Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 62
Vikublað 19. janúar 2018 62 He lgar ma tur inn Birgir, sem hefur rekið verslunina undanfarin níu ár, er einnig mikill sælkeri enda menntaður í faginu. Rétt eins og aðrir matreiðslu- menn leggur hann aðalá- hersluna á ferskleikann en fiskréttirnir í kæliborðinu eru allir útbúnir af honum sjálfum, að undanskildu kartöflumeðlæti. Eldri kynslóðir Ís- lendinga eru flestar aldar upp á fiski. Meðan kjöt var haft til hátíðabrigða borðuðum við gellur, hrogn og lifur, karfa, ufsa, steinbít og ýsu á virkum dögum. Nú er öldin önnur og unga fólkið vill stundum ekki sjá fiskinn meðan þau eldri eru haldin þeim misskilningi að fiskurinn sé eitthvað dýrari en annar matur. Hvað börnin okkar varðar segir Birgir að hér þurfi helst að byrja á grunninum, eða í eldhúsum leik- og grunnskólanna. „Oft á tíðum er hráefnið sem er keypt fyrir leik- og grunnskóla- börnin einfaldlega ekki eins gott og það ætti að vera. Menn keppast við að vera með lægsta verðið og borgin býður þetta út. Ef börn alast ekki upp við að fá góðan fisk frá upphafi þá er kannski ekki skrítið að fiski- menningin sé ekki betri hjá þeim en raun ber vitni,“ segir hann. Íslensk villibráð er umtalsvert betri valkostur en pakki af pylsum Hvað varðar samanburð á fisk- og kjötverði kemur hann með mjög gott dæmi. „Tökum sem dæmi venjulegar pylsur. Kílóið af þeim kostar um 1.800 krónur meðan kíló af ferskri ýsu, sem er ekkert annað en hrein, íslensk villibráð, er bara örlítið dýrara, eða um 2.100 kr kílóið fyrir raunveruleg gæði og holl- ustu. Íslensk nautalund er seld á 7.900 krónur kílóið út úr búð, en nautalund hafsins, sem er skötusel- ur, kostar 3.500 kílóið.“ Hann segir aðgengi okkar að ferskum fiski mik- il forréttindi en íbúar höfuðborga annarra Evrópuríkja búa fæstir svo vel að geta snætt spriklandi ferskan fisk sama dag, eða daginn eftir að hann er dregin í land. „Ég kaupi mína ýsu aðallega frá Siglufirði eða Skagaströnd. Báturinn fer út um morguninn og landar seinnipartinn. Þar fer fisk- urinn beint upp á bíl, er kominn til mín um morguninn og svo er hann flakaður um hádegi og settur í kæliborðið. Fólk áttar sig kannski ekki alltaf á gæðunum og hvað þetta eru í raun mikil forréttindi. Þetta er ferskmeti, ekki beint frá bónda, heldur beint frá sjómanni með lögmætri milligöngu fisk- markaðarins, í næstu verslun.“ Sjálfur borðar hann fisk að minnsta kosti tvisvar í viku með fjölskyldu sinni og segir enga sérstaka tegund í uppáhaldi enda ferskleikinn aðalatriðið. „Fiskurinn er bestur þegar hann er sem ferskastur og sem fisksali legg ég mesta áherslu á að bjóða ferskan fisk. Stundum viðrar til dæmis svo illa að það er ekki hægt að fara út á sjó næsta dag. Þá kaupi ég aðeins meira þann daginn svo að úrvalið sé ferskt. Mánudagar hafa alltaf verið langvinsælustu fiskidagarnir og föstudagar þeir rólegustu. Þetta er gömul hefð hjá Íslendingum, í byrjun vikunnar vill fólk léttmeti og eftir því sem líður nær helginni þá vilja menn þyngri mat. Það er samt ekkert sem segir að fiskurinn sé ekki líka góður á föstudögum eða um helgar enda tökum við inn nýjan fisk á hverjum einasta degi,“ segir sælkerinn að lokum. Birgir Rafn Ásgeirsson, matreiðslumaður og fisk- sali í versluninni Vegamót, við Nesveg á Seltjarnarnesi gefur lesendum gómsæta uppskrift að ofnrétti sem er bæði fljótlegur, einfaldur og þægilegur, svo ekki sé minnst á hollustuna! HNetuHjúpuð laNga UPPSKRIFT HNetuHjúpuð laNga á græNmetiS- Sátu með Sellerírótar-mouSSe Fyrir 4 n 800–1.000 g langa n 70 g pistasíuhnetur n 70 g ristaðar furuhnetur n Rifinn parmesanostur n Steinselja n 1 dós af góðu tómatpestó AÐFERÐ Blandið saman grófmuldum pistasíum, steinselju, parmesanosti og furuhnetum. Veltið löngunni upp úr tómatpestó og sáldrið svo blöndunni yfir. Setjið inn í 200 gráðu forhitaðan ofn og bakið í 12–14 mínútur. Látið hvíla í 5 mínútur áður en maturinn er borinn fram. GRænmETISSÁTA (Gott að gera deginum áður) n ¼ haus rauðkál n ¼ haus hvítkál n 2 meðalstórar gulrætur n 1 meðalstór rauðbeða n Eplaedik n Lime n Ólífuolía Allt rifið niður og bragðbætt með 30 ml af eplaediki, safa úr einu lime og góðri ólífuolíu. Smakkið til með salti og pipar og setjið svo smá sykur með eða sleppið því ef þið eruð í sykurbindindi. SEllERíRóTARmúS n 1 sellerírót skræld og skorin í teninga n ½ dl rjómi n 1 grænmetisteningur AÐFERÐ Sjóðið sellerírótarteninga í grænmetissoði þar til orðið mjúkt. Sigtið og geymið soðið sem er tilvalið í tæra grænmetissúpu næsta dag ef vill. Maukið með töfrasprota, bætið við rjóma og smakkið til með salti og pipar. M yn d ir S ig tr yg g u r Ar i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.