Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 52
Vikublað 19. janúar 2018 52 Körfuboltakappinn Kjartan Atli Kjartansson fæddist á Landspítalanum þann 23. maí árið 1984. Hann er sonur þeirra Ásu Steinunnar Atladóttur, hjúkrunarfræðings hjá Land- læknisembættinu, og Kjartans Sigtryggssonar, f.v. lögreglumanns. Kjartan ólst upp á Álftanesi hjá foreldrum sínum og yngri bróður, Tómasi Karli, en fyrir átti faðir hans tvær dætur, þær Barböru og Steinunni, og eina fósturdóttur, söngkonuna Rut Reginalds. Kjartan Atli lauk menntaskólanámi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ á þremur og hálfu ári. Þaðan lá leiðin í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og um svipað leyti steig hann sín fyrstu spor í fjölmiðlabransanum, þá sem blaðamaður í hlutastarfi hjá DV. Kjartan Atli spilaði einnig körfubolta með úrvalsdeildarliði Stjörnunnar samhliða starfi og háskólanámi og þjálfaði jafnframt ungmenni í þessari íþrótt sem á hug hans allan. Eftir að hafa starfað bæði sem grunnskólakennari, körfuboltaþjálfari og blaðamaður sneri hann sér svo alfarið að fjöl- miðlastarfinu árið 2012 en undan- farið hefur hann, ásamt Hjörvari Hafliðasyni, sinnt morgunþættin- um Brennslan á FM957, verið hluti af Ísland í dag-teyminu og síðast en ekki síst lætur hann ljós sitt skína í þættinum Dominos Körfubolta- kvöld sem er á dagskrá Stöðvar 2 Sport í hverri viku. Kjartan býr í Kópavogi ásamt unnustu sinni, Pálínu Maríu Gunnlaugsdóttur, og dóttur þeirra, Klöru Kristínu, sem er átta ára. 06.00 Ég byrja daginn snemma enda hefst útsending klukkan sjö. Ég drekk hvorki kaffi né borða morgunmat en hins vegar gerist ég svo syndsamlegur að fá mér Pre-Workout orkudrykk, hlaðinn koffíni, til að negla mig í gang á morgnana meðan ég horfi á það helsta úr NBA-fréttum næturinnar. Ég lifi nefnilega samkvæmt nýjustu rannsóknum sem segja að morgun- maturinn sé ekki mikilvægasta máltíð dagsins, enda má rekja þá lygi til manna sem framleiða morgunkorn. 07.00 Það sem skilur Brennsluna frá öðrum morgunþáttum er kannski það að við reynum að sjá spaugi- legu hliðarnar á þjóðmálunum. Hlustendahópurinn er fólk á öllum aldri en ætli það eigi það ekki sameiginlegt að vera frem- ur glaðsinna? Svo erum við með alls konar dagskrárliði sem höfða til mismunandi hópa, til dæmis bílahorn, tískuhorn, þrifahorn og annað sem tengist lífsstíls- og samfélagsmálum. Þátturinn stendur til tíu og eftir það taka við verkefni með Íslandi í dag. 10.00 Stundum förum við beint í tökur og erum í þeim fram undir hádegi eða lengur, en umfjöllunarefnin í þættinum eru eins mismunandi og þau eru mörg. Svo fer bara eftir því hvaða vikudagur er uppi á teningn- um hvað ég geri að því búnu. 12.00 Ég hef þá reglu í heiðri að reyna að eiga algjöra griðastund með sjálfum mér í hádeginu. Þá fer ég heim, set ég símann á „silent“, fæ mér eitthvað gott að borða, horfi á sjónvarpið og legg mig jafnvel. Með því að loka mig svona aðeins frá umheiminum næ ég að hlaða batteríin fyrir kvöldið því oft er ég að vinna mjög lengi fram eftir og þarf á orkunni að halda. 15.00 Upp úr hádegi tekur oftast við hugmyndavinna fyrir útvarpið, klippivinna fyrir sjónvarpið og ýmsir fundir. Svo er ég yfirleitt að þjálfa hjá Stjörnunni milli þrjú og fimm. Mér finnst ótrúlega gott að skipta svona um gír og fara í allt annað vinnu- umhverfi. Á körfuboltaæfingum er ég í essinu mínu, nýt þess að kenna krökkunum þessa frábæru íþrótt og reyni að vera góð fyrirmynd. 18.30 Eftir æfingar hitti ég fjölskylduna en kvöldmatinn borðum við gjarna með tengdaforeldrum mínum sem búa í sama húsi. Verkefni kvöldsins eru svo aftur mismunandi eftir dögum en þau snúast aðallega um að horfa á körfuboltaleiki og fylgjast með þjóðfélagsmálum til að geta fjallað um í þættinum næsta morgun. Svo reyni ég líka að fara á æfingar með félögum mínum, ýmist körfubolta eða fótbolta. 23.00 Það næst síðasta sem ég geri áður en ég sofna er að heyra í Hjörvari svo allt sé á hreinu fyrir næsta morgun og síðasta mál á dagskrá er svo að sofna út frá sjónvarpinu. Einhverjir lífsstílssérfræðingar halda því reyndar fram að það sé ekki hollt að hafa sjónvarp í svefn- herbergjum en þar verð ég að vera ósammála, enda erum við Pálína vanalega sofnuð út frá einhverju bandarísku sjónvarpsefni upp úr klukkan tíu. kjartan atli kjartansson Körfubolti, hádegiskría og kostir þess að setja símann á „silent“ Hvað er besta ráð sem þér Hefur verið gefið? Fyrir bikarúrslitaleik Stjörnunnar gegn KR árið 2009 sagði körfu- boltagoðsögnin Jón Kr. Gíslason við mig að eftir leik myndi ég ekki vilja horfa til baka, vitandi það að ég hefði getað gert betur og lagt mig meira fram. Við unnum leik og eftir það urðu þessi orð hans að eins konar lífsmottói hjá mér enda hef ég lagt mig 100 prósent fram í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur eftir það. besta ráð sem þú getur gefið öðrum? Þegar ég var um tvítugt tók ég með- vitaða ákvörðun um að einbeita mér að því skemmtilega í lífinu, bæði í leik og starfi. Þar sem þetta hefur reynst mér vel vil ég deila þessu ráði: Reyna að hafa það gaman og horfa á björtu hliðarnar eftir bestu getu. Hvað vildir þú að þú Hefðir vitað fyrr? Sá er sæll er sjálfur um á lof og vit meðan lifir. Því að ill ráð hefir maður oft þegið annars brjóstum úr.Da gur í l ífi m yn d si g tr yg g u r ar i „Ég hef þá reglu í heiðri að reyna að eiga algjöra griðastund með sjálfum mér í hádeginu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.