Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 39
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Fibo baðplötur gera baðherbergið glæsilegt Þ. Þorgrímsson & Co, Ármúla 29 Hinar frábæru Fibo baðplötur hafa slegið í gegn enda eru þær allt í senn stílhreinar, fallegar, auðveldar í ásetningu og til í mörgum litum. Flott hönnun og gæði fara saman við gerð þeirra. Þær eru hreinlegasta og auðveldasta efnið til að nota á veggi í baðherbergi en henta einnig vel fyrir eldhús, skóla, sjúkrahús, rannsóknarstofur, mat­ vælaiðnað, íþróttahús, búningsher­ bergi og alls staðar þar sem kröfur um mikið hreinlæti eru gerðar. mislitun og óhreinindi í fúgum eru ekki vandamál. Yfirborðið þolir mikinn vatnsþrýsting og hitasveiflur. Fibo baðplötur eru höggþolnar og þola því vel daglegt rask, til dæmis leiki barna. litir og mynstur aflitast ekki og því eru plöturnar jafn fallegar um ókom­ in ár. sem fyrr segir eru plöturnar fáan­ legar í fjölda lita, bæði með flísamynstri og einnig í heilum, sléttum plötum. Fibo baðplötur gefa baðherberginu glæsilegt útlit og þú getur blandað saman plötum eftir þínum stíl. Fibo hannar líka veggplötur sem henta í öll herbergi heimilisins og alls staðar glæða þær umhverfið þokka og fegurð með sínum einfalda stíl. Plöturnar eru viðurkenndar til notkunar í blautrými; öll vinna með gifsplötur, rakasperru, membru, flísar og fúgur heyrir sögunni til. Einnig eru fáanlegar plötur án flísamynsturs. Plöturnar skrúfast á vegginn/grindina eða límast á steinveggi eða gifsveggi. allar plöturnar eru með aqualock lás­ um á langhliðum. Einfalt er að stytta og stilla plöturnar af þannig að þær passi beint á vegginn. Plötustærð er 2400x600x11mm. Einnig er hægt að sérpanta lengri plötur sem eru 3020x600x11mm að stærð. slétt og sterkt yfirborðið þolir vel bæði vatns­ þrýsting og hitasveiflur. Það er fljótlegt að þurrka af og einfalt að halda hreinu. Fylgdu einföldum samsetningarleið­ beiningum og þú tryggir einstakan árangur sem endist áratugum saman. Fibo baðplöturnar eru til sölu hjá Þ. Þorgrímsson & Co, Ármúla 29, Reykja- vík. Verslunin er opin alla virka daga frá kl. 8 til 18. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni korkur.is. albErtsson EhF. Persónuleg þjónusta við ánægða viðskiptavini Albertsson ehf. er hrein­gerningarþjónusta sem sinnir almennum þrifum fyrir húsfé­ lög, heimili og fyrirtæki auk flutnings­ þrifa. að sögn starfsmanns fyrirtæk­ isins, Ölmu haraldsdóttur, dreifast verkefni nokkuð jafnt á milli þessara sviða en í heildina er mjög mikið að gera og verkefnum fer sífellt fjölgandi. albertsson ehf. hefur viðamikla reynslu af ræstingum og almennum þrifum og er með mörg fyrirtæki í föstum viðskiptum. athygli vekur að á heimasíðunni albertsson.is er hægt að panta tilboð í öll verkefni sér að kostnaðarlausu. meðal annars er hægt að panta heimilisþrif í áskrift og að sögn Ölmu færist slíkt í vöxt hjá önnum köfnu fólki. Flutningsþrif fara líka sífellt vaxandi og margir sem eru að skipta um heimili kjósa að losna við þá vinnu enda er hún mikil: „Þetta eru líklega mest krefjandi verkefnin, það þarf að taka alla veggi, dyrakarma, glugga að innan og alla innbyggða skápa og skúffur,“ segir alma. starfsmenn hjá albertsson eru mismargir eftir árstíma. „Þetta er í grunninn fjölskyldufyrirtæki og margir úr fjölskyldunni eru starfsmenn. Við leggjum áherslu á persónulega þjón­ ustu og leggjum þunga áherslu á að allir viðskiptavinir séu ánægðir. Það er hins vegar ekkert launungarmál að við þurfum að fjölga starfsfólki á næstunni og erum að leita að góðu starfsfólki.“ albertsson kappkostar að fylgja öllum verkefnum eftir til að viðhalda persónulegri þjónustu við sína við­ skiptavini svo gæðin séu í hámarki. Fyrirtækið hefur yfir að ráða góð­ um tækjakosti og er allur vélbúnaður nýr, til dæmis skúringarvélar og svo­ kallaðar gufuvélar sem ná vel óhrein­ indum af gólfflísum. albertsson er til húsa á sel­ tjarnarnesi og af því leiðir að mörg verkefni eru á nesinu og í Vestur­ bænum. hins vegar nær starfssvæð­ ið alveg yfir höfuðborgarsvæðið og raunar víðar því alma fer stundum upp í sveit og þrífur sumarbústaði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni albertsson.is. Símanúmer er 867-0754.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.