Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 35
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Fjórhjólaferðir fyrir alla
Óbyggðaferðir er fjölskyldufyrirtæki í Fljótshlíðinni sem nú í
ár fagnar 11. starfsárinu. Við
bjóðum upp á skoðunarferð
ir á fjórhjólum allt árið um
kring, hvort sem er í Fljóts
hlíðinni eða lengra inn á
hálendið. Um síðustu áramót
fluttum við aðstöðuna um
þrjá kílómetra. Við erum nú
staðsett með vinum okkar,
Hótel Fljótshlíð, í Smáratúni,
sem er svansvottað hótel og
veitingastaður.
Að njóta náttúru og úti
veru á fjórhjólum er skemmti
leg upplifun. Við bjóðum upp
á fjölbreyttar ferðir allt frá
tveimur klukkustundum til
dagsferða, sem henta jafnt
byrjendum sem vönum.
Þórsmörk, Eyjafjallajökull,
Tindfjöll og Markarfljótsgljúfur
eru dæmi um staði í næsta ná
grenni við okkur. Meðal áfanga
staða í ferðum okkar lengra inni
á hálendið eru Landmanna
laugar, Hrafntinnusker, Heklu
svæðið og fleira.
Óbyggðaferðir Atv Iceland.
is er með aðsetur að Hótel
Fljótshlíð Smáratúni. Við
útvegum viðskiptavinum
hjálma og allan hlífðarfatn
að. Fjórhjólaferðirnar með
Óbyggðaferðum henta jafnt
einstaklingum, fjölskyldum
og hópum allt að 40 manns.
Í samstarfi við Hótel Fljóts
hlíð er auðvelt að klæðskera
skemmtilegt hópefli með
möguleika á gistingu, sælker
amat beint frá býli og frá
bærri afþreyingu, hvort sem
er á fjórhjóli eða hestum, en
að Smáratúni er líka starf
rækt hestaleiga á sumrin.
Við leggjum metnað í
persónulega þjónustu og að
ferðast um landið í sátt við
umhverfið og náttúru. Við
erum aðeins í 90 mínútna
akstursfjarlægð frá Reykjavík
(113 km).
Heimsókn í Fljótshlíðina
svíkur engan. Saman getum
við búið til uppskrift að góð-
um degi. Upplýsingar info@
atviceland.is eða í símum
661-2503 (Unnar) og 661-
2504.
Á leið heim úr Þórsmörk. Goðasteinn á toppi Eyjafjallajökuls.
ÓbyggðAFERðIR:
Sigurjón Héðinsson hefur verið viðriðin bakarí frá árinu 1976 og hann
hefur rekið Sigurjónsbakarí frá
árinu 1988. Það er til húsa í
Hólmgarði 2c, fyrir ofan mið
bæinn í Keflavík. Þann 17. júní
í sumar opnaði Sigurjón síðan
kaffihús í Hólmgarði og hefur
það gert stormandi lukku.
„Ég var bara með 20
fermetra búð hérna en fór
svo upp í 120 fermetra og
þá var hægt að opna kaffi
hús. Þessu hefur verið tekið
afskaplega vel enda fannst
fólki vanta kaffihús í hverfið
og nú er það komið,“ segir
Sigurjón. Staðurinn er opinn
frá 7 á morgnana til 17.30 á
virkum dögum og um helg
ar frá 8 til 17. „Það er súpa,
brauð og pestó í hádeginu,“
segir Sigurjón þegar hann
er beðinn um að nefna það
sem vinsælast er á kaffihús
inu. Einnig hafa sérhannaðir
kleinuhringir hans, svokallað
ar Héðinsbollur, notið mikilla
vinsælda, en sérstaða þeirra
felst í miðjunni í kleinuhringn
um. „Þetta er framleitt hér frá
grunni eftir minni uppskrift.
Það er allt of mikið um að
bakarar selji innfluttar vörur
en ég legg áherslu á að baka
hér eftir mínum uppskriftum.“
Sigurjón á von á miklum
mannfjölda á Ljósanótt sem
er framundan í Reykjanesbæ
en hún verður haldin frá
30. ágúst til 3. september.
„Við verðum með tvöfaldan
mannskap og gætum þess að
allir komist að. Það er pláss
til að sitja hér fyrir 40 manns
í einu þannig að við erum
vel sett. Við verðum með alls
konar nýjungar, partíbrauð
og snittubrauð og svo verð
ég með alls konar öðruvísi
smurt,“ segir Sigurjón.
Að sögn Sigurjóns er
gestahópur kaffihússins í
Sigurjónsbakaríi mjög fjöl
breyttur og á öllum aldri.
Vinnandi fólk fær sér gjarnan
súpu og brauð í hádeginu og
svo staldra oft við hópar eldri
borgara á gönguferðum og
fá sér kaffi. Þá eru krakkar
úr fjölbrautaskólanum þegar
farnir að venja komur sínar
á kaffihúsið en skólinn er
nýbyrjaður á haustönninni.
Vinnudagur bakara hefst
snemma og Sigurjón þekkir
ekkert annað en að vakna
fyrir allar aldir og halda í
vinnuna. „Við byrjum korter
fyrir fimm og bakararnir
vinna til kl. 14. Kaffihúsið er
síðan opið áfram,“ segir Sig
urjón. Hann segist ekki þurfa
mikinn svefn, 4–5 tímar dugi
honum ágætlega.
Sigurjón viðurkennir að
bakstur sé mikil nákvæmnis
vinna í dag. „Hér áður fyrr,
þegar ég var að byrja í þessu,
þá var slumpað meira. Til
dæmis ein lúka af salti á móti
einni skóflu af deigi. En svo hafa
menn misstórar hendur. Í dag
er allt vigtað nákvæmlega og
ýtrustu gæðakröfur uppfylltar.“
Sigurjón rekur líka öfluga
veisluþjónustu og sinnir jöfn-
um höndum brúðkaupsveisl-
um, skírnarveislum, afmælum,
erfidrykkjum og hvers konar
öðrum samsætum. Þeim sem
hafa áhuga á að kynna sér
veisluþjónustuna betur er
bent á að hringja í síma 821-
525 eða 421 -5255.
Kærkomið kaffihús í Hólmgarði
KAFFIHúS VAR opnAð Í SIgURjÓnSbAKARÍI Í SUMAR
Ljómandi
huggulegt
kaffihús.