Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Síða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Síða 25
Kröfuganga í verkfalli í Svíþjóð vorið 2008. aðstæður þannig að einhver áhætta er tekin. Erlendar kannanir benda þó ekki til þess að verkföll heilbrigðisstarfsmanna hafi áhrif á dánarlíkur (Stovall, Hobart, & Geller, 2004). Þessar kannanir benda einnig til þess að í verkföllum heilbrigðisstarfsmanna aukist mjög notkun á dýrustu þáttum þjónustunnar, s.s. slysadeildarþjónustu. Þjóðhagslegu tapi, sem fylgir verkfalli hjúkrunarfræðinga til skamms tíma, má gróflega skipta upp í eftirfarandi þætti: Tapað þjónustuframlag: Um 900 hjúkrunarfræðingar legðu niður störf hjá hinu opinbera. Að gefum forsendum um mánaðarlaun, yfirvinnu og álagsgreiðslur féllu niður launareiðslur í heilbrigðiskerfinu sem næmu 460 miiljónum króna. Kaupandi þjónustunnar, almenningur með milligöngu opinberra aðila fær því ekki afhenta þjónustu sem er 460 milljóna króna virði á markaði. Tap notenda umfram greitt þjónustuframlag Neytandi kaupir ekki vöru eða þjónustu nema ávinningur af kaupunum sé meiri en útgjöldin. Þetta á við um þjónustu hjúkrunarfræðinga jafnt og aðra þjónustu þó svo hið opinbera hafi milligöngu um kaupin. Setjum sem svo að kaupandi væri tilbúinn til að greiða 5000 krónur fyrir læknisskoðun en að heildargreiðsla sjúklings og hins opinbera til heilsugæslustöðvar næmu aðeins 1000 krónum. í þessu dæmi væri hreinn ávinningur kaupandans 4000 krónur. Þessi ávinningur kemur ekki fram í bókhaldi einstaklinga eða fyrirtækja. Til að fulireikna dæmið um tap þjóðfélagsins vegna mögulegs verkfalls hjúkrunarfræðinga þarf að áætla hversu mikið tap neytenda er umfram greiðslur fyrir þjónustuframlagið. Hagfræðingar kalla þennan ávinning ýmist greiðsluvilja (willingness to pay) eða neytendaábata (consumer surplus). Greiðsluvilji einstaklings minnkar eftir því sem notkun þjónustunnar eykst. Ávinningur af annarri heimsókn til læknis sama daginn er mun minni en ávinningurinn af fyrstu heimsókninni og er væntanlega langt undir heimsóknargjaldinu. Náin tengsl eru milli greiðsluvilja og eftirspurnar. Sé eftirspurn eftir vöru eða þjónustu óteygin með tilliti til verðs þá fellur greiðsluvilji hratt með aukinni notkun. Sé eftirspurn eftir vöru eða þjónustu hins vegar teygin fellur greiðsluvilji hægt þó notkunin aukist. Notast má við erlendar athuganir á verðteygni eftirspurnar eftir þjónustu hjúkrunarfræðinga til að meta fall greiðsluviljans (Knox, Blankmeyer, & Stutzman, 2006; Mukamel & Spector, 2002). Hér á eftir verður gengið út frá að tapaður greiðsluvilji sé á bilinu 300 til 450 milljónir króna sem svarar til þess að verðteygni sé einhvers staðar á bilinu Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008 23

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.