Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 38
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Byggingafyrirtækið Skjólverk ehf. hefur verið starfandi frá árinu 1987, eða í rétt tæp 30 ár. Megin-
þungi starfsemi fyrirtækisins liggur í
viðhaldi og endurbótum á húsnæði, um-
fram verkefni á sviði nýbygginga. Skjól-
verk sinnir reglulegu viðhaldi og endur-
bótum á hátt á þriðja þúsund íbúðum
á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við
stærstu fasteignafélög landsins, þar inni
eru meðal annars fjölmargar íbúðir í
félagslega húsnæðiskerfinu. En Skjól-
verk sinnir líka þjónustu við einstök
húsfélög og vinnur því fyrir bæði litla
og stóra aðila.
Reynslu- og þekkingargrunnur
Hjá Skjólverki starfar hópur fag-
lærðra iðnaðarmanna á hinum
ýmsu sviðum. Víðtæk þekking þeirra
og reynsla gagnast vel við hin
ýmsu vandamál sem hefðbundnar
byggingaraðferðir á Íslandi hafa
í för með sér. Margt er vel gert
við byggingu íbúða hér á landi en
aðferðirnar og byggingarefnin hafa líka
skapað vandamál á borð við húsasveppi,
raka, skort á loftun á þökum og slæma
hljóðvist. Þessi vandamál takast starfs-
menn Skjólverks á við, til dæmis með því
að skipta út byggingarefnum þar sem við
á. Hér kemur stór reynslubanki Skjólverks
að góðum notum en fyrirtækið vinnur
auk þess oft í nánu samstarfi við arki-
tekta og sérfræðinga á sviði bygginga-
verkfræði og byggingareðlisfræði.
Heildarmynd og forgangsröðun
Skjólverk kappkostar að beita bestu
og nýjustu aðferðum hverju sinni við
lagfæringar og endurbætur. Fyrirtækið
virkjar þar, auk þekkingar og reynslu
eigin starfsmanna, náið samstarf sitt
við sérhæfða samstarfsaðila með mikla
menntun og reynslu hver á sínu sviði.
Afrakstur þess er lækkun viðhaldskostn-
aðar og betri heildarsýn yfir ástand og
rekstur fasteigna.
Skjólverk býður upp á alhliða viðgerðir
á öllum tegundum fasteigna, til dæmis
glugga- og glerskipti, endurnýjun og
viðgerðir á þakefnum, uppsetningu á
utanhússklæðningu, pípulagnir, raflagnir,
múrvinnu, málun, dúklagningar og fleira.
Auk einstakra viðhalds- og endur-
bótaverkefna býður fyrirtækið upp
á nýbyggingar og viðbætur fast-
eigna og veitir auk þess langtíma-
þjónustu og ráðgjöf (LCC) vegna
viðhalds fasteigna.
Stórt og smátt – allar iðngreinar
Skjólverk tekur bæði að sér stór
og smá verk á sviði lagfæringa og
endurbóta og vinnur jafnt fyrir stóra
sem litla aðila, eins og fyrr segir.
Sérhæfð þekking og kunnátta iðnaðar-
manna Skjólverks spannar vítt svið en
fyrirtækið hefur á sínum vegum iðn-
meistara og faglærða iðnaðarmenn í
eftirtöldum greinum:
Húsasmíði
Málun
Trésmíði
Innréttingar/hurðir
Múrverk
Dúkalögn/veggfóður
Pípulögn
Pappalagnir/dúkur
Raflagnir
Niðurrif
Blikksmíði
Stíflulosun
Hver sá sem þarf á þjónustu iðnaðar
manna að halda, í stórum sem smáum
verkefnum, getur haft samband við
Skjólverk og fengið tilboð. Skjólverk er að
Funahöfða 8, 110 Reykjavík. Sími er 898
4520 og netfang skjolverk@skjolverk.is.
Á heimasíðu fyrirtækisins, www.skjolverk.
is, er að finna gagnlegar upplýsingar um
starfsemina og þá þjónustu sem í boði er.
Alhliða viðhald og endurbætur
SkjóLVERk
Skelin ehf., Höfðabakka 9 í Reykjavík, annast framleiðslu og sölu á svalalokunarkerfum,
sólstofum og garðskálum, gluggum,
hurðum og fleiru frá þýska fyrirtækinu
Solarlux. Solarlux er leiðandi fyrir-
tæki á þessu sviði og einn sterkasti
framleiðandi í glerlokunum og gler-
skálum, jafnt til notkunar utandyra
sem innandyra. Lausnir frá Solarlux
eru meðal annars algengar fyrir svalir
á fjölbýlishúsum, einkaheimilum, hjá
verslunum, sundstöðum, veitinga-
stöðum og víðar. Svalalokunarkerfi
fást bæði með og án pósta og hið
sama gildir um sólstofur og garð-
skála. Allar póstalausar svalalokanir
eru úr hertu gleri og rafhúðuðum
álprófíl. Þök eru enn fremur úr álprófíl
og aldrei notast við plastefni.
Skelin framleiðir enn fremur
margar gerðir af handriðum, lokanir
á svalaganga og annað þvíumlíkt. Er
allur frágangur sérlega vandaður og
snyrtilegur enda hefur Solarlux bæði
gæði og hönnun í fyrirrúmi. Lokanirn-
ar geta verið í hvaða lit sem er.
Skelin hefur hannað öflugt hand-
riðskerfi fyrir íslenskar aðstæður
sem hentar mjög vel á fjölbýlishús og
svalalokun.
Íslendingar þekkja Solarlux
Solarlux svalalokanir hafa verið á
íslenskum markaði um árabil og
reynslan sýnir að kerfin þola vel
íslensku veðráttuna enda geta þau
verið fyrir glerþykktir frá 6 upp í 15
millimetra, sem er öflugra en nokkur
önnur svalalokunarkerfi á markaðnum.
Meðal helstu kosta svalalokana
eru að þær eru auðveldar í notkun,
hljóðeinangrun er allt að 17 db, þær
verja svalir og tréverk inn af þeim
gegn veðrum og minnka viðhald hús-
næðis. Það er auðvelt að þrífa þær
að utan sem innan og þær halda ryki
og óhreinindum frá svölunum. Svala-
lokanir hafa auk þess þau þægindi í
för með sér að garðhúsgögn, grill og
aðrir hlutir geta verið á sama stað allt
árið um kring.
Skelin ehf. hefur verið starfandi í
rúman áratug og reksturinn geng-
ið mjög vel, sífellt stækkar hópur
ánægðra viðskiptavina.
Nánari upplýsingar eru á heima
síðu Skeljarinnar ehf., skelinehf.is.
Skelin er til húsa að Höfðabakka
9, Reykjavík, og snýr að Vestur
landsvegi. Síminn er 5786300 og
netfangið skelinehf@skelinehf.is.
Framúrskarandi svalalokunarkerfi,
garðskálar, hurðir og gluggar