Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 53
Vikublað 19. janúar 2018 53
Árið 1923 kom út lítið hefti með heitinu
„Hjúskapar hugleiðingar
fyrir ungar stúlkur“ en því
var ætlað að gefa ungum
konum gagnleg ráð í ásta-
málum. Í inngangsorðum
er meðal annars tekið
fram að ástin hafi þann
eiginleika að maður geti
ekki hugsað sér að hún
geti breyst, hvorki orðið
minni né meiri. Þar segir:
„Að hið síðarnefnda
er ekki mögulegt hjá
þér, því get ég vel trúað;
en að hið fyrrnefnda sé
ómögulegt, get ég ekki,
þrátt fyrir mótmæli
þín, fallist á. Reynslan
sýnir að jafnvel hjón,
sem elskast mjög heitt í
byrjun, geta á skömm-
um tíma orðið köld og
kærulaus gagnvart hvort
öðru. – Þó er það ekki
tilgangur minn, kæra
vinkona, að ég með
þessu, hversu satt sem
það er, vilji draga kjark
úr þér. Heyrðu ráð mín
og breyttu eftir þeim og
þá munt þú komast hjá
mörgum óþægindum.“
BIRTA mun á næstu vikum
deila þessum heilræðum, lesend-
um sínum til gagns og gamans.
Spurningin er bara hvort þessi ráð
séu jafn gagnleg árið 2018 og árið
1923. Það er aldrei að
vita. Hér kemur ráð
númer 1.
Vertu sparsöm með
ástaratlot þín
Of mikil ástaratlot og umhyggja
geta eyðilagt hamingju þína eins
og of lítið af þeim. Ástin getur því
aðeins varað að ástaratlot séu
viðhöfð í hófi. Þú þreytir manninn
þinn með of miklum ástaratlotum
og of mikilli umhyggju fyrir hon-
um. Hann þolir ekki of mikla ham-
ingju. Mundu eftir, að of mikið má
af öllu gera. Hvað mun sá hafa til
vetrarins, sem hefir eytt öllu að
sumrinu? Hugsaðu um það, að
þið eigið eftir að vera saman alt
ykkar líf; vertu þess vegna sparsöm
með ástaratlot þín. Skoðaðu mann
þinn altaf eins og vin, sem þú á
alla lund reynir að draga að þér og
gera alt til geðs.
Vertu sparsöm með ástaratlot þín
Hjúskaparhugleiðingar fyrir ungar stúlkur
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is