Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 59
KYNNING
Íslenska verði
leiðandi tungumál
RetoR FRæðsla
Við viljum vitundarvakningu um notkun íslensku sem leiðandi tungumáls á vinnustöðum
og við teljum að enska hafi tekið yfir
sem samskiptamáti vegna stefnu-
leysis stjórnvalda. styrkir til íslensku-
kennslu fyrir innflytjendur voru 240
milljónir árið 2008 en 120 milljónir
árin 2016 og 2017. Það er áríðandi að
breytingar verði í innflytjendamálum,
sérstaklega varðandi íslenskukennslu.
Ég trúi því að í landi eins og Íslandi
séu breytingar mögulegar,“ segir
aneta M. Matuszewska, skólastjóri
Retor Fræðslu.
aneta betndir á að síðustu ár hafi
innflytjendum fjölgað hratt og þeir
séu í dag 10 prósent af þjóðinni. spár
bendi til þess að eftir tíu ár geti þessi
tala nálgast 20 prósent og án veru-
legrar stefnubreytingar í íslensku-
kennslu fyrir fullorðna innflytjendur
muni það hafa gífurleg áhrif á tungu-
málið. Þeir sem kunna íslensku séu
þegar farnir að velja ensku sem sam-
skiptamáta fram yfir íslensku. Þróunin
sé augljós og hröð og aðgerða sé þörf
til að viðhalda íslenskunni.
Tungumálið er lykillinn
„Það að kunna málið er lykillinn að
því að geta tekið þátt í samfélaginu.
Íslenskukunnátta opnar ótal dyr,
ekki bara þær að geta spjallað við
íslenska vini sína yfir kaffi, heldur
fær fólk tækifæri til þess að nota
menntun sína, miðla af þeirri reynslu
sem það býr yfir og hugmyndum
sínum og á betri möguleika á því
að láta drauma sína rætast,“ segir
aneta. aneta flutti hingað til lands
frá Póllandi fyrir sautján árum og var
au-pair hjá íslenskri fjölskyldu. Þegar
þeim samningi lauk hóf hún störf á
leikskóla. Hún segir leikskólastarfið
hafa verið afar gefandi og hún náði
góðum tökum á íslensku. Í fram-
haldinu fór hún að kenna samlöndum
sínum málið.
„Ég varð reynslunni ríkari eftir
nokkurra ára starf við leikskóla og
þegar mér bauðst að kenna Pólverj-
um íslensku skellti ég mér á það enda
fannst mér vanta pólskumælandi
kennara. Þetta var mjög áhugavert
en þó fannst mér vanta betri lausnir
fyrir samlanda mína. af því að ég
er sjálf innflytjandi taldi ég mig vita
betur hvernig Pólverjar læra og vildi
koma ákveðnum hugmyndum á
framfæri. Ég stofnaði því skólann árið
2008.“
Erum of fljót að skipta yfir í ensku
Hún segir Íslendinga allt of fljóta að
skipta yfir í ensku þegar þeir tali við
innflytjendur. Það tefji fyrir því að fólk
nái tökum á málinu. „Íslendingar eru
að sjálfsögðu betri í íslensku en ensku
og því skrítið að þeir tali frekar ensku
við innflytjendur því innflytjendur tala
alls ekki allir ensku. Við heyrum það
frá nemendum okkar að það er alls
staðar töluð við þá enska. Fólk fær
ekki tækifæri til að æfa sig í að tala.
Innflytjendum fjölgar hratt og ef fram
fer sem horfir næstu áratugi munu
sífellt færri tala íslensku á Íslandi!“
aneta segir að skýrari stefnumót-
un vanti hjá stjórnvöldum. „stjórnvöld
verða að læra af reynslunni. Það eru
ekki bara verkamenn sem koma hing-
að til að vinna og stoppa stutt, margir
setjast hér að. ef þeir læra ekki ís-
lensku er miklu meiri hætta á að þeir
lendi á atvinnuleysisbótum ef þeir
missa vinnuna. Það vantar fjármagn,
númer eitt, tvö og þrjú. Nú er lag, það
er uppgangur og hagkerfið blómstrar.
Þetta er ekki bara mál innflytjend-
anna sjálfra heldur allra Íslendinga.“
aneta segir að árlega sæki rúm-
lega um þúsund nemendur nám hjá
Retor. „Við sérhæfum okkur í íslensku-
kennslu fyrir Pólverja en við tökum á
móti öllum hópum innflytjenda og eru
þá blönduðu hóparnir yfirleitt á veg-
um fyrirtækja sem við þjónustum. Við
höfum einnig átt langt samstarf við
Vinnumálastofnun þar sem við kenn-
um sérsniðin námskeið til viðbótar við
íslenskukennslu. Innflytjendur sjálfir
vilja skýrari stefnu. Við erum komin,
við viljum taka þátt í að byggja upp
landið en ef það er engin stefna í ís-
lenskukennslu verður enskan einfald-
lega ofan á. Ég skora því á komandi
ríkisstjórn að marka skýra stefnu.“
Retor Fræðsla er til húsa að
Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Síminn er
519-4800. Nánari upplýsingar eru á
heimasíðunni retor.is.