Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 59
KYNNING Íslenska verði leiðandi tungumál RetoR FRæðsla Við viljum vitundarvakningu um notkun íslensku sem leiðandi tungumáls á vinnustöðum og við teljum að enska hafi tekið yfir sem samskiptamáti vegna stefnu- leysis stjórnvalda. styrkir til íslensku- kennslu fyrir innflytjendur voru 240 milljónir árið 2008 en 120 milljónir árin 2016 og 2017. Það er áríðandi að breytingar verði í innflytjendamálum, sérstaklega varðandi íslenskukennslu. Ég trúi því að í landi eins og Íslandi séu breytingar mögulegar,“ segir aneta M. Matuszewska, skólastjóri Retor Fræðslu. aneta betndir á að síðustu ár hafi innflytjendum fjölgað hratt og þeir séu í dag 10 prósent af þjóðinni. spár bendi til þess að eftir tíu ár geti þessi tala nálgast 20 prósent og án veru- legrar stefnubreytingar í íslensku- kennslu fyrir fullorðna innflytjendur muni það hafa gífurleg áhrif á tungu- málið. Þeir sem kunna íslensku séu þegar farnir að velja ensku sem sam- skiptamáta fram yfir íslensku. Þróunin sé augljós og hröð og aðgerða sé þörf til að viðhalda íslenskunni. Tungumálið er lykillinn „Það að kunna málið er lykillinn að því að geta tekið þátt í samfélaginu. Íslenskukunnátta opnar ótal dyr, ekki bara þær að geta spjallað við íslenska vini sína yfir kaffi, heldur fær fólk tækifæri til þess að nota menntun sína, miðla af þeirri reynslu sem það býr yfir og hugmyndum sínum og á betri möguleika á því að láta drauma sína rætast,“ segir aneta. aneta flutti hingað til lands frá Póllandi fyrir sautján árum og var au-pair hjá íslenskri fjölskyldu. Þegar þeim samningi lauk hóf hún störf á leikskóla. Hún segir leikskólastarfið hafa verið afar gefandi og hún náði góðum tökum á íslensku. Í fram- haldinu fór hún að kenna samlöndum sínum málið. „Ég varð reynslunni ríkari eftir nokkurra ára starf við leikskóla og þegar mér bauðst að kenna Pólverj- um íslensku skellti ég mér á það enda fannst mér vanta pólskumælandi kennara. Þetta var mjög áhugavert en þó fannst mér vanta betri lausnir fyrir samlanda mína. af því að ég er sjálf innflytjandi taldi ég mig vita betur hvernig Pólverjar læra og vildi koma ákveðnum hugmyndum á framfæri. Ég stofnaði því skólann árið 2008.“ Erum of fljót að skipta yfir í ensku Hún segir Íslendinga allt of fljóta að skipta yfir í ensku þegar þeir tali við innflytjendur. Það tefji fyrir því að fólk nái tökum á málinu. „Íslendingar eru að sjálfsögðu betri í íslensku en ensku og því skrítið að þeir tali frekar ensku við innflytjendur því innflytjendur tala alls ekki allir ensku. Við heyrum það frá nemendum okkar að það er alls staðar töluð við þá enska. Fólk fær ekki tækifæri til að æfa sig í að tala. Innflytjendum fjölgar hratt og ef fram fer sem horfir næstu áratugi munu sífellt færri tala íslensku á Íslandi!“ aneta segir að skýrari stefnumót- un vanti hjá stjórnvöldum. „stjórnvöld verða að læra af reynslunni. Það eru ekki bara verkamenn sem koma hing- að til að vinna og stoppa stutt, margir setjast hér að. ef þeir læra ekki ís- lensku er miklu meiri hætta á að þeir lendi á atvinnuleysisbótum ef þeir missa vinnuna. Það vantar fjármagn, númer eitt, tvö og þrjú. Nú er lag, það er uppgangur og hagkerfið blómstrar. Þetta er ekki bara mál innflytjend- anna sjálfra heldur allra Íslendinga.“ aneta segir að árlega sæki rúm- lega um þúsund nemendur nám hjá Retor. „Við sérhæfum okkur í íslensku- kennslu fyrir Pólverja en við tökum á móti öllum hópum innflytjenda og eru þá blönduðu hóparnir yfirleitt á veg- um fyrirtækja sem við þjónustum. Við höfum einnig átt langt samstarf við Vinnumálastofnun þar sem við kenn- um sérsniðin námskeið til viðbótar við íslenskukennslu. Innflytjendur sjálfir vilja skýrari stefnu. Við erum komin, við viljum taka þátt í að byggja upp landið en ef það er engin stefna í ís- lenskukennslu verður enskan einfald- lega ofan á. Ég skora því á komandi ríkisstjórn að marka skýra stefnu.“ Retor Fræðsla er til húsa að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Síminn er 519-4800. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni retor.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.