Ráðunautafundur - 15.02.2002, Page 56
Nú liggur vel á mér
Númi Þorbergsson - Óðinn Q. Þórarinsson
Stína var lítil stúlka í sveit,
stækkaði óðum, blómleg og heit.
Hún fór að vinna, varð margt að gera,
lærði að spinna, látum það vera.
Svo var hún úti sumar og haust,
svona gekk lífið, strit endalaust.
Samt gat hún Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú liggur vel á mér,
nú liggur vel á mér,
gott er að vera léttur í lund,
lofa skal hveija ánægjustund.
Gaman fanst Stínu að glettast við pilt,
gaf hún þeim auga, var oftast stillt.
Svo sá hún Stjána, það vakti þrána,
hann kom á Grána út yfír ána.
Sæl var hún Stína, saklaus og hraust,
svo fór hún burtu koidimmt um haust,
samt gat hún Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú liggur vel á mér,
nú liggur vel á mér,
gott er að vera léttur í lund,
lofa skal hveija ánægjustund.
Nú er hún Stína gömul og grá,
getur þó skemmt sér danleikjum á
situr hún róleg, horfir á hina
hreyfast í takt við dansmúsikina.
Alltaf er Stina ánægð og hraust,
aldrei fmnst henni neitt tilgangslaust.
Enn getur Stína söngvana sína
sungið með hárri raust.
Nú liggur vel á mér,
nú liggur vel á mér,
gott er að vera léttur í lund,
lofa skal hverja ánægjustund.