Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Side 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2008, Side 45
Fríða t.h. ásamt Mist Þorkelsdóttur að flokka vegabréf ferðalanga á Hótel Moskvu í St. Pétursborg. Hvernig kom það til að þú byrjaðir sem fararstjóri? Við hjónin vorum lengi í Hamrahlíðar- kórunum og höfum haft mikinn áhuga á slíku starfi. Þegar börnin okkar byrjuðu í Kársneskórnum kynntumst við Þórunni Björnsdóttur og frábæru starfi hennar. Má segja að hún hafi tekið við uppeldi barnanna okkar og einnig myndaðist góð vinátta milli okkar. Fyrsta ferðin, sem við fórum sem fararstjórar, var þegar eldri strákurinn okkar ásamt frænda sínum var það ungur að ráðlegt þótti að hafa foreldrana með. Sigfús Nikulásson bróðir minn og Mist Þorkelsdóttur mágkona mín hafa einnig farið í allar þessar ferðir og ákveðin verkaskipting hefur orðið til milli okkar fjögurra í þessum ferðum. Nú í dag er yngsta barnið mitt í Kársneskórnum en hin þrjú eru í Hamrahlíðarkórnum og er nú önnur uppeldisstofnun tekin við í höndum Þorgerðar Ingóifsdóttur. Hversu margar ferðir befur þú farið til útlanda með Kársneskórnum? Með kórnum hef ég farið Í9 utanlandsferðir. Fyrsta ferðin var til Þrag 1999 en nú síðast var farið til hinnar stórkostlegu Pétursborgar. Þar kepptu tveir kórar, stúlknakór og blandaður kór, á alþjóðlegu kórakeppninni „Musica Mundi Grand Prix 2008 St. Petersburg". Stúlknakórinn vann gullverðlaun og blandaði kórinn fékk silfur. Ég veit að þú hefur einnig farið margar ferðir innanlands, bæði tónleikaferðir og í þjálfunarbúðir. Ég hef nú enga tölu á því en kórinn hefur ferðast mikið innanlands og eru nokkrar slíkar ferðir á hverju ári enda kórarnir hennarTótu (Þórunn Björnsdóttir kórstjóri) margir. Á hverju ári er líka farið nokkrum sinnum í æfingarbúðir því að baki svona starfi er mikil vinna og æfingar. Þessar ferðir hafa ekki síður verið skemmtilegar. Hvað er eftirminnilegast úr öllum þessum ferðum? Það er margt eftirminnilegt og erfitt að nefna eitt atvik eða eina ferð. Það var mikil lífsreynsla að fara til Japan 2005 þegar kórinn var fulltrúi fslands á heimssýningunni EXPO. Einnig er ferð kórsins til L'Anse Aux Meadows (Leifsbúðir) í Kanada mjög minnisstæð. Sú ferð var hluti af mikilli dagskrá vegna Víkingahátíðarinnar árið 2000. Þó má segja að flestar og bestu minningarnar séu tengdar tónlistarupplifun og þeim fjölda barna sem maður hefur kynnst gegnum þetta starf. Eitthvað sem þú vilt nefna að lokum? Það má gjarnan koma fram hversu mikils virði svona kórastarf er og ég tel mig hafa verið lánsama að fá að taka þátt í því. Golfmót hjúkrunarfræðinga Golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra var haldið á Garðavelli á Akranesi föstudaginn 30. maí sl. í góðu veðri. 40 hjúkrunarfræðingar og makar þeirra tóku þátt. Keppt var í tveimur flokkum, A flokki fyrir þá sem eru með forgjöf 0-28 og B flokki fyrir þá sem eru með forgjöf 29-42. Fyrirkomulagið var punktakeppni. Vinningshafar í A flokki voru í 1. sæti Kristín Úlfljótsdóttir, í 2. sæti Steinunn Kristinsdóttir og í 3. sæti Auður Jóhannsdóttir. í B flokki var sigurvegarinn Fanney Friðbjörnsdóttir FRETTAPUNKTUR með Steinunni Jónsdóttur í 2. sæti og Áslaugu Pétursdóttur í 3. sæti. Vegleg verðlaun voru í boði Vistor sem einnig gaf teiggjafir. Næsta golfmót hjúkrunar- fræðinga og maka þeirra verður haldið á Nesvellinum föstudaginn 29. ágúst. Kylfingar eru hvattir til að fylgjast með á vef Fíh þar sem mótið verður auglýst nánar. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 84. árg. 2008 43

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.