Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Page 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Page 42
MYNDASAMKEPPNI TIMARITS HJÚKRUNARFRÆÐINGA Það er alveg öruggt að margir góðir áhugaljósmyndarar leynast á meðal hjúkrunarfræðinga. Tímarit hjúkrunarfræðinga efnir nú til myndasamkeppni um mynd mánaðarins. í hverjum mánuði verður ein mynd valin. Veitt verða verðlaun og myndin birtist á vefsíðu félagsins. Hefur þú gaman af því að taka myndir? Tímarit hjúkrunarfræðinga auglýsir hér með eftir áhugaljósmyndurum sem vilja leggja tímaritinu og félaginu lið. Okkur vantar myndir sem Iffga upp á greinar í tímaritinu og á vefsíðum félagsins. Sérstaklega vantar okkur myndir úr starfi hjúkrunarfræðinga en einnig almennar myndir og myndir úr frítíma hjúkrunarfræðinga. Taktu myndavélina með þér í vinnuna en gættu sérstaklega að því að fá birtingarleyfi þeirra sem fram koma á myndunum. Myndir af tækjum og tólum hjúkrunarfræðinga eru einnig vel þegnar. Sendu okkur myndir á netfangið christer@ hjukrun.is með „Mynd mánaðarins" í yfirskrift tölvuskeytis. Sérstök dómnefnd mun skoða allar myndir og velja fimm bestu sem verða birtar á vefsíðu félagsins. Af þeim verður ein mynd kosin mynd mánaðarins. Tímarit hjúkrunarfræðinga og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga áskila sér rétt til að nota allar myndir í tímaritinu og á vefsíðum félagsins. 40 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.