Ráðunautafundur - 15.02.2002, Side 14
12
var ráð fyrir gert. Þessu samningaferli lauk síðan i Reykjavík á fundi sem haldinn var árið
2000 og þar var gengið endanlega ffá öllum lausum endum.
Samningurinn var formlega samþykktur á Landsmóti 2000, þar sem einnig var skrifað
undir viljayfirlýsing um WorldFeng á milli FEIF og BÍ.
Ljóst er að forsenda fyrir því að hægt var að ráðast í WorldFeng verkefnið var styrkur
sem Átaksverkefni í hestamennsku veitti verkefninu, að upphæð kr 15 milljónir. Átaksverk-
efhinu var komið á fyrir tilstilli Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra, sem hefúr sýnt
hrossaræktinni mikinn skilning á ráðherraferli sínum. Framleiðnisjóði landbúnaðarins ber
jafnframt að þakka fyrir styrk að upphæð kr 2 milljónir á árinu 2001. Annan kostnað við gerð
WorldFengs hafa Bændasamtökin borið.
EFNI SAMSTARFSSAMNINGSINS VIÐ FEIF
Samstarfssamningurinn milli FEIF og BI um WorldFeng er i 23 greinum, auk viðauka í
fjórum hlutum. Samningurinn greinir frá samstarfsverkefninu sem slíku, gildistíma, skyldum
FEIF og BÍ o.fl.
í 6. grein er t.a.m. greint ffá stjóm WorldFengs. Sérstök grein er um fjármögnum á
kerfinu ásamt áskriftargjöldum. Þá er ein grein um þóknun til áskrifenda, 9. gr. fjallar um
skyldur eða kröfur til kerfisins, 10 gr. um eignarrétt, þ.e. höfundarrétt, dreifingarrétt og hug-
verkarétt Síðan em greinar sem sameiginlega fjalla um samningsslit, ábyrgð o.þ.h.
Það er ljóst í huga okkar allra, sem unnum að samningsgerðinni, að með WorldFeng væri
stigið stórt skref í íslenskri hrossarækt. Það var þess vegna mikilvægt að vel til tækist í
samningsgerðinni. Engan skugga hefur borið á þetta samstarf ffá upphafi. Allir aðilar hafa
unnið af heilindum og dugnaði í að ganga ffá málum þannig að allir gætu vel við unað.
Eitt af þeim atriðum sem var mikilvægt að ganga ffá í reglum um WorldFeng og í
samningi um WorldFeng vom aðgangsmál. Ákveðið var i upphafi að tölvukerfið World-
Fengur væri í eigu Bændasamtakanna, en gögnin sem slík væm sameign þeirra landa sem
gerðust áskrifendur að kerfmu. Þannig þurfti að búa til aðgangsreglur sem skipta aðgengi að
gagnagmnninum algjörlega eftir löndum. Danir geta þannig aðeins skráð ný hross, sem em
fædd í Danmörku, og breytt/viðhaldið upplýsingum einungis um hross sem em í Danmörku.
TÖLVUKERFIÐ WORLDFENGUR VERÐUR TIL
Tölvukerfið WorldFengur er byggt upp með JDeveloper sem er þróunartól til þess að skrifa
Java fyrir Oracle. Gagnagmnnur WorldFengs er í Oracle 8 i.
Þegar ákveðið var að ráðast í WorldFeng var mikilvægt að velja þróunartól sem gætu
staðið undir þeim miklu væntingum sem gerðar vom. Þannig þurfti að velja öflugan gagna-
gmnn, sem gæti bæði ráðið við mikið magn af upplýsingum, hraða og öryggi. Ennffemur var
mikilvægt að þróunartólið sem réðu við umfangsmikla forritun á Intemetinu og biðu upp á
sveigjanleika og að sama skapi hraða og öryggi. Segja má að af þeirri reynslu, sem komin er,
að val á þróunartólum hafi verið rétt. Vissulega komu upp ýmsir byrjunarerfiðleikar í upphafi
sem þurfti að ráða bót á og reyndu á taugar og þol þeirra sem tóku þátt í verkefhinu. Fljótlega
var ákveðið að vista tölvukerfið WorldFeng og gagnagmnn hjá SKÝRR til þess að auka
öryggi og bjóða upp hraða Intemettengingu og ömgga affitun kerfisins, en ekki sist til þess að
bjóða upp á 24 tima vakt á kerfinu. Vegna eðli verkefnisins var brýnt að tryggja uppítíma og
þjónustu allan sólarhringinn.
Tölvukerfið WorldFengur byggir að gmnni til á fyrrverandi Feng, sem var upphaflega
byggður upp árið 1991. í upphafi ársins 2002 hafa helstu áfangar í WorldFeng náðst fram.