Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 55
Vikublað 19. janúar 2018 55 jafnöldrur standa henni á sporði hvað vinsældir varðar en aðeins örfáir Íslendingar hafa svo marga fylgjendur að þeir hlaupi á tugum þúsunda. Fjallið svokallaða, Hafþór Júlíus Björnsson, er með rúmlega eina milljón, Annie Mist með 742 þúsund og Margrét Gnarr um 95 þúsund eða aðeins færri en Oddný sem segist aldrei hafa keypt sér fylgjendur heldur skrifar hún velgengnina aðallega á áðurnefnd- ar endurbirtingar (shout outs) og myllumerkin góðu. Vinsældirnar hafa meðal annars gert það að verkum að Oddný þarf ekki að borga fyrir undirfötin sín lengur enda komin í samstarf við nokkra af sínum eftirlætis framleiðendum. „Þetta fór eiginlega almennilega af stað fyrir svona hálfu ári en þá ákvað ég að reyna að gera bara eitthvað almennilegt með þennan reikning. Vandaði myndatökurnar og hafði svolítið meira fyrir þeim. Upp úr því fóru hlutirnir að gerast mjög hratt og nú er ég komin í samstarf við nokkur stór tískufyrir- tæki. Til dæmis Curvy Kate, sem ég hef elskað frá því ég var sautján ára, Dear Scamtilly, BrasDot og Fashion Nova. Enn sem komið er hef ég þó ekki fengið greitt fyrir fyrirsætu- störfin í peningum enda er þetta bara hobbí hjá mér enn sem komið er. Ætli sjálfstraustið haldi ekki aðeins aftur af manni,“ segir hún. Er hvött áfram af kærastanum „Ég hef líka verið svolítið smeyk við íslenska markaðinn, óttast aðeins dómhörku sem er kannski óþarfi af því að ég hef aðallega fengið góð viðbrögð og hvatningu frá Íslendingum,“ segir Oddný sem hefur líka fengið bónorð og alls konar misjöfn tilboð. „Stundum fær maður svakalega ógeðsleg skilaboð og þeim svara ég auðvitað ekki en stundum finnst mér líka gaman að rugla í fólki. Bónorðin koma aðallega frá mönn- um sem búa í Mið- Austurlöndum en þeir virðast vera með brúðkaup á heilanum. Einn bisnessmaður frá Dúbaí bauð mér að koma og gerast yfirkokkur á veitingastað sem hann rekur þar og hann var ekkert að grínast með það. Sumir þessara manna eru í marga mánuði að reyna að ná athygli en ég kippi mér ekkert upp við það,“ segir hún og hlær. Spurð að því hvort kærastinn hennar sé sáttur við samkeppnina segir hún hann of fullorðinn til þess að vera að stressa sig á þess háttar smáræði, en þau hafa verið saman í fjögur ár og hafa bæði verið í kokkanámi. „Birkir Freyr er aðallega í því að hvetja mig og styðja í þessu áhugamáli mínu. Hann hjálpar mér að taka flottar myndir, rekur á eftir mér að setja inn nýjar myndir og þess háttar. Þegar ég segi að hann sé of fullorðinn til að stressa sig á samkeppninni þá á ég bara við að hann er of andlega þroskaður til þess. Hann er kannski með 27 ára líkama en andlega er hann 75 ára,“ segir hún og skellir upp úr. Fékk brjóstin úr föðurættinni Spurð að því hvort stóru brjóstin séu ættareinkenni segir Oddný þau beint úr föð- urættinni en hæðina fékk hún úr móðurætt. „Amma mín er með svona stór brjóst líka en mjaðmirnar og rassinn koma úr fjölskyldu mömmu. Það eru allir eins og perur í laginu þar. Undanfarið hef ég reyndar bætt á mig aukakílóum svo vaxtarlagið hefur kannski orðið aðeins ýktara. Það var erfitt að halda reglu þegar maður var undir stöðugri pressu í kokkanáminu. Þá kom maður örmagna heim á kvöldin og langaði bara í pítsu,“ segir Oddný sem mætir nú reglulega í World Class í Laugum og Smáralind og reynir að passa upp á mataræðið. „Núna