Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 45
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Amerísk upplifun í hjarta borgarinnar AmericAn BAr, Austurstræti 8 American Bar, Austurstræti 8, er einn flottasti sportbar landsins, þar sem hægt er að fylgjast með spennandi íþróttavið- burðum á flatskjáum og breiðtjaldi, borða frábæran mat og njóta sín í lifandi umhverfi. reglulega troða upp reyndir og flinkir trúbadorar sem koma öllum í rétta stemningu með spennandi lagavali og kraftmiklum flutningi. eftir miðnætti um helgar mæta síðan plötusnúðar til leiks og tryggja dúndrandi stemningu fram eftir nóttu. enski boltinn er fyrir- ferðarmikill á skjáum á American Bar en þar eru líka sýndir leikir í amerísku nFL-deildinni og ýmsir aðrir íþrótta- viðburðir. umhverfi á American Bar er sér- lega skemmtilegt en þar má sjá ýmsa forvitnilega ameríska hluti, til dæmis bandaríska fánann frá árinu 1930, sem hangir á vegg, 70 ára gamlan uppstoppaðan svartbjörn og nFL- hjálma frá öllum liðunum í deildinni, en þeir prýða veggi staðarins. maturinn á American Bar er afar girnilegar. meðal annars er boðið upp á hamborgara, barbecue-rif, kjúklingavængi og cesar-salat. Úrval af drykkjum á barnum er síð- an framúrskarandi en „drekku tíminn“ – Happy Hour – er alla daga frá kl. 16 til 19. Á Facebook-síðu American Bar er gott að fylgjast með því sem er í gangi á staðnum. Þar eru reglulega uppfærðar upplýsingar um dagskrá framundan, íþróttaviðburði á skján- um og tónlistaratriði á staðnum. Auk þess er þar að finna reglulega spennandi tilboð í mat og drykk. American Bar er opinn mánudaga til fimmtudaga frá 11 til 01 eftir mið- nætti, föstudaga og laugardaga frá 11 til 04.30, og loks sunnudaga frá 11 til 01. Fólk hefur tekið ástfóstri við hamborgarana á Íslenska barnum HrÁeFnið skiptir sköpum Þegar við byrjuðum með Íslenska barinn var ekki pælingin að vera hamborgarastaður en ham- borgararnir urðu bara strax svo vin- sælir hjá okkur og það varð til þess að við stækkuðum hamborgaramatseð- ilinn og núna bjóðum við upp á sex ólíka hamborgararétti ásamt borgara dagsins,“ segir Veronika á Íslenska barnum, ingólfsstræti 1a. staðurinn er rómaður fyrir bæði frábæran mat og góða kráarstemningu og úrvalið á barnum er frábært. Veronika segir að ein af ástæðum vinsælda hamborgaranna í byrjun hafi verið sú að Íslenski barinn varð einna fyrstur til að bjóða upp á vöfflufranskar kartöflur með borg- urunum, sem þótti afar spennandi nýjung á sínum tíma en núna eru þær orðnar útbreiddar. „Við erum með ferska nauta- borgara frá kjötsmiðjunni. Það er mikilvægt nota einungis ferskt gæða- kjöt. Hamborgari er ekki bara ham- borgari og almennilegt hráefni gerir þetta að allt annarri máltíð en það sem við köllum vanalega skyndibita. Alvörukjöt, fitubætt, og engin auka- efni,“ segir Veronika. Ljúffengur frumleiki einkennir vinsælustu hamborgara Íslenska barsins og Veronika tekur sem dæmi sigguborgarann: „sagan á bak við sigguborgarann er sú að hún sigga mamma mín bakar pönnukökurnar okkar og okkur langaði til að gera eitthvað meira við þær, þannig að við ákváðum að leggja efra brauðinu og erum með pönnuköku fyllta með osti og beikoni í staðinn. Þetta gerðum við að borgara dagsins einu sinni en hann varð svo rosalega vinsæll að það var ekki annað í boði en að setja hann á matseðilinn.“ Annað dæmi um frumleika og vinsældir er lambahamborgarinn: „Það varð verkfall hér um árið og það var ekki til nautakjöt í landinu og þá byrjuðum við með lambaborgarann. Íslendingar voru ekki mjög spennt- ir fyrir honum í byrjun en erlendu ferðamennirnir tóku honum fagnandi. núna er hann hins vegar orðinn mjög vinsæll hjá Íslendingum líka. segja má að verkfallið hafi kennt fleiri Íslending- um að meta lambaborgara.“ Bæði sigguborgarinn og lamba- borgarinn eru mjög vinsælir réttir og seljast í miklu magni á hverjum degi. Íslenski barinn býður líka upp á hefð- bundinn hamborgara og hreindýra- borgara sem er algjört lostæti. einnig eru kjúklingaborgari og Haf og hagi sem er nautaborgari með djúpsteikt- um íslenskum humri. Eins og áður segir er Íslenski bar- inn bæði vinsæll veitingastaður og skemmtistaður. Opið er virka daga frá 11.30 til eitt um nóttina og um helgar er opið til þrjú að nóttu. Bjórúrvalið á barnum er magnað en í boði eru allir íslenskir bjórar sem fáanlegir eru í flösku og dós. Eingöngu er íslenskur bjór í boði en úrvalið af íslenskum bjór er líklega eitt það mesta í heiminum, tegundirnar í augnablikinu eru um 60.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.