Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 51
Vikublað 19. janúar 2018 51 Ég hef aldrei skilið hvers vegna Íslendingar bera sig saman við millj-ónaþjóðir. Í alls konar ólíkum samfélagsmálum gerum við samanburð við Bandaríkin, Norðurlönd, Þýskaland og Bretland sem er í raun hálfgerð firra. Vissulega eru þetta Vesturlönd en af hverju berum við okkur saman við þjóðir, þar sem er ekki bara svakaleg- ur mannfjöldi miðað við okkar litlu eyju, heldur allt öðruvísi þróunarsaga. Staðreyndin er sú að bakgrunnur okkar Íslendinga er miklu frumstæðari en þessara stórþjóða. Meðan Danir og Bretar byggðu sér alvöru hús úr múrsteinum, timbri og kopar þá stöfluðum við upp torfi og grjóti til að ná smá skjóli fyrir veðri og vindum. Grannar okkar á Grænlandi byggðu snjóhús en suður í Afríku notuðu menn sterkbyggð strá. Svo höfum við alltaf talað mjög dular- fullt en dásamlegt tungumál sem engin á auðvelt með að skilja nema þau sem hafa fæðst hérna – sem framkallaði eiginlega tvöfalda menningarlega einangrun. Undanfarið hefur mikið verið talað um borgarlínu til að koma fólki á milli staða. Einnig er rætt um fjölgun reiðhjólastíga og fleiri leiða til úrbóta í almenn- ingssamgöngum. Að mínu mati er þetta löngu tímabært enda fjölgar fólki hratt og farartækj- um þess með. Borg eða land? Um daginn heyrði ég minnst á Þrándheim í Noregi sem raunhæft viðmið hvað varðar borgarsamgöngur og þótti það skynsam- legur samanburður. Þar eru veður válynd eins og hér á skeri og svo liggur bærinn eiginlega alveg á sömu breiddargráðu og Reykjavík. Þar búa einnig rétt um 200 þúsund manns, alveg eins og í höfuðstaðn- um okkar. Legg ég á, og mæli um, að héðan í frá skulum við líta til Þrándheims þegar kemur að úrbótum hvað varðar almenn- ingssamgöngur í borginni og hætta alveg að spá í London, París og New York. Þegar okkur langar hins vegar að gera samanburð við aðrar þjóðir, þá er eflaust raunhæfara að líta til landa þar sem búa um 300.000 manns, eins og hér. Til dæmis Möltu, Lúxemborgar, Kýpur, Maldíveyja, Bahamaeyja og Barbados – sem eru reyndar allt aflönd. En það er önnur saga. Hvað segið þið um að prófa raunhæfari samanburð? Margrét H. gústaVsdóttir margret@dv.is instagraM.coM/birta_Vikublad vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: karl Garðarsson Markaðssamstarf: Svava k. Gretarsdóttir s: 690 6900 „meðan danir og Bretar byggðu sér alvöru hús úr múrsteinum, timbri og kopar þá stöfl- uðum við upp torfi og grjóti til að ná smá skjóli fyrir veðri og vindum. dagur í lífi kjartans atla Notar Brjósta- haldara í stærðiNNi 34 hh helgar- maturiNN elskar að slökkva á símanum sínum og kenna krökkum að spila körfubolta. hin íturvaxna oddný ingólfsdóttir er með 124.00 aðdáendur á instagram. orðabanki Birtu veltir fyrir sér uppruna og merkingum orða í íslenskunni. unaðsleg langa í brakandi hnetuhjúp með pestó og parmesan. 52 54-55 að sefa sig og róa 60 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.