er ég aðallega að fók- usera á brennsluæfingar en eftir svona tvo til þrjá mánuði ætla ég að byrja að lyfta aftur og verða eins sterk og ég get. Ég hef mikinn lík- amlegan styrk og hef mjög gaman af því að lyfta. Við systkinin erum reyndar öll svona. Eldri bróðir minn er alveg risastór, tveir metrar, og sá yngri er sirka 182 sentimetrar en hann er aðeins fjórtán ára. Þetta er svolítið fyndið af því báðir for- eldrar okkar eru pínulitlir, mamma er bara rétt rúmlega 160 senti- metrar en svo var aftur gríðarlegur hæðarmunur á ömmu hennar og afa. Langafi minn, Kjartan Bjarnason frá Siglufirði, var 210 sentimetrar en langamma mín var bara 150,“ segir Oddný og flissar. Krafin um fullorðinsgjald í strætó og fékk ekki fara í Boltaland Um fermingu var Oddný orðin fullvaxta, eða 180 sentimetrar á hæð eins og fyrr segir. Henni þótti tilveran stundum svolítið erfið frá þessu sjónarhorni en þó aðallega þegar hún var krakki. „Ég var til dæmis alltaf krafin um fullorðins- gjald í strætó og var jafnvel vísað út þegar bílstjórarnir trúðu því ekki að ég væri enn á barnafar- gjaldi. Svo var mér oft vísað frá Boltalandi í IKEA sem mér fannst alveg ömurlegt og sérstaklega þótti mér það ósanngjarnt þegar vinir mínir héldu áfram að lauma sér inn, alveg tveimur árum eftir að þau voru orðin of gömul. Kannski hefði það verið kostur fyrir mig að komast í Ríkið fyrir tvítugt en ég drekk bara eiginlega aldrei áfengi svo ég keypti ekkert þar fyrr en ég varð 21 árs og þá var það fyrir pabba,“ segir Oddný og hlær. „Ég geri mér til dæmis grein fyrir því að ég er of feit“ Spurð að því hvað henni þyki um „líkamsvirðingar“-átök svokölluð segir hún að henni finnist margir taka þær hug- myndir aðeins of langt. „Á endanum snýst þetta um að ef maður er ekki ánægður með sig þá er nauðsynlegt að gera eitthvað í því til að líða betur, alveg burt- séð frá útlitinu. Fyrir sumum virðist lífið svolítið svart eða hvítt og margir túlka líkams- virðingu sem svo að maður eigi að vera sáttur við líkamann á sér í mikilli yfirþyngd. Það er fjöldi flotts fólks að predika þetta á netinu og það fer stund- um alveg svakalega í taugarnar á mér. Auðvitað er alveg hægt að vera 130 kíló og halda heilsu í því ástandi í einhvern tíma en á endanum er eitthvað að fara að gefa sig ef fólk gerir ekkert til að huga að heilsunni. Ef mjög feitt fólk er sátt í eigin skinni þá er það hið besta mál, enda er ekkert að því að vera feit eða feitur, en það er ekki í lagi að halda því fram að heilsan sé í toppstandi þegar fólk er í mikilli yfirþyngd. Það gengur einfaldlega ekki upp. Ég geri mér til dæmis grein fyrir því að ég er of feit þessa dagana en ég er samt sátt við sjálfa mig. Ég er ánægð með mig á meðan ég fer vel með sjálfa mig og passa hvern- ig ég tala til sjálfrar mín í kollinum,“ segir hún og bætir að lokum við að vel heppnuð sjálfa á Instagram geti líka gert góða hluti fyrir sjálfsmyndina. „Þetta er kannski svolítið eins og að kaupa sér nýja fallega flík sem maður nýtur þess að klæðast. Ég get alltaf skoðað vel heppnað- ar sjálfsmyndir og rifjað upp að einmitt þegar myndin var tekin hafi mér liðið vel og verið sátt í eigin skinni. Það leynist ákveðin styrkur í því,“ segir þessi flotta fyrirsæta að lokum. „Amma mín er með svona stór brjóst líka en mjaðmirnar og rass- inn koma úr fjöl- skyldu mömmu. m yn d b ry n ja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.