Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir A lexander Manrique Elías­ son, sem áður hét Jón Alexander Elíasson, starfaði í tvö ár hjá Barnavernd Reykjavíkur. Á þeim tíma varaði hann minnst þrjár fjölskyldur við sem voru undir smásjá Barnaverndar. Hann lét fjölskyldurnar vita þegar til stóð að kanna aðstæður hjá þeim. Heimildir herma að hann hafi falsað niðurstöður þvagsýna og jafnvel látið fjölskyldur vita hvaða einstaklingar höfðu tilkynnt þær til Barnaverndar. Málið er grafalvarlegt en Alexander starfaði í nokkur ár hjá stofnuninni og ljóst að upplýsingar sem hann kom á framfæri til þessara fjölskyldna hafa gert það að verkum að foreldrar barnanna drógu að taka sig á eða lagfæra það sem var að á heimilinu. DV hefur staðfest að um er að ræða minnst þrjár fjölskyldur og alls ekki útilokað að Alexander hafi falsað niðurstöður þvagsýna hjá fleiri fjölskyldum eða látið vita þegar staðið hafi til að fara í heimsóknir. Óheiðarleiki Alexanders gæti því hafa bitnað á mun fleiri börnum. Alexander lét af störfum í apríl á síðasta ári en á meðan hann var við störf hjá Barnavernd var hann byrjaður að undirbúa vændishús sem hann starfrækti í Fiskakvísl. Alexander var vel liðinn meðal samstarfsmanna sinna hjá Barna­ vernd og var starfsfólk í uppnámi yfir aðkomu hans að vændisstarf­ semi. Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, fullyrti við RÚV að Al­ exander hefði verið farsæll í starfi og ekkert óeðlilegt við uppsögn hans. Nú er ljóst að svo var ekki. Upplýsingar sem Alexander kom á framfæri við fjölskyldur í vanda hafa bitnað á börnum sem stofn­ unin á að vernda. Þá hefur Halldóra sagt áður að hún hafi ekki kannast við að meinbugir hafi verið á vinnu hans hjá Barnavernd eða starfslok hans tengst vítaverðri háttsemi. Heimildir DV herma annað og að kvartanir hafi borist vegna starfa hans. Halldóra segir að mál Alexanders verði tekið mjög alvar­ lega. Hún fullyrðir að hún hafi ekki vitað að Alexander léti skjól­ stæðinga sína vita að til stæði að koma óvænt í eftir litsferð á heimili viðkomandi. DV hefur heimildir fyrir því að Barnavernd hafi verið látin vita að Alexander hafi varað skjólstæðinga Barnaverndar við. Samtal DV við Halldóru ýtir undir slíkt því ljóst er að eftir að vændis­ málið kom upp hafa bakgrunnur og störf Alexanders verið skoðuð og farið yfir hvaða fjölskyldum hann var að fletta upp í tölvukerfi stofnunarinnar. Er ljóst að um er að ræða eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið hjá Barnavernd Reykjavíkur. Hver er Alexander? „Hann var villingur úti á Nesi en var samt vinsæll, ekki síst hjá stelp­ unum. Eftir grunnskólann hvarf hann hins vegar af yfirborði jarð­ ar. Ég vissi bara að hann hefði far­ ið út af sporinu,“ segir maður sem ólst upp með Alexander Manrique Elíassyni á Seltjarnarnesi. Að lok­ inni grunnskólagöngu leiddist hann út á ranga braut. Hann hlaut fangelsisdóm á táningsaldri og var honum gefið að sök að hafa reynt að aka á mann. Að lokinni afplán­ un venti hann kvæði sínu í kross, fór í meðferð og virtist hafa náð tökum á lífi sínu. Hann rak um tíma bar á Spáni sem og köfunar­ skóla, en hann hefur kennslu­ réttindi sem kafari. Hann starfaði um tíma fyrir köfunarþjónustuna Kafarinn.is hér á landi og árið 2004 hóf hann störf hjá Krýsu­ víkursamtökunum sem áfengis­ ráðgjafi. Sú reynsla hjálpaði ef­ laust til þegar hann var ráðinn til starfa hjá Barnavernd Reykjavíkur. Hann var lengi farsæll á með­ ferðarheimilinu á Krýsuvík. Einn heimildarmanna DV segir að eftir að Alexander fór í erfiða meðferð við lifrarbólgu hafi skapgerð hans breyst og hann farið langt nið­ ur. Þá hafi hann sett spurningar­ merki við starfshætti Þorgeirs, forstöðumanns meðferðarheimil­ isins, og það sé aldrei liðið. „Toggi er kóngurinn og ef þú ert ekki besti vinur hans og hlýðir honum ekki í einu og öllu getur þú pakk­ að saman,“ segir heimildarmaður DV sem dvaldi um hríð í Krýsuvík. Annar heimildarmaður sem þekk­ ir til starfa hans hjá Barnavernd segir: „Hann var ábyrgur í máli vinar míns. Þá kom hann heim til þeirra og tók þvagprufur. Ef þau höfðu neytt fíkniefna breytti hann bara niðurstöðunni. Ég veit líka að hann hringdi og lét vita ef fulltrúar Barnaverndar voru á leið í heim­ sókn. Þá sagði hann þeim að taka til og hvað þau ættu að gera.“ Alexander var ráðinn til Barnaverndar eftir að hann vann á Krýsuvík. Það fólk sem hann var meðal annars sagður hafa varað við óundirbúnum heimsóknum og falsað niðurstöður þvagsýna fyrir munu hafa verið fyrrverandi skjólstæðingar hans á Krýsuvík. Samkvæmt heimildum DV var Alexander gert að hætta hjá Barnavernd en Halldóra, framkvæmdastjóri Barnaverndar, vill ekki kannast við það. Þegar Alexander hætti var hann þegar byrjaður að undirbúa vændishús en hann ætlaði sér að taka yfir vændismarkaðinn á Íslandi. Vændishúsið var í Fiskakvísl og að sögn nágranna í nærliggjandi húsi fluttu þrjár suðuramerískar konur inn í íbúð sem Alexander tók á leigu. Nánast umsvifalaust hófust tíðar mannaferðir að húsinu á öllum tímum sólarhrings. „Þetta voru menn á öllum aldri, sumir vel klæddir en aðrir ekki. Þetta spannaði í raun allan þjóðfélagsskalann.“ Alexander og kona hans voru síðar handtekinn og úrskurðuð í gæsluvarðhald. Bitnar mest á börnunum „Við tökum þetta mál hans Al­ exanders mjög alvarlega,“ segir Halldóra. Vissir þú að Alexander væri að vara fjölskyldur við og falsa niður- stöður þvagsýna? „Nei, nei, það er bara eitthvað sem við tökum til skoðunar hjá okkur. Hann gat, ef einbeittur vilji til að brjóta af sér var fyrir hendi, látið sína skjólstæðinga vita hvenær hann ætlaði að koma en mjög oft eru tveir sem eru að fara, svo skiptast þeir líka á,“ segir Hall­ dóra og bætir við að mögulegt sé að rekja uppflettingar í málaskrá. Segir Halldóra að það hafi ver­ ið gert og þeirri rannsókn sé ekki lokið. „Þar fyrir utan höfum við hringt í margt af því fólki sem Al­ exander sinnti til að athuga hvort það væru athugasemdir við störf hans. Það segir sig kannski sjálft að ef fólk telur sig hafa ávinning af því að hafa hann í eftirliti segir það bara góða sögu.“ Halldóra segir að þetta sé fyrsta afbrotamálið sem stofnunin hafi blandast inn í. Bætir hún við að með því að rekja uppflettingar hans og ræða við samstarfsfólk sé hægt að bæta starfsemina. Þá verði gætt betur að því í framtíð­ inni að oftar séu tveir starfsmenn sem fari á heimili fjölskyldna sem eigi í vandræðum. „Þetta er rosalega sorglegt. Þetta er ekki góð staða en það var ekki hægt að sjá fyrir miðað við þau gögn sem lágu fyrir. Þetta er mjög alvarlegt. Óboðað eftirlit á að vera nákvæmlega það – óboð­ að. Hins vegar hef ég skoðað hans mál síðustu tvö árin og sem betur fer komu í mörgum tilfellum fleiri en hann að þeim. Hann hefur haft tök á að skemma fyrir en ekki að öllu leyti. Þetta bitnar mest á börnunum.“ n setti Börn í hættu n Eitt alvarlegasta mál sem upp hefur komið hjá Barnavernd Reykjavíkur Starfsmaður Barnaverndar falsaði niðurstöður þvagsýna: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is „Ef þau höfðu neytt fíkniefna breytti hann bara niðurstöðunni. Alexander Manrique Elíasson Alexander Manrique hét áður Jón Einar. DV hefur heimildir fyrir því að Alexander hafi varað minnst þrjár fjölskyldur við heimsóknum Barnaverndar Reykjavíkur Halldóra Gunnarsdóttir Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Mynd sKjásKot rúv / KvEiKur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.