segja að fyrir endurbætur hafi mikið skort á að innréttingar væru viðunandi. Allt rafmagn var endurnýjað en rafiagnir voru að sjálfsögðu orðnar löngu yfirhlaðnar með mikilli fjölgun rafmagnstækja og tölva þessa áratugi síðan rafmagn var hannað í húsið. Einnig voru vatnslagnir og skólp endurnýjað og öll hreinlætisaðstaða uppfyllir nú ströngustu kröfur. Fullkomið öryggis- og eldvarnarkerfi var sett upp. Starfsmenn hjá Fjársýslu ríkisins voru okkur sérstaklega hliðhollir og áttum við gott samstarf við þá varðandi endurnýjun á húsbúnaði og tækjum. Má því segja að þessar endurbætur hafi í alla staði tekist vel og eru starfsmenn mjög ánægðir með nýju aðstöðuna og vonandi verða skjólstæðingar heilsugæslunnar það einnig. ■* Heilsugæslustööin meö nýju viðbyggingunni. a Ný aðstaða fyrir slökkvi- og sjúkrabíl í áhaldahúsinu. Þess má síðan geta að nýlega var tekið í notkun nýtt áhaldahús á Raufarhöfn, Skakkhorn, sem meðal annars hýsir sjúkra- og slökkvibíl staðarins og er aðstaðan þar með því sem best gerist. Ragnhildur Þorgeirsdóttir er hjúkrunar- fræðingur á heilsugæslustöðinni á Raufarhöfn. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008 21

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